Morgunblaðið - 17.11.2020, Side 14

Morgunblaðið - 17.11.2020, Side 14
Ljósmyndir: Tesla.com Wikipedia – Shadman Samee (CC) Wikipedia – OSX (CC) Wikipedia – Cliff (CC) Wikipedia – SG2012 (CC) imz-ural.com Draumabílskúrinn Hinn fullkomni íslenski hversdagsbíll: Lexus RX 350 árg. 2007. Ég á svoleiðis bíl og er sá besti sem ég hef átt um dagana. Hann var svolítið notaður en þokkalega með farinn þegar ég keypti hann fyrir um þremur árum og kostaði mig þá sama og nýr Yaris hefði gert. Í villtustu draumum: Ferrari 250 GTO. Mig hefur alltaf langað til að eignast Ferrari en einhverra hluta vegna hefur aldrei orðið af því. Ef maður lætur sig dreyma þá væri gaman að eiga svona undurfagran 250 GTO í bílskúrnum. Síðast þegar einn slíkur skipti um eigendur mun verðið hafa verið rétt tæplega 50 millj- ónir dollara, eða um sjö milljarðar ís- lenskra króna. Sunnudagsbíllinn: Citroën Traction Av- ant árgerð 1950, þegar þetta fagur- fræðilega og tækni- lega undraverk kom fram á sjónarsviðið árið 1934 hljóta allir áhugamenn um bíla að hafa fallið í stafi yfir frumlegri hugs- un, tæknilegum framförum og þessu töfrandi útliti. Allir gangsterar í frönsk- um kvikmyndum sem höfðu einhverja sjálfsvirðingu létu ekki sjá sig á öðrum bílum en Citroën Traction Avant næstu áratugina. Litli borgarbíllinn: Mazda Miata: sport- bíll hins hagsýna heimilisföður. Fíni bíllinn: Tesla Model S. Rafbílar virðast vera nánasta framtíð og þessi Tesla er enginn barnavagn. Hún er sögð komast í 100 km hraða á 3,9 sekúndum. Ég prófaði bíl af þessari gerð og held að þetta sé alveg rétt, þótt ég hafi ekki verið með stoppúr til að mæla það. Fyrir lottóvinninginn: Cord árgerð 1932. Glæsilegur amerískur bíll og var á undan sínum tíma. Mótorhjólið: Ural M70 með hliðarvagni. Ég veit ekki hvernig Theobald félagi minn tæki því að setja upp stormgleraugu og hjálm í hliðarvagninum en ég sé okkur samt fyrir mér í hringferð að skoða þetta dásamlega land okkar. 14 | MORGUNBLAÐIÐ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þ ráinn Bertelsson skiptir sjaldan um bíl og ók t.d. um á sama Volvo- skutbílnum í tvo áratugi. „Það var haturs-ástarsamband allan tímann,“ segir Þráinn glettinn en Volvoinn var af gerðinni 240 og keyptur nýr beint frá umboðinu. „Minni kynslóð var innrætt að vera nýtin; að hlutirnir ættu að vera vandaðir og að þeir ættu að endast,“ segir Þráinn um hvernig hann nálg- ast það að kaupa og reka bíl. „Ef ég eignast bíl þá lít ég á það sem lang- tímasamband sem þarf í það minnsta að endast í nokkur ár. Ég veit alveg um menn sem skipta um bíl jafnvel oft á ári en þótt ég hefði efni á að kaupa mér nýtt módel árlega – sem ég hef ekki – þá er þetta eitthvað sem ég væri á móti.“ Um gamla Volvoinn segir Þráinn að hann hafi helst minnt á þægilegan traktor á hjólum. „Þetta var ekki skemmtilegur bíll þótt hann hafi ver- ið öruggur, rúmgóður og þægilegur í akstri úti á vegum. En alltaf var hann lasinn og smábilanir sífellt að herja á hann. Bíllinn var ökufær en aldrei al- veg laus við bilanir og var nánast eins og hann kynni betur við sig á verk- stæði en á götunni.“ Spurður hvers vegna Þráinn lét sig þó hafa það að aka sænska skutbíln- um í tuttugu ár segir hann að Volvo- inn hafi verið annar af aðeins tveimur bílum sem hann keypti nýja á allri lífsleiðinni. „Því fannst mér að ég væri skyldugur að athuga hvað þetta fyrirbæri gæti enst lengi, en ef til vill var grundvallarástæðan að ég hafði alltaf á tilfinningunni að ég væri eins öruggur í þessum bíl og yfirleitt er hægt að vera í bifreið. Ég gafst svo upp eftir þessi tuttugu ár en það get- ur vel verið að bíllinn sé enn í notkun einhvers staðar enda öflugir bílar og smíðaðir úr góðu stáli.“ Bílar eru eins og föt Í dag ekur Þráinn um á Lexus RX 350 sportjeppa, árgerð 2007, sem hann eignaðist fyrir þremur árum og kostaði þá á við nýjan Yaris. „Þessi Lexus er í sérflokki; fallegur, þægi- legur og vel hannaður, og eiginlega allt of fínn fyrir mig því ég geng ekk- ert vel um svona tæki sem ég nota dags daglega. Ég umgengst bílana mína eins og fötin mín og lít á þá sem nytjahluti þótt ég hafi líka gaman af að pæla í þeim sem bæði listmunum og tækniundrum.“ Inntur eftir því hvort honum þætti ekki gaman að vera á ögn nýrri Lex- us segist Þráinn ekki kunna að meta þá stefnu sem útlitshönnun japanska lúxusbílaframleiðandans hefur tekið alveg upp á það síðasta. Þá sé enginn vandi að aka um á rösklega tíu ára gömlum Lexus enda þjónustan hjá umboðinu fyrsta flokks. Svakalegar veltur við tökur Bílar hafa komið við sögu með ýmsum hætti í bókum og kvikmynd- um Þráins. Stendur þar upp úr bíla- eltingarleikurinn í Löggulífi sem var sá fyrsti í íslenskri kvikmyndasögu. Þráinn segir það hafa verið af- skaplega skemmtilega lífsreynslu að mynda eltingarleikinn þótt oft hafi hann verið logandi hræddur um að ökumennirnir færu sér að voða: „Við nutum velvilja lögreglunnar þótt við fengjum ekki beina aðstoð, og tókum kappaksturinn meira eða minna upp í leyfisleysi. Þar sem á þurfti að halda lokuðum við götum si- svona upp á okkar einsdæmi en í kvikmyndinni berst kappaksturinn fljótlega á svæði með tiltölulega lítilli bílaumferð, s.s. niður tröppurnar við Austurbæjarskóla, gegnum Heilsu- verndarstöðina og á endanum til Reykjavíkurhafnar,“ segir hann. „Og þegar áhættubílstjórarnir hvolfdu bílunum saup ég hveljur og hugsaði með mér hvort ég væri endanlega orðinn geðveikur að standa að öðru eins – en þeir skriðu hlæjandi út úr bílflökunum og allt fór vel að lokum.“ Að eiga bíl á að vera lang- tímasamband Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Draumabílskúr Þráins Bertelssonar Þráinn með undrahundinum Theobald. „Ég veit alveg um menn sem skipta um bíl jafn- vel oft á ári en þótt ég hefði efni á að kaupa mér nýtt módel árlega – sem ég hef ekki – þá er þetta eitthvað sem ég væri á móti.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.