Morgunblaðið - 03.11.2020, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2020
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Rúmlega 93 milljónir manna hafa
þegar greitt atkvæði í forsetakosn-
ingunum í Bandaríkjunum, sem fara
fram í dag. Það eru um tveir þriðju af
öllum þeim sem greiddu atkvæði í
kosningunum fyrir fjórum árum, og
stefnir því allt í að kjörsókn að þessu
sinni verði ein sú mesta frá forseta-
kosningunum árið 1900, en þá
greiddu 73,2% þeirra sem höfðu
kosningarétt atkvæði.
Þessi mikli fjöldi atkvæða sem
greidd voru fyrir kjördag þýðir að
minni líkur eru á því að hrein nið-
urstaða muni fást í talningunni í nótt,
því að í mörgum ríkjum eru slík at-
kvæði talin síðust, og í Pennsylvaníu-
ríki, þar sem baráttan er hvað hörð-
ust, mega kjörstjórnir ekki einu sinni
opna atkvæði sem berast með pósti
fyrr en kjörstaðir loka í ríkinu.
Skoðanakannanir benda enn sem
fyrr til þess að Joe Biden, frambjóð-
andi demókrata, njóti mun meira
fylgis á landsvísu en Donald Trump
Bandaríkjaforseti, en það þýðir þó
ekki að forsetinn eigi enga möguleika
á endurkjöri, þar sem kjör-
mannakerfið, sem gefur hverju ríki
fyrir sig vissan fjölda kjörmanna sem
svo velja sér forseta, þýðir að enn
gæti Trump náð að tryggja sér að
minnsta kosti 270 kjörmenn, eða
meirihluta þeirra 538 sem eru í boði.
Má varla misstíga sig
Demókratar búa hins vegar að því
að nokkur fjölmennari ríki eru svo
gott sem talin örugg fyrir þá, sem aft-
ur þýðir að leið Trumps að Hvíta hús-
inu verður þyrnum stráð. Hann má
helst ekki misstíga sig í neinu af lyk-
ilríkjunum Ohio, Flórída, Pennsylv-
aníu, Arizona, Norður-Karólínu og
Georgíu til þess að eiga möguleika á
sigri. Kannanir nú benda til þess að
Biden leiði í öllum þessum ríkjum
nema Ohio, þó að munurinn sé vissu-
lega ekki alls staðar mikill.
Bandaríkin eru víðfeðmt land sem
ná yfir sex tímabelti, og því loka kjör-
staðir ekki allir á sama tíma. Fyrstu
ríkin munu loka kjörstöðum sínum á
miðnætti að íslenskum tíma, þar á
meðal Georgía, og þrjú ríki til við-
bótar, Norður-Karólína, Ohio og
Vestur-Virginía, gera það hálftíma
síðar. Þar sem mjótt er á mununum í
tveimur fyrrnefndu ríkjunum, gæti
niðurstaðan í þeim gefið ágæta vís-
bendingu um í hvaða átt stefnir, liggi
hún á annað borð fyrir.
Klukkan eitt að íslenskum tíma
verður hins vegar kjörstöðum lokað í
bæði Pennsylvaníu og Flórída, og
klukkutíma síðar í Arizona og Texas,
þar sem kjörsókn hefur farið fram úr
öllum helstu væntingum manna.
Klukkan fjögur loka svo kjörstaðir á
vesturströnd Bandaríkjanna, en ríkin
þar eru öll talin örugg fyrir demó-
krata og Joe Biden.
Venjulega myndi þá liggja fyrir
með nokkurri vissu hver hefði unnið
kosningarnar, en mismunandi reglur
eru í hverju ríki um talningu póst-
atkvæða, hversu lengi eftir kjördag
þau mega berast, og hvaða skilyrði
þau þurfa að uppfylla til þess að vera
talin gild.
Þannig mega póstatkvæði í Kali-
forníu berast allt að 17 dögum eftir
að kjördegi lýkur, og vera talin gild,
svo lengi sem þau voru póstlögð fyrir
kjördag. Það er ýtrasta dæmið, en
flest hin ríkin taka við greiddum at-
kvæðum sem berast allt að þremur,
sjö eða tíu dögum eftir að kjörstöðum
lokar.
„Rauð hylling“ eða „blá bylgja“?
Fjöldi slíkra atkvæða hefur sjaldan
verið nægur til þess að breyta þeim
tölum sem liggja fyrir að morgni mið-
vikudagsins, en að þessu sinni gæti
annað verið upp á teningnum. Í þing-
kosningunum fyrir tveimur árum
töldu repúblikanar sig til að mynda
hafa unnið í nokkrum kjördæmum,
en þegar utankjörfundaratkvæðin
töldust með breyttist staðan með af-
gerandi hætti.
Þannig munaði mjóu að Ted Cruz
frá Texas héldi sæti sínu í öld-
ungadeildinni, og Ron DeSantis, rík-
isstjóri Flórída, mátti sömuleiðis bíða
í von og óvon eftir að sjá hvort for-
ysta hans á kjördag myndi þurrkast
út.
Sú staða gæti hæglega komið aftur
upp í nótt, þannig að svo virtist sem
Trump hefði forystu um nóttina, en
Biden ynni á eftir því sem fleiri lög-
lega greidd atkvæði yrðu talin.
Lagakrókar ráði úrslitum?
Það vakti því athygli um helgina
þegar Axios-fréttastofan greindi frá
því eftir heimildum sem sagðar voru
úr innsta hring forsetans, að Trump
hefði sagt við nána samstarfsmenn
sína að hann hygðist lýsa yfir sigri á
kosninganótt, nánast óháð því hver
staðan væri.
Trump bar fréttirnar til baka sam-
dægurs, en lét þess um leið getið
hvað það væri hræðilegt að hægt
væri að telja atkvæði lengi, og hét því
að lögfræðingar sínir myndu halda
innreið sína í helstu lykilríki til þess
að fara yfir talningu atkvæðanna.
Sú yfirlýsing þarf ekki að koma á
óvart, en Trump hefur frá því í sumar
reynt að varpa efasemdum á póst-
atkvæði og sagt þau bjóða upp á víð-
tæk kosningasvik, þrátt fyrir að
helstu rannsóknir bendi til annars.
Lögfræðingateymi beggja flokka
hafa því tekist á um hvaða reglur eigi
að gilda í hvaða ríkjum um móttöku
og talningu þeirra. Verði mjótt á
munum eftir nóttina, gæti allt eins
verið, að úrslitin myndu ráðast í rétt-
arsalnum.
Stefnir í mestu kjörsókn í 120 ár
Ólíklegt að hrein niðurstaða muni liggja fyrir á kosninganótt Leið Trumps að endurkjöri er
þyrnum stráð Demókratar í sterkri stöðu í fulltrúadeildinni og gætu náð öldungadeildinni líka
Angela Merkel Þýskalandskanslari
kallaði í gær eftir því að samlandar
hennar hlýddu nýjum sóttvarnaráð-
stöfunum, en veitingahúsum, krám
og kaffihúsum var í gær lokað í fjór-
ar vikur vegna kórónuveirufarald-
ursins.
„Við treystum á samstarf, sam-
þykki og skilning þjóðarinnar til
þess að þetta virki,“ sagði Merkel og
bætti við að það væri í höndum hvers
og eins að ná árangri nú í nóvember,
en það væri forsenda þess að Þjóð-
verjar gætu haldið jólin ásamt fjöl-
skyldum sínum í desember. Skólar
verða áfram opnir, sem og dagvist-
arheimili og búðir, en aðgerðirnar
eru sagðar „vægari“ útgáfa af þeim
sem gripið var til í vor til þess að
stemma stigu við fyrstu bylgju far-
aldursins. 12.097 tilfelli voru skráð í
Þýskalandi í gær, og hafa nú rúm-
lega 545.000 Þjóðverjar smitast af
kórónuveirunni og rúmlega 10.500
látist af völdum hennar.
Hvatning Merkel kom sama dag
og vísindaráð Frakklands varaði við
því að líklegt væri að ríki Evrópu
myndu þurfa að ganga í gegnum
fleiri bylgjur eftir áramótin, þrátt
fyrir hertar aðgerðir, og að það yrði
raunin þar til bóluefni finnst.
AFP
Lokað Stólar voru víða uppi á borðum í veitingahúsum Þýskalands í gær, en
þeim hefur nú verið lokað næstu fjórar vikurnar vegna kórónuveirunnar.
Vill að Þjóðverjar
fylgi aðgerðunum
Fleiri bylgjur gætu skollið á Evrópu
Einnig er kosið til beggja deilda Bandaríkjaþings í dag. Kosið er um öll
sætin í fulltrúadeildinni til næstu tveggja ára. Þar hafa demókratar nú
þegar 232 þingsæti af 435, en repúblikanar hafa 197 sæti. Reynist skoð-
anakannanir réttar gætu demókratar bætt allt að 15 fulltrúum við sig.
Þá eiga repúblikanar í vök að verjast í öldungadeildinni, en þar er kosið
um þriðjung þingsæta til sex ára í senn. Að þessu sinni þurfa þeir að verja
23 þingsæti gegn 12 hjá demókrötum. Nái demókratar að vinna fjögur
þeirra umfram þau sem þeir tapa fá þeir einnig meirihluta í öldungadeild-
inni, en þeir eru sagðir í góðri stöðu í Maine, Norður-Karólínu og Arizona.
Demókratar í sterkri stöðu
ÞINGKOSNINGARNAR
AFP
Kjörsókn Langar biðraðir hafa myndast fyrir framan kjörstaði í þeim ríkjum Bandaríkjanna sem bjóða fólki upp á að greiða atkvæði utan kjörfundar.