Bæjarins besta


Bæjarins besta - 04.01.1990, Blaðsíða 7

Bæjarins besta - 04.01.1990, Blaðsíða 7
BÆJARINS BESTA ir fyrir is 1990 ylgd spákonu. íti sér? í skauti sér. Hvernig skyldi ia áfram, munu koma læknar Jækur í skyndihjálp? Svör við firðingum um áramót hefur anna á þessum árstíma, (sem lu og nefnir sig hér því Völu ti og fræðist um framtíðina: þessir vekja auðvitað feikna athygli, gott ef ekki heimsat- hygli, (kominn tími til að við kæmumst í pressuna!) og hingað streyma fjölmiðla- menn í tugatali. ffver endir- inn verður á þessarri bann- settri vitleysu allri sé ég ekki, skyggnið í kúlunni er farið að minnka, sennilega verður mikil þoka á miðun- um seint á árinu. Ég sé þó að rækjutogari, sem áður var í Gæslunni, er útbúinn til hernaðar á ný og skilar útgerð sinni nú mun meiri gróða en áður.“ Togari sagaður í tvennt Þetta var ansi hreint fróð- legt og við biðjum Völu nú að færa sig frá stormasömum miðunum úti fyrir Vestfjörð- um og upp á land. Hvað get- ur hún sagt okkur af afkomu fyrirtækjanna í sjávarútveg- inum, t.d. kaupfélögunum og frystihúsunum? Hún dregur nú upp úr innkaupa- poka stórt SÍS-merki og fjar- lægir netakúluna. Þuklar merkið, lygnir aftur augun- um og tekur til máls á ný: ,,Hér finn ég einhverja skítalykt en litla peninga- lykt. Nú, jæja: Það er auð- vitað alveg brjálað að gera í fiskinum á meðan sjómenn- irnir moka aflanum á land en einhverjir þrjóskast áfram við að gjalda keisaranum það sem hans er og sýsli fer eitthvað á stúfana. Á ákveðnum stað, ekki hér langt frá, er ákveðið að setja upp vinduhurðir á allar inn- gönguleiðir í fyrirtækinu þannig að fljótlegt er að opna aftur þó lokað sé öðru hverju. Á einum stað, þar sem gerður er út einn og hálfur togari, (ég nefni engin nöfn hér heldur), er rifist um hvort selja eigi hálfan togara til viðbótar eður ei og lýkur málinu á mjög afdrifaríkan hátt þegar eigendur fremri helmingsins saga togarann í sundur og fara með sinn helming heim til sín í annað bæjarfélag. Rækjuverkandi prentar ríkisvíxla Sunnar á kjálkanum færist líf á nýjan leik í annars frem- ur dauflegt atvinnulíf þegar bæjarfélaginu berst óvænt austfirskur togari sem tekinn er herfangi í kvótastríðinu á miðunum. Bæjarbúar taka gleði sína á ný, fara að for- dæmi annarra Vestfirðinga og sigla beint á miðin, kvóta- lausir og allslausir og mok- fiska í trássi við lýðveldið Is- iand, sem að þeirra mati, hefur fyrir löngu fyrirgert rétti sínum til að skipta sér af því sem gerist hér vestra.“ Og nú tekur Vala sér ör- litla málhvíld og leitar í vös- um sér að einhverju. Loks finnur hún það sem hún leit- ar að, ýtir burt SÍS-merkinu og leggur á borðið örlitla rækju: ,,Rækjan, já. Hér sé ég miklar breytingar líka. Snemma vors fer ákveðið fyrirtæki loks á hausinn eftir langa bið og það hlakkar í hrægömmunum. Eigandinn gefst þó ekki upp heldur hef- ur forgöngu um stofnun lánastofnunar Vestfjarða, þar sem allir bankarnir hætta að lána útgerðunum af hræðslu við liðið fyrir sunn- an sem er orðið alveg ga-ga út af kvótastríðinu. Hann lánar mörgum fullt af pen- ingum og græðir mikið, al- veg þar ti! í Ijós kemur að hann hefur leynt í kjallaran- um gamalli prentvél og prentað á hana ríkisvíxla sem hann hefur selt fyrir sunnan. Niðursuðubakka- stöðin stofnuð Aðrir rækjuverkendur, sem hafa fengið hjá honum lán, sjá sitt óvænna og sam- einast allir í eitt fyrirtæki í hvelli til að bjarga því sem bjargað verður. Fyrirtækið hlýtur nafnið Niðursuðu- bakkastöðin h.f. og í stjórn þess verða um tuttugu manns, þar af einn sem hlýt- ur stöðu sem sérstakur blaðafulltrúi þar eð hann hefur látið af störfum hjá hálfopinberri stofnun sem er hvort eð er því sem næst gjaldþrota." Bolís h.f. pumpar upp olíu Það er ljóst að Vala hefur mikla hæfileika og nú er rétt að spyrja um nýjar atvinnu- greinar sem hljóta að spretta upp við þennan mikla upp- gang. Hún stendur upp, gengur að lítilli kommóðu og gramsar þar smástund. Kem- ur síðan aftur með dollara- seðil í höndunum og rækj- unni er skutlað á gólfið: ,,Hér er mikil og góð pen- ingalykt. Gott ef ekki olíu- lykt. Já, nú skýrist þetta allt saman: Maður sem til þessa hefur verið nefnur J.F. tekur upp nýtt nafn og er nú nefnd- ur J.R. eftir að hann finndur djúpa olíulind í rótum Bola- fjalls. Hann stofnar fyrirtæk- ið Bolís h.f., pumpar upp olíu í massavfs, hættir við að flytja suður og selur bók- haldaranum sínum aðrar eig- ur sínar fyrir skít og kanel. Svartolía undir höfninni Seint á árinu, þegar loks er farið er að kanna hvað veldur olíumengun við Hafn- arhúsið á ísafirði, kemur í ljós að engar leiðslur leka, heldur eru svartolíulindir í setlögum undir höfninni og þá eru nú jólin og jólin hjá bæjarstjórninni. Gjaldeyrir berst einnig frá Grænlendingum sem kaupa upp allan loðnukvóta loðnu- togarans á Vestfjörðum, þar eð loðnan finnst ekki heldur á næsta ári og mun hún sennilega flytja búferlum á friðsælli mið.“ Þá vitum við það. En kosningar eru í vændum með vorinu og hver verða nú úr- slitin? Völvan verður hálf- gremjuleg á svip, segir að sér leiðist pólitík. Lætur þó til- leiðast og nær á endanum í stafrófskubba sem hún raðar á borðið. Safnað í púkk fyrir kjörseðlum ,,Ég sé fjölda bókstafa um allar jarðir. Bæði listabók- stafi og mikið af prentsvertu sem fyllir öll blöð svo út úr lekur kjaftæði og kosninga- loforð sem allir eru löngu hættir að taka mark á. Ekki tekst þó öllum flokkum að smala saman frambjóðend- um, bæði eru margir búnir að fá leið á skítkastinu og blönkum bæjarsjóðum og eru farnir á skak. Sumir eru þó ólmir í að sitja áfram og fara um allar trissur til að hrista hendur og kaupa atkvæði. Mikið er hamrað á fjármálum í kosn- ingabaráttunni og menn geta ómögulega komið sér saman um hverjum það er að kenna að ekki er til aur til að borga kosningarnar. Á endanum fara frambjóðendur í togara- túr og slá saman svo hægt sé að prenta kjörseðla. Urslitin sýnist mér verða svipuð um allt, kjósendur læra aldrei neitt af reynslunni og kjósa sinn flokk aftur, sem skiptir víst litlu því það er sami rass- inn undir þeim öllum.“ Hret fram eftir sumri Snúum okkur þá að veðr- áttunni, kemur snjórinn? (Athugið, viðtalið er tekið í byrjun desember.) Vala tek- ur upp litla kúlu með jóla- sveini og vatni og hristir hana duglega. Og sjá, niður falla snjókorn: „Eins og þú sérð góða, þá mun snjóa og það duglega, sérstaklega um jólin. Eg spái nokkrum hret- um fram eftir sumri þannig að hér verður hvorki vetur né sumar en það verður allt í lagi því þá eigum við svo mikla peninga eftir undan- gengin stórævintýri að við skellum okkur bara til Majorka og Kanarí.“ Nú, þá eru það samgöngu- málin og ferðamálin. Völvan hreinsar nú til af borðinu og dreifir síðan yfir það grjóti og möl. Tekur upp eina steinvölu og segir: ,,Já, ég sé hér að jarðgöng verða drifin af á ótrúlega skömmum tíma. Bolís h.f. lánar bora og nokkrir for- sprakkar úr verkalýðshreyf- ingunni, sem kunnir eru fyrir SUZUKI FOX TilsöluerSuzukiFox SJ410, árgerð 1984. Upphækkaður með 31” dekkjum. Upplýsingar í síma 3041 eða 3462. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýju við andlát og útför Sigríðar Bogadóttur Hlíðarstræti 6 Bolungarvík Margrét Eyjólfsdóttir - Jórt Karl Þórhailson - Áslaug Jóhannsdóttir Gunnar Jónsson - Gróa Guðjónsdóttir Guðjón Bjarnason - Ásthildur Ólafsdóttir Valur Karlsson - Gunnhildur Halldórsdóttir Ingþór Karlsson - Elísa Baldursdóttir Börn og barnabörn

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.