Morgunblaðið - 17.11.2020, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 17.11.2020, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ | 7 Sérfræðingar í hleðslustöðvum fyrir rafbíla Reykjavík Klettagörðum 25 Sími 5 200 800 Akureyri Draupnisgötu 2 Sími 4 600 800 Reykjanesbær Bolafæti 1 Sími 420 7200 Reyðarfjörður Nesbraut 9 Sími 470 2020 Selfoss Eyrarvegi 67 Sími 4 800 600 Hafnarfjörður Bæjarhrauni 12 Sími 5 200 880 Grundartangi Mýrarholtsvegi 2 Sími 5 200 830 Nánari upplýsingar á ronning.is/rafbilar » 1,5 lítra TNGA bensín-tvinnvél » Rafstýrð stiglaus gírskipting » 116 hö / 120 Nm » 0-100 km/klst. á 9,7 sek. » Hámarkshr. 175 km/klst. » CO2: 87-112 g/km (blandaður) » 3,8-4,9 l/100 km (blandaður) » Eigin þyngd: 1.080 til 1.180 kg » Farangursrými 286 l Umboð: Toyota á Íslandi » Grunnverð (Yaris Live): 3.240.000 kr. » Verð eins og prófaður: 3.980.000 kr. Toyota Yaris Active Hybrid árg. 2021 Hefði mátt slaka á inngjöfinni Árið 2020 skiptir ekki síst máli hversu vel maður getur tengt bílinn öllum manns græjum og tólum. Hér eru allar helstu tækninýjungar inn- an seilingar og auðveldlega hægt að tengja snjallsíma með hvort tveggja Apple CarPlay og Android Auto. Skemmtilegasta nýjungin fólst óneitanlega í skilaboðunum sem biðu manns að loknum hverjum akstri, á miðju mælaborðinu. Þar fékk maður að vita hversu vel hefði til tekist að halda akstrinum spar- neytnum. Ég hefði til dæmis mátt slaka eilítið á inngjöfinni þegar ég tók af stað. Sagði bíllinn mér. Þessu til viðbótar má hlaða niður appi sem nefnist MyT og kemur úr smiðju Toyota. Það býður upp á frekari greiningu á aksturslagi ökumannsins, auk ýmissa gagn- legra upplýsinga um hvernig megi auka hlutfall aksturs á rafmagni og þannig spara eldsneytið enn meira. Pípt á ökumanninn Af öðrum nútímahjálpartækjum má nefna árekstrarviðvörunarkerfi sem notar bæði sjálfvirka hemlun og stýrisaðstoð, umferðarskynjara að aftan, sem einnig nýtir sjálfvirka hemlun, og akreinastýringu ef bíllinn byrjar að rása frá miðju reinarinnar. Þetta síðastnefnda truflaði mig nokkuð. Ég er nefnilega þeim ágalla haldinn að ég nota helst ekki stefnu- ljós nema ég sjái að aðrir vegfar- endur hafi af því gagn til að komast leiðar sinnar. Og þegar ekki nokkur bifreið var í augsýn, og ég hugðist færa mig um akrein án stefnuljóss, þá heyrðist hátt píp og gott ef stýrið reyndi ekki líka að stýra mér til baka. Þetta gerðist nokkrum sinnum, áður en ég fann út hvernig mætti slökkva á þessu, sem reyndist auð- velt – aðeins að halda inni takka í nokkrar sekúndur. Það þarf þó að gera í hvert sinn sem bíllinn er keyrður. Ef til vill fyrir bestu. Fullkominn búnaður fylgist með aksturslaginu og veitir gagnleg ráð. Viðbragðið er ágætt og margt þægilegt við það að vera á smábíl í borgarumferðinni. Yaris hefur notið töluverðra vinsælda á Íslandi og um 11.600 slíkir á götunum í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.