Bæjarins besta - 04.01.1990, Qupperneq 1
Skálavík um helqina
Pöbbinn opinn föstudags-
kvöld og laugardagskvöld
kl. 21 - 2330.
Aldurstakmark 18 ár.
SKALAVIK
Bolungarvík 0 7130
Hraðfrystihús Patreksfjarðar.
Patreksfjörður:
Menntaskólinn á ísafirði:
Útskrifaði stúdent
um áramót
MENNTASKÓLINN á
ísafirði hefur frá upp-
hafi útskrifað stúdenta að
vori en undantekningar hafa
þó orðið á því þegar öldungar
hafa lokið námi um áramót.
Aðalheiður Sigurðardóttir,
sem stundað hefur nám við
Iðnskólann, dagdeild
menntaskólans og einnig
öldungadeild sl. fimm ár,
fékk hvíta kollinn þann 22.
desember og útskrifaðist
með ágætiseinkunn.
Endurtektarpróf í
Menntaskólanum fara fram
8. - 9. janúar og að sögn
Björns Teitssonar skóla-
meistara eru það svipað
margir og fyrri ár sem þarf
að gera tvær tilraunir til að
ná prófum. Sem fyrr þurfa
margir fyrsta árs nema að
þreyta endurtektarprdf til að
ná tilskilinni einkunn til
áframhaldandi náms og er
þar stærðfræðin mörgum
fjötur um fót.
Frystihúsið í gang afftur
eftir 1-2 mánuði
FYRIRTÆKIÐ Oddi h.f.
á Patreksfirði gekk frá
samningum við Fiskveiða-
sjóð um kaup á Hraðfrysti-
húsið Patreksfjarðar þann
29. desember sl. og gengið
verður frá kaupum á tog-
skipinu Patreki á næstu dög-
um. Kaupverð frystihússins
er 165 milljónir og skipsins
52 milljónir.
Mestur hluti verðs skipsins
er greiddur með yfirtöku á
skuldum en samanlagt þurfa
IÞRÓTTAMAÐUR ársins
verður heiðraður á Hótel
ísafirði kl. 20. 30 annað
kvöld.
Sá sem fyrir valinu verður
hlýtur farandbikar að laun-
um og viðurkenningarstyrk.
Auk hans verða heiðraðir
Oddamenn að borga út fyrir
húsið og skipið um 75 millj-
ónir króna á árinu. Að sögn
Sigurðar Viggóssonar fram-
kvæmdastjóra Odda hefur fé
verið tryggt til greiðslu á
þessarri útborgun.
Ákveðið hefur verið að
stækka fyrirtækið Odda og
opna það sem almennings-
hlutafélag í framhaldi af
þessu í samstarfi við sveitar-
félagið og hlutafjársjóð.
Hlutafé þess verður aukið
íþróttamenn í ýmsum grein-
um. Þetta verður í níunda
sinn sem íþróttamaður ársins
er valinn á ísafirði og þess
má geta að í fyrra varð Einar
Ólafsson skíðamaður fyrir
valinu í fimmta skiptið.
um allt að 200 milljónir
króna. Oddi hefur til þessa
verið í eigu fárra og hefur
Jón Magnússon skipstjóri
verið aðaleigandi.
Sigurður sagðist búast við
því það tæki einn til tvo mán-
uði að koma vinnslu í frysti-
húsinu í gang. Þrymur fer í
slipp í Reykjavík um miðjan
janúar og verður þar í 2-3
vikur. Steinbítsvertíðin hefst
um miðjan mars og stefnt er
að því að vinnsla geti hafist
fyrir það. ,,Við ætlum að
vinna þetta eins hagkvæmt
og hægt er og þetta tekur
þennan tíma“ sagði Sigurð-
ur. „Það þarf að bæta við
vinnslulínu í húsið og
fleiru."
Sigurður kvaðst ekki búast
við fullum rekstri frá byrjun
þar sem enn þyrfti að bæta
hráefnisþáttinn og það gætu
liðið nokkuð margir mánuðir
þar til það tekst að bæta við
skipakostinn. ,,Það er að
minnsta kosti mun bjartara
fram undan þetta árið en það
síðasta" sagði hann.
Því má svo bæta við að
skipið Lýtingur frá Nes-
kaupsstað^, sem keypt var
af Seljavík á Patreksfjörð, ér
komið til sinnar nýju heima-
hafnar og ber nú heitið Vig-
dís BA 77.
ísafjörður:
Iþróttamaður
ársins
Sesselja Guðjónsdóttir, 8 ára, hlaut aðalvinninginn í um-
ferðargetrauninni, stól sem gefinn var af Vöruval og Hús-
gagnaloftinu. Hjá henni standa Grétar Sigurðsson verslunar-
stjóri Húsgagnaloftsins og lögreglumennirnir Gísli B.
Árnason og Páll Sigurösson.
Jólagetraun lögreglunnar:
Átta ára vinningshafi
DREGIÐ var úr réttum
lausnum umferðarget-
raunar lögreglunnar og Um-
ferðarráðs á Þorláksmessu
og kom aðalvinningurinn,
stóll sem gefinn var af Hús-
gagnaloftinu og Vöruval, í
hlut Sesselju Guðjónsdóttur,
átta ára, Túngötu 20 á ísa-
firði.
Alls bárust 272 úrlausnir
úr umdæmi lögreglunnar í
ísafjarðarsýslu og þar af
voru 181 rétt. Úr þeim voru
dregnir út 60 vinningshafar
sem hlutu leikföng að laun-
um og var þeim ekið til barn-
anna á aðfangadag. Þátt
tóku 6-12 ára börn og er get-
raun þessi tengd umferðar-
fræðslu sem fram fer í grunn-
skólunum í samvinnu við
Umferðarráð og lögregluna.