Morgunblaðið - 17.11.2020, Page 12

Morgunblaðið - 17.11.2020, Page 12
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is H já Brimborg má nú finna Mazda-bifreið sem er knúin áfram af 100% rafmagni, Mazda MX-30, sem er fyrsti hreini rafbíll- inn frá framleiðandanum. Blaða- maður prófaði ódýrustu útgáfuna, Sky, og keyrði um götur borg- arinnar í sól, roki, rigningu og að lokum hagléli. Allt á einum degi; sannkölluð íslensk veðrátta. Minnir á jeppling Það fyrsta sem kona tekur eftir við bíla er útlitið, að minnsta kosti undirrituð. Mazda MX-30 er nett- ur og töff að utan, vel hannaður og ekkert sem truflar augað. Hann minnir á jeppling í útliti, nema í minni útgáfu. Það er hægt að fá hann í nokkrum litum, en þessi hvíti sem blaðamaður prófaði var ansi smart með svörtu þaki. Að innan er hann líka nokkuð huggulegur og sætin þægileg. Þó mæli ég ekki með MX-30 fyrir fólk í stærri kantinum; sætið rétt rúm- aði minn meðalstóra rass. Sætið er nefnilega með bríkum á köntunum og ef maður passar ekki þar á milli, situr maður á brík, sem er ekki þægilegt. Það er ekki hiti í sætum og þau eru ekki rafknúin, sem er í sjálfu sér ekki stórmál, þótt ég myndi alltaf kjósa það. Það er auðvitað hægt að fá meiri lúxus ef maður borgar fyrir. Hægt er að fá dýrari útgáfur, First Edition og Cosmo, með hita í sætum og mörgum fleiri kostum. En Sky- útgáfan er að minnsta kosti búin þeim lúxus að í bílnum er forhitari sem hægt er að tímastilla og hafa hann þannig heitan og góðan á köldum vetrarmorgnum. Góð veghæð Tveir skjáir eru í bílnum, fyrir utan mælaborðið sem mætti kalla skjá líka. Annar skjárinn er of- arlega við framrúðu og þar má sjá leiðsögukerfi, kerfi fyrir símann og tónlistarmöguleika. Til að stjórna skjánum er hringlaga takki á milli sæta og annar minni til að hækka og lækka í græjunum. Mjög þægilegt er að stjórna með þessum tökkum og það tók stutta stund að uppgötva hvernig þeir virka. Hinn skjárinn er neðar og sýnir hitastillingar bílsins. Á milli sæt- anna má svo finna tvö hólf fyrir flöskur eða kaffibolla, og góður púði er þar til að hvíla handlegginn. Undir þessu, nánast við fætur manns, er geymslurými fyrir dót, sem er kannski undarlegur staður, en nýtir vel plássið. Þröngt er aftur í og myndi ég segja að sætin þar væru tilvalin fyrir börn sem komin eru úr bíl- stólum og hafa ekki enn náð fullri hæð. Til að komast aftur í þarf að opna litla hurð sem opnast í öfuga átt við bílstjórahurð og hjálpar vissulega til við að komast inn í bíl- inn. Fyrir fullorðna manneskju er samt svolítið erfitt að troða sér þar Umhverfisvænn og með lúkkið í lagi Mazda MX-30 er nýr 100% rafmagnsbíll. Hann er sportlegur, smart, þægilegur í akstri og hentar vel til notkunar innanbæjar. Mazda MX-30 minnir á jeppling en er þó fólksbíll. Straumlínuleg hönnunin er vel heppnuð. Morgunblaðið/Ásdís Hægt er að opna afturdyrnar sem gerir aðgengi betra til að komast aftur í. Mazda MX-30 er 100% rafmagnsbíll og tekur ekki langan tíma að hlaða. Takkarnir á milli sæta eru afar þægilegir í notkun. 12 | MORGUNBLAÐIÐ » 35,5 kWst rafhlaða » 145 ha. rafvél » Framdrifinn » 0-100 km/klst. á 9,7 sek. » Hámarskhraði: 140 km/klst. » Allt að 265 km drægni innanbæjar » Eigin þyngd: 1.750 kg » Stærð farangursrýmis: 366 lítrar, stækkanlegt Umboð: Brimborg » Grunnverð: 4.090.000 kr. » Verð eins og prófaður: 4.090.000 kr. Mazda MX-30 Sky Mazda MX-30 er töff, sportlegur og umhverfisvænn. Hann hentar vel í daglegan borgarakstur, enda léttur og lipur í bíll akstri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.