Morgunblaðið - 17.11.2020, Side 2

Morgunblaðið - 17.11.2020, Side 2
2 | MORGUNBLAÐIÐ Viðgerðir og sala á alternatorum og startörum í flestar gerðir bíla, báta og vinnuvéla. Hjólastillingar, úrval af ljósum á kerrur og eftirvagna, kerrutenglar, kaplar, perur og tengi. Sendum um allt land. www.pgs.is pgs@pgs.is s 586 1260 Viðarhöfði 1, 110 Reykjavík Alternatorinn eða startarinn bilaður? Breyttir jeppar frá Arctic Trucks þykja ómissandi í starfi flestra björgunarsveita og gjörbreyttu getu sveitanna þegar þeir komu fyrst fram á sjónarsviðið. „Fram að því reiddu björgunarsveitirnar sig á vélsléða og beltadrifna snjóbíla sem þurfti að flytja á vettvang björgunaraðgerða. Var þá ekið upp að snjólínunni, snjóbíllinn þá tekinn af palli og ekið þangað sem að- stoðar var þörf. Breyttur jeppi kemst alla leið og þarf bara að hleypa úr dekkjunum þegar komið er í þunga færð,“ útskýrir Emil. „Þar að auki nota breyttir hálend- isjeppar mun minna eldsneyti en snjóbílar, eru ódýrari í viðhaldi, eru þægilegri og komast hraðar yfir.“ Ökutæki sem komast alla leið Það markaði kaflaskil í störfum björgunarsveitanna þegar breyttu háfjallajepparnir komu til sögunnar. Úr safni. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is A rctic Trucks afhenti á dögunum fyrsta eintakið af nýrri kynslóð björg- unarsveitajeppa sem byggja á Ford F150-pallbílnum. Jeppinn var þróaður í nánu sam- starfi við íslenskar björgunarsveitir og útkoman farartæki sem ætti að nýtast enn betur við leitar- og björgunarstörf við erfiðustu skil- yrði. Emil Grímsson er fram- kvæmdastjóri Arctic Trucks Int- ernational og stjórnarformaður Arctic Trucks á Íslandi. Hann segir að með því að nota Ford F150 sem grunn verði rýmra um ökumann og far- þega og meira pláss fyrir búnað og sjúkraflutn- inga. „Plássið er mun betra og fer vel um þrjá í aftursætinu. Eldri gerðir höfðu þann ókost að það gat verið þröngt fyrir þrjá að sitja aft- ur í og ekki gaman að þurfa að ferðast um langan veg í slíkum þrengslum,“ segir Emil en ef þess er óskað má fá björgunarsveitarbíl- inn með tveimur þriggja manna sætaröðum svo hann rúmar sam- tals sex manns. Þóttplássið hafi verið aukið þarf ekki meirapróf til að aka nýja björgunarsveit- arbílnum. Stefnan sett á 50 bíla Nýi björgunarsveitajeppinn not- ar dekk sem Arctic Trucks hannaði í samvinnu við finnska fyrirtækið Nokian og þykja gefa einstaklega gott flot og grip í snjó. Allur bún- aður um borð hefur verið upp- færður og vandlega gætt að því að bæði raftæki og hreyfanlegir hlutar ráði vel við hörkufrost og krefjandi aðstæður. Segir Emil að ráðist hafi verið í þróun ökutækisins með það fyrir augum að framleiða 50 bíla og fyrir vikið miklu meiri vinna verið lögð í alla grunnhönnun en hægt er þegar hver og einn bíll er sérhann- aður fyrir hverja björgunarsveit fyrir sig. Með fjöldaframleiðslu gefst fyrirtækinu því kostur á að bjóða kaupendum enn vandaðra ökutæki á hagstæðara verði og bæta skilvirkni í viðhaldi og rekstri. „Þar sem allir bílarnir eru í grunninn eins er hægt að ganga að því sem vísu að tiltekinn vír á til- teknum stað geri það sama í þeim öllum, og ef í ljós koma t.d. veik- leikar eða bilanir í tileknum íhlut hjá einum þá getum við nýtt okkur það til að koma í veg fyrir að aðrir lendi í því sama, bætt þannig rekstraröryggi bílanna og um leið þjónustu og öryggi landsmanna,“ útskýrir Emil og bætir við að þeg- ar verkefnið er lagt upp með þess- um hætti verði upphafskostnaður mikið hærri og selja þurfi marga bíla þar til næst fyrir kostnaði. Heppilegur fyrir Ameríkumarkað Bíllinn gengur í dag undir nafn- inu Ford F150 AT44 Rescue en hefur ekki enn fengið formlegt heiti. Emil segir Arctic Trucks vera að skoða möguleika á mark- aðssetningu ökutækisins á heim- skautasvæðum Kanada og Banda- ríkjanna en þar hjálpar mikið að Ford-pallbíll skuli vera notaður sem grunnur enda bandarísk smíði og geysivinsæll á þessum slóðum. „Þetta gerir skráningar og þjón- ustumál frekar auðleysanleg en við lentum á veggjum þegar við reynd- um að gera það sama byggt á Toyota Hilux AT44,“ útskýrir Emil en fram til þessa hefur Arctic Trucks einkum sótt inn á Evr- ópumarkað og Mið-Austurlönd og þá fyrst og fremst með breyttum Nissan- og Toyota-bifreiðum. „Þessi grunnbreyting getur hent- að fjölþættari starfsemi á þessum slóðum í Norður-Ameríku, Arctic Trucks er þegar þekkt og sterkt vörumerki víða og við teljum okkur geta náð nokkuð langt með þetta verkefni,“ segir Emil. „Á mörgum landsvæðum bæði í Kanada og Alaska geta ökutæki eins og björg- unarsveitarbíllinn umbylt sam- göngum en í dag er einkum notast við þung beltatæki á þessum slóð- um eða vegir ruddir með ærnum tilkostnaði og miklum útblæstri.“ Breyttir jeppar Arcitc Trucks hafa þegar sannað notagildi sitt bæði á Íslandi og á svæðum eins og Suður-heimskautinu sem farartæki fyrir landkönnuði og rann- sóknastöðvar og hæfa vel að- stæðum í köldustu héruðum Norð- ur-Ameríku. „Bæði má nota jeppana okkar til að þjónusta af- skekktar byggðir en líka náma- og olíuvinnslusvæði,“ segir Emil. Rýmri og enn betri björgunarjeppi Með því að nota Ford F150 sem grunn eygir Arctic Trucks mögu- leika á að hefja sókn inn á Bandaríkja- og Kanadamarkað. Fordinn tekur sig vel út í björgunarlitunum og breyttur á ýmsa vegu. Það fer vel um björgunarfólk á leiðinni á vettvang enda nóg af plássi. Emil Grímsson Morgunblaðið/ Kristinn Magnússon Hvað varðar bremsulengd jeppa þá standa borgarjeppar ekki jafnfætis eftir prófanir á þessum mikla örygg- isþætti. Því fer fjarri að niðurstaðan sé af mistaka völd- um. Níu metrar eru nákvæmlega lengd tveggja Citroën C5 Aircross samanlögð. En það er líka munurinn á bremsu- lengd bestu bílanna og þeirra slöppustu, samkvæmt mælingum tilraunamanna franska bílablaðsins Auto- Plus. Þeir tóku í gegn 30 borgarjeppa og mældu hvað þeir voru lengi að nema staðar af 130 km/klst. ferð. Með- altalið reyndist 64 metrar. Nokkrir gerðu miklu betur og aðrir mun lakar. Nokkrir þeirra síðarnefndu voru með tvíaflrásir sem vegna aukins tæknibúnaðar eru yfirleitt mun þyngri. Í þeim hópi er t.d. Honda CR-V tvinnbílinn (22. sæti með 66 metra bremsulengd), Lexus UX (23. sæti – 67 metrar), Kia Niro (27. sæti – 68 metrar), Toyota RAV4- tvinnbíllinn (29. sæti – 69 metrar). Síðasti bíllinn hafði svona nokkuð sér til afsökunar; Range Rover Evoque sem þurfti 70 metra til að staðnæmast úr 130 km ferða- hraða, eða níu metrum meira en þeir bestu. Jafnir í þremur efstu sætunum með 61 metra bremsu- lengd voru 90 hestafla Audi Q3, 192 hesta BMW X2 og 190 hesta VW Tiguan. Fimm urðu jafnir í sætum fjögur til átta eða 140 hesta BMW X1, 160 hesta Nissan Qashqai, 130 hesta Peugeot 3008, 190 hesta Seat Ateca og 150 hesta Volvo XV40. Jafnir í níunda til ellefta sæti urðu 150 hestafla Ford Kuga, 115 hesta Kia Sportage og 140 hesta Renault Kadjar. Níu bílar þurftu svo 64 metra til að staðnæmast. agas@mbl.is Smájeppar bremsa misvel Morgunblaðið/ Audi Q3, BMW X2 og VW Tiguan komu best út.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.