Morgunblaðið - 03.11.2020, Síða 32
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bókaútgáfan Bjartur hefur gefið út
bókina Háspenna, lífshætta á Spáni
eftir Árna Árnason. Sagan er sjálf-
stætt framhald af Friðbergi forseta,
sem kom út í
fyrra.
Vegna kórónu-
veirufaraldursins
eru ekki hefð-
bundin útgáfuhóf
í tilefni nýrra
bóka og sennilega
verður lítið um
heimsóknir rit-
höfunda í skóla,
stofnanir og fyrirtæki að þessu sinni.
Vegna breyttrar stöðu ákvað Árni að
búa til um tíu mínútna útvarpsleikrit
úr einum kafla bókarinnar til að
kynna lesendum hverju þeir megi
búast við. Leikararnir Ingvar E.
Sigurðsson, Rósa Ásgeirsdóttir úr
Leikhópnum Lottu, Anna María Ei-
ríksdóttir og Bríet Valdís Reeve fara
með hlutverkin.
Þegar Friðbergur forseti var í
smíðum ákvað Árni að helstu per-
sónurnar kæmu fram í að minnsta
kosti tveimur sjálfstæðum bókum.
Því hafi framhaldið verið eðlilegt.
„Friðbergi forseta var mjög vel tek-
ið og það er svo gaman að fá við-
brögðin frá lesendahópnum, það
auðveldaði að halda áfram,“ segir
Árni.
Að þessu sinni lenda persónurnar
í ævintýrum á Spáni. Árni segir að í
ljósi aðstæðna og ferðatakmarkana
geti bókin að sumu leyti komið í
staðinn fyrir sólarlandaferðirnar
sem hefðu hugsanlega verið farnar í
ár. „Persónurnar lenda í svakaleg-
um ævintýrum og skrautlegum
uppákomum, til dæmis í vatns-
rennibrautum,“ segir Árni. Tekið sé
á knýjandi málefnum en minna fari
fyrir pólitíkinni en í fyrri bókinni.
„Þarna eru pælingar um það hvernig
við viljum sjá heiminn í framtíðinni
en svo er líka bara mikil gleði og
mikið grín í bland við spennuna,“
áréttar höfundurinn.
Lestur með börnunum
Helena, tíu ára dóttir Árna og
Kolbrúnar Björnsdóttur, eiginkonu
hans, hjálpaði honum við að búa til
persónurnar og átti hugmyndina að
því að láta þessa bók gerast á Spáni.
„Spánn er uppáhaldslandið hennar
og við látum sólarlandafríið skína í
gegn.“ Hann hafi lesið það sem hann
hafi skrifað fyrir hana á kvöldin og
fengið viðbrögð frá henni. „Við höf-
um ráðið ráðum okkar og í samein-
ingu ákveðið hvort einhverju ætti að
sleppa eða bæta við.“
Árni segir að boðskapurinn fari
ekki á milli mála. „Við eigum fyrst
og fremst að vera góð og haga okkur
vel gagnvart náunganum,“ segir
Árni. „Allir eru jafn réttháir í lífinu.“
Því fjalli hann um popúlisma, öfga-
fulla þjóðernishyggju og misnotkun
á valdi. „Þróunin á þessu sviði virðist
vera ískyggileg víða í heiminum og
því finnst mér sjálfsagt að benda á
það, en að sjálfsögðu er þetta fyrst
og fremst spennusaga með miklu
gríni.“
Sagan er skrifuð með aldurshóp-
inn átta til 13 ára í huga. Árni leggur
samt áherslu á að þegar hann hafi
byrjað á söguheiminum um Frið-
berg forseta hafi hann ekki síður
haft fullorðna lesendur í huga, að
skrifa um það sem þeim þætti gam-
an að lesa með börnunum. „Mín upp-
lifun og reynsla er sú að það eru
bestu stundirnar sem maður getur
átt með börnunum sínum og því unn-
um við markvisst að því að búa til
söguheim sem höfðar til allra.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Rithöfundur Árni Árnason hefur sent frá sér nýja bók og sem fyrr eru systkinin Sóley og Ari í aðalhlutverkum.
Gleði og framtíðarsýn
Árni Árnason með nýja spennusögu fyrir börn og fullorðna
e ti t rinn a Ru
fæ lustend 10 f ir a
r a allega, fín rík ólkinu
á h rj gi.
a s tjarna
k
ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 308. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
ÍÞRÓTTIR MENNING
KR-ingurinn Atli Sigurjónsson var besti leikmaður úr-
valsdeildar karla í knattspyrnu, Pepsi Max-deildarinnar,
á keppnistímabilinu 2020, samkvæmt einkunnagjöf
Morgunblaðsins. Hann vann titilinn á minnsta mun
eftir að hann og Steven Lennon, sóknarmaður FH-inga,
urðu efstir og jafnir í M-gjöfinni með 15 M hvor.
Þar réð úrslitum að Atli lék einum leik færra en
Lennon í deildinni. Lið ársins samkvæmt M-gjöfinni eru
einnig birt í blaðinu í dag í efstu deildum karla og
kvenna. »26-27
Atli Sigurjónsson og Steven Lennon
fengu jafn mörg M í sumar
Stór og litrík verk með óræðum
formum í Tilveru Þórunnar Báru
Þórunn Bára
opnaði sýningu
sína Tilveru í
Galleríi Fold við
Rauðarárstíg
um helgina.
Rauður þráður í
verkum hennar
er náttúru-
skynjun og sú
trú að skyn-
reynsla sé van-
nýtt leið að
gagnrýninni
hugsun og ábyrgð fólks á umhverfi og eigin lífi, leið
sem geti dregið úr firringu og verið hvati til góðra
verka, eins og segir í tilkynningu. Þórunn vinnur stór og
litrík verk með óræðum formum úr náttúrunni og þá
einkum plönturíkinu og hefur sótt innblástur í Surtsey
og rannsóknir á hvernig líf hefur kviknað á eldfjallaeyju
á hafi úti. Sýningin stendur til 14. nóvember.