Morgunblaðið - 17.11.2020, Page 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ
JEPPADEKK
OG FELGUR
DEKKJAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR Í SÍMA 540 4900
Vönduð amerísk jeppadekk sem henta
frábærlega fyrir íslenskar aðstæður.
Stærðir 29 - 44”.
KANNAÐU ÚRVALIÐ! VERSLUN.ARCTICTRUCKS.IS
Arctic Trucks Ísland ehf Kletthálsi 3 110 Reykjavík Sími: 540 4900 Netfang: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.is
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Þ
að fyrsta sem vakti athygli
við aksturinn var hversu
mjúkur hann var. Rétt
eins og fyrri kynslóðir er
þessi sprækur á veginum, bíllinn
lipur og viðbragðsfljótur og stýr-
ingin góð. Bíllinn er sem fyrr létt-
ur, aðeins rétt rúmlega eitt tonn
eða svo, og þess vegna mjög líf-
legur í akstri eins og við er að bú-
ast.
Sá sem þetta ritar hefur ekki átt
jafnlítinn smábíl og það kom því
ánægjulega á óvart hversu auðvelt
reyndist að leggja Yaris í þröng
stæði miðborgarinnar. Knappur
beygjuradíus bílsins og bakk-
myndavél komu þar vitaskuld einn-
ig að góðum notum.
Yaris kom fyrst fram á sjónar-
sviðið árið 1999 og var frumsýndur
á Íslandi í mars það ár. Bíllinn sló
rækilega í gegn frá fyrsta degi og
markaði það upphafið að velgengn-
inni á íslenskum bílamarkaði sem
stendur enn, en alls hafa 14.074
Yarisar verið skráðir hér á landi og
af þeim eru um 11.600 bílar enn í
notkun.
Innblástur í Japan
Toyota hefur ekki tekið vinsæld-
um Yaris sem sjálfsögðum hlut
með því að höggva í sama knérunn
frá því um síðustu aldamót er saga
og sigurganga Yaris hófst. Þvert á
móti hefur bíllinn tekið stórstígum
breytingum gegnum árin og hefur
vegferðin að mestu verið farsæl.
Samhliða nýja byggingarlaginu
hefur Yaris að þessu sinni nýtt út-
lit út á við. Með ávölum línum og
gljáandi áferð sækir hann inn-
blástur til japönsku kuromame-
baunarinnar. Eða svo segir að
minnsta kosti í bæklingnum. Og
lögunin minnir óneitanlega á slíka
baun. En það sem meira máli
skiptir er að þessi útlitsbreyting
heppnast alls ekki svo illa. Bíllinn
er í það minnsta mun nútímalegri í
útliti en kynslóðin sem á undan
kom. Ef til vill eðlileg krafa, en
dæmin hafa sýnt að slíkar yfirhaln-
ingar á útliti lukkast ekki í hvert
sinn.
Hleður rafhlöðurnar sjálfur
Eins og áður sagði er bíllinn
hannaður eftir svonefndri TNGA-
hönnunarstefnu Toyota. Nýr Yaris
er í boði með þrenns konar vélum:
1,0 lítra og þriggja strokka og
nýrri 1,5 lítra og þriggja strokka,
með eða án tvinnkerfis. Fæst hann
einnig í nokkrum útfærslum og
auðvelt virðist að sníða þessa baun
að þörfum hvers og eins.
Athygli þarf að vekja á því að
rétt eins og margir aðrir tvinnbílar
framleiðandans stingur maður
þessum ekki í samband, heldur
hleður hann rafhlöðurnar með
akstrinum sjálfum. Það er ef til vill
þess vegna sem maður getur ekki
farið mjög hratt áður en bens-
ínvélin tekur við af rafmagninu. En
fram að því rennur hann ljúft og
hljóðlega áfram.
Kraftmikill verður bíllinn seint
sagður en samt sem áður tekur
hann vel við sér þegar gefið er í, í
miðjum akstri, og bensínvélin tek-
ur vissulega snurðulaust við af raf-
hleðslunni.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nýja baunin lipur og létt
Það telst alltaf til tíðinda þegar japanski bílaframleiðandinn Toyota kynnir nýja kynslóð af vinsæla smábílnum Yaris. Bíllinn
hefur nú verið hannaður upp á nýtt frá grunni, með nýju heildrænu byggingarlagi framleiðandans sem gengur á ensku undir
skammstöfuninni TNGA. Þessi nýjasta kynslóð barst á strendur Íslands fyrr í haust fyrir tilstilli Toyota-umboðsins.
Hönnuðir Toyota notuðu kuro-
mame-baunina sem innblástur
þegar útlit nýja Yaris var mótað.