Morgunblaðið - 03.11.2020, Page 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2020
PON Pétur O. Nikulásson ehf. | Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna!
GÆÐI OG ÞJÓNUSTA
PON er umboðsaðili
Í Morgunblaðinu
hinn 4. október 2020
birtist viðtal við Þór-
dísi Kolbrúnu Reyk-
fjörð Gylfadóttur,
ferðamála-, iðnaðar-
og nýsköpunarráð-
herra. Þar upplýsir
ráðherrann að nú fari
fram, í samvinnu við
OECD, endurskoðun
og einföldun á íslensku regluverki
sem snýr að iðngreinum í landinu.
Sennilega leitaði ráðuneytið til
OECD vegna þess að innan þess
er vitað hvaða afstöðu OECD hef-
ur í þessum efnum. Orðrétt segir
ráðherrann:
„Ég veit að það er viðkvæmt að
ræða um lögvernduð starfsheiti en
hér á Íslandi erum við komin út
úr öllu korti hvað fjölda þeirra
varðar og eins er ferillinn frá
sveinsprófi til meistarabréfs orð-
inn meiri háttar samkeppn-
ishindrun.
Er vönduð menntun og fag-
mennska samkeppnishindrun?
Mætti ekki frekar segja að mikill
fjöldi lögverndaðra greina sé
skýrt einkenni á samfélagi sem
gerir miklar kröfur til gæða og
fagmennsku? Heldur ráðherrann
að lögverndun sé aðeins orðin
tóm? Gerir ráðherrann sér ekki
grein fyrir að á bak við hvert lög-
verndað starfsheiti er menntun og
færni sem tryggja á gæði til neyt-
enda? Eða veit ráðherra iðn-
aðarmála ekki hvernig iðnkerfið er
byggt upp? Kerfi sem reynst hef-
ur Íslandi vel til sjós og lands frá
stofnun Iðnskólans í Reykjavík.
Hann hefur verið eins konar móð-
urskóli handverks og iðnmennt-
unar í landinu allt frá stofnun
1904.
Bætt um betur
Ráðherrann sagði líka að þetta
yrði kynnt í næstu viku og að þar
yrðu ýmsar áhugaverðar tillögur.
Vikan er orðin ansi löng því enn
hefur ekkert sést frá ráðuneytinu.
Í síðustu viku bárust aftur á móti
tíðindi frá „vitringunum“ í Við-
skiptaráði. Þessir sjálfskipuðu
varðmenn viðskiptafrelsisins
sendu frá sér skýrsluna: Hið op-
inbera: Meira fyrir minna. Í
skýrslunni kemur m.a. fram afar
ófyrirleitin aðför að gæðum og
fagmennsku. Síðast árið 2015
veittist Viðskiptaráð að lögvernd-
un iðngreina og birti á vefsíðu
sinni skýrsluna „Banvænn biti -
Lögverndun á íslenskum vinnu-
markaði“. Í blaðagrein töldum við
það afar illa unnið plagg, byggt á
röngum gögnum. Í seinni skýrsl-
unni er því blákalt haldið fram að
lögverndun iðngreina geti haft
neikvæð áhrif á nýsköpun vegna
krafna hins opinbera um ákveðna
menntun eða aðferðir sem þá tor-
veldi þróun nýrra aðferða og
lausna. Halda mætti að nýsköp-
unarstyrkir gætu mögulega feng-
ist til að líma bárujárnsplötur á
hús með kennaratyggjói, fylgi
menn þessum röksemdum! Auðvit-
að eflir fagmennska nýsköpun og
öfugt, nýsköpun kemur heldur
ekki í stað fagmennsku. Jafnframt
kemur þetta fram í skýrslunni:
„Íslendingar búa við strangara
form lögverndunar en íbúar ann-
arra norrænna ríkja. T.d. er leyf-
isskyldu, mest „íþyngjandi“ formi
lögverndunar, beitt í talsvert
meiri mæli hér á landi en annars
staðar.“
Þarna vitnar Viðskiptaráð í eig-
in skýrslu (Banvæna bitann) sem
rök en greinarhöfundar röktu þá
froðu á haustmánuðum 2015 í
grein sinni Sérhagsmunasamtök
sýna klærnar. Stjórn Viðskipta-
ráðs skipa 37 manns auk for-
manns. Margir þeirra stjórna
stórfyrirtækjum sem eiga allt sitt
undir iðnaðarmönnum en engu að
síður láta fulltrúar ólíkra fyrir-
tækja það óáreitt að vegið sé að
iðngreinunum með þessum hætti.
Öllum ætti að vera ljóst að vönduð
og vottuð vinnubrögð í tugum iðn-
greina eru hvorki íþyngjandi fyrir
fyrirtækin né neytendur. Þvert á
móti spara þau fé, tíma og viðhald.
Gerum betur en þetta
Ráðherra iðnaðar er menntaður
lögfræðingur og lætur hafa eftir
sér að þegar farið verður í að
breyta umhverfi iðngreina verði
stuðst við reynslu af fyrirkomu-
laginu. Reynslan er talin neikvæð
hjá Viðskiptaráði, í ráðuneytinu og
víðar. Hvað með lögfræðiþjón-
ustu? Hliðstætt væri að ráðherra
vildi leggja til afnám löggildingar
á lögmennsku, og einkarétt fag-
menntaðra lögmanna til að reka
mál fyrir aðra? Varla gerist það,
en iðnaðarmenn skulu verða að
sæta því að vera á milli tanna póli-
tíkusa og misviturra spámanna ís-
lensks viðskiptalífs.
Síðan í vetur hefur starfshópur
starfað á vegum ráðuneytisins við
að efla eftirfylgni með iðnlöggjöf-
inni. Þá stígur ráðherra fram í
fjölmiðlum, notar sama orðfæri og
Viðskiptaráð og talar um „íþyngj-
andi regluverk“. Það hefur ekki
enn komið fram hvað „orðin meiri
háttar samkeppnishindrun“
merkja. Því miður virðist ráðu-
neytið taka mið af báðum
skýrslum Viðskiptaráðs og þar
með af áliti OECD sem Við-
skiptaráð Íslands hefur gert að
sínu:
„Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld
til að fylgja erlendum fordæmum
og einskorða lögverndun við þær
greinar þar sem hún skilar sann-
arlega ávinningi. Afnám lögvernd-
unar í fjölmörgum atvinnugreinum
myndi auka atvinnufrelsi, styðja
við markmið stjórnvalda um aukna
framleiðni, ýta undir nýsköpun og
draga úr kostnaði fyrir bæði neyt-
endur og fyrirtæki.“
Betur má ef duga skal
Nú í ár bættu Þjóðverjar 12 lög-
gildum iðngreinum í sitt reglu-
verk. Þær voru lögverndaðar en
höfðu misst stöðuna 2004 er iðn-
aðarlögin voru endurskoðuð. Af
hverju gerist það? Vegna þess að
fúsk og óvönduð vinnubrögð voru
tekin að einkenna þjónustuna og
kaupendur hennar einir að kljást
við mestallan skaðann. Furðulegt
er forgangsmál stjórnvalda, á tím-
um mikilla erfiðleika okkar og
annarra þjóða vegna Covid-19, að
iðnaðarmenn skuli nú (og á nokk-
ura ára fresti) verða að skila
greinargerðum til ráðuneytisins
og rökstyðja hvers vegna iðngrein
þeirra eigi að njóta lögverndunar.
Hvenær gerðu lögmenn og hag-
fræðingar það síðast? Sorglegt
verður að telja að ráðamenn skuli
ekki viðurkenna mikilvægi lög-
giltra iðngreina fyrir íslenskt sam-
félag en reyna fremur að grafa
undan þeim. Því skal haldið til
haga að iðnaðarlögum og löggilt-
um iðngreinum er meðal annars
ætlað að tryggja gæði, öryggi, al-
mannaheilbrigði og neytenda-
vernd. Ríkir almannahagsmunir
liggja til þess að tryggt sé að
ákveðin verk séu unnin af fag-
mönnum. Einnig er brýnt að
áfram verði nauðsynleg iðn- og
fagþekking lifandi í landinu. Hún
gæti glatast í ýmsum tilvikum ef
lögverndun margra iðngreina yrði
felld úr gildi.
» Öllum ætti að vera
ljóst að vönduð og
vottuð vinnubrögð í tug-
um iðngreina eru hvorki
íþyngjandi fyrir fyrir-
tækin né neytendur.
Sigurður Már
Guðjónsson
Höfundar eru iðnmeistarar.
Eftir Sigurð Má
Guðjónsson og
Helga Steinar
Karlsson
Helgi Steinar
Karlsson
Er fagmennska samkeppnishindrun?