Morgunblaðið - 16.12.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Von um að viðspyrna aukist
Töluvert mörg ferðaþjónustufyrirtæki frestuðu staðgreiðslu og tryggingagjaldi
Allmörg fyrirtæki í ferðaþjónustu
frestuðu því að skila afdreginni stað-
greiðslu og tryggingagjaldi sem
voru á gjalddaga frá 1. apríl til 1.
desember sl., að sögn Jóhannesar
Þórs Skúlasonar, framkvæmda-
stjóra SAF. Hægt er að sækja um
lengri frest og fáist hann þarf að
inna greiðslurnar af hendi næsta
sumar.
„Ég tel að stærri fyrirtæki og
meðalstór með miklar launa-
greiðslur hafi nýtt sér þetta. En
hafa ber í huga að þeir sem nýttu
sér uppsagnarstyrki þurftu að
standa skil á þessu,“ sagði Jóhann-
es.
En verða fyrirtækin betur í stakk
búin að borga þetta næsta sumar?
„Fyrirtæki sem sér fram á að ná
ágætri háönn í sumar getur frestað
þessu vegna þess að starfsfólk er nú
fátt og lítið safnast upp af
greiðslum. Hins vegar er það sjón-
armið að frekari skuldasöfnun sé
ekki af hinu góða. Mjög stór hluti
fyrirtækja hefur safnað ósjálfbær-
um skuldum og þarf að taka á þeim.
Það er ekki gefið að það sé skyn-
samlegt að fá lengri frest, en mik-
ilvægt að möguleikinn sé fyrir hendi
fyrir þá sem þurfa að nýta sér
þetta,“ sagði Jóhannes.
Hann sagði að búið væri að segja
upp fjölda fólks í greininni. Launa-
tengd gjöld eru því minni baggi en
þau voru. Þegar nær dregur vori og
starfsfólki fjölgar aftur aukast þessi
gjöld á ný. Jóhannes kvaðst vona að
fyrirtækin gætu nýtt styrkjaleiðir
stjórnvalda m.a. til að standa skil á
þessum greiðslum.
Fjölbreyttur stuðningur
„Vonir okkar standa til þess að
viðspyrnan verði hafin næsta sum-
ar,“ sagði Óli Björn Kárason, for-
maður efnahags- og viðskiptanefnd-
ar Alþingis. Hann sagði að ekki
mætti gleyma því að hægt yrði að
dreifa greiðslunni á júní, júlí og
ágúst 2021. Það hlyti að skipta veru-
legu máli. Óli Björn kvaðst gera sér
grein fyrir því að einhver hluti þess-
ara greiðslna gæti mögulega tapast
vegna þess að fyrirtækin muni ekki
öll lifa hremmingarnar af.
Eftir 1. desember 2020 var ekki
lengur hægt að fresta greiðslu af-
dreginnar staðgreiðslu og trygg-
ingagjalds. Eru fyrirtækin eitthvað
betur stödd til að greiða það nú?
„Frá því að þetta úrræði var
kynnt til sögunnar hefur verið gripið
til ýmissa aðgerða til að létta undir
og aðstoða fyrirtækin, hvort heldur
það eru tekjufallsstyrkir, viðnáms-
styrkir, stuðningslán o.s.frv. Svo er
greiðsluskjól annað úrræði. Þetta er
orðinn mjög víðtækur og öflugur
stuðningur við fyrirtækin. Vonandi
dugar hann flestum,“ sagði Óli
Björn.
Hann sagði að Alþingi fjallaði nú
um frumvarp um viðspyrnustyrki
sem myndu skipta fyrirtækin miklu
máli. Þeir eiga að gilda frá nóvem-
ber síðastliðnum og til loka maí
2021. Viðspyrnustyrkirnir eiga að
taka við af tekjufallsstyrkjum til fyr-
irtækja sem hafa orðið fyrir veru-
legum tekjumissi vegna kórónu-
veirufaraldursins.
gudni@mbl.is
Óli Björn
Kárason
Jóhannes Þór
Skúlason
Minnstu mátti muna að illa færi ef
marka má orð Marínar Guðrúnar
Hrafnsdóttur sem lenti í hremming-
um ásamt fjölskyldu sinni þegar hún
ók að norðan til Reykjavíkur á mánu-
dag. Blæðing í klæðingu hlóðst á bíl-
dekkin. „Við þökkum fyrir að hafa
ekki lent í slysi enda hrikalega erfitt
að keyra með hálfan þjóðveginn á
dekkjunum. Við komum við á verk-
stæði á Hvammstanga en það var lít-
ið hægt að gera og dekkin söfnuðu
þykku lagi strax aftur. […] Þegar
maður mætti vöruflutningabílum
spýttust hnullungar af malbiki á bíl-
inn,“ segir Marín á FB.
Vegagerðin hyggst bæta öku-
mönnum það tjón sem hlotist hefur
af blæðingum í klæðingu á fjölmörg-
um stöðum frá Borgarnesi að Öxna-
dalsheiði. Á það bæði við um þrif og
tjón eftir atvikum. Á þetta sérstak-
lega við um þá sem urðu fyrir tjóni
áður en tilkynning um blæðingu í
klæðningu barst. Vegagerðin hvetur
alla tjónþola til að fylla út tjóna-
skýrslu.
Fylli út tjónaskýrslur
G. Pétur Matthíasson, upplýsinga-
fulltrúi Vegagerðarinnar, segir að
blæðingin í klæðingunni líti út fyrir
að vera meiri en áður hefur sést.
„Lögin segja að á meðan við höfum
ekki tilkynnt það eða merkt það þá
sé ábyrgðin Vegagerðarinnar,“ segir
G. Pétur. Hann hvetur þá sem telja
sig hafa orðið fyrir tjóni að fylla út
tjónaskýrslu á vef Vegagerðarinnar.
„Erfitt að keyra með hálfan
þjóðveginn á dekkjunum “
Vegagerðin hyggst bæta tjón bifreiða og greiða fyrir þrif
Tóm tjara Margir bílar urðu fyrir
tjóni eftir blæðingu á þjóðveginum.
„Þetta veður sem
hefur verið
ríkjandi und-
anfarið mun
halda eitthvað
áfram út vikuna,“
segir Einar
Sveinbjörnsson,
veðurfræðingur
hjá Bliku, í sam-
tali við Morgun-
blaðið.
Hann segir nokkurn fyrirsjáan-
leika í veðrinu þessa dagana. „Það
verða ekki snöggar sveiflur við þess-
ar aðstæður,“ segir Einar og bætir
við að breytingar muni eiga sér að-
draganda.
Kólnar og éljagangur
Einar segir að kólna muni í veðri
og gera éljagang um landið norðan-
vert og Austfirði eftir helgi. Meiri
spurning sé með Suðausturlandið.
Hann segir spána áreiðanlega fram í
miðja næstu viku, en þá er Þorláks-
messa. Litlar líkur séu á úrkomu á
Suður-, Suðvestur- og Vesturlandi á
meðan landvindur er. Einnig bætir
hann því við að á sömu svæðum sé
ólíklegt að snjói um jólin, einu lík-
urnar á því stafi aðeins af óvissu.
„Það yrði ekki fyrr en í fyrsta lagi á
jóladag og líklega ekki fyrr en annan
í jólum ef úrkoma kemur, en það
gæti vel orðið bara rigning,“ sagði
Einar. Líkur eru því á rauðum jólum
á höfuðborgarsvæðinu.
karitas@mbl.is
Hvít jól á
Norður- og
Austurlandi
Einar
Sveinbjörnsson
Ekki snöggar
sveiflur á næstunni
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð-
inu hafa tekið sameiginlega ákvörð-
un um að halda engar brennur um
áramótin í ljósi aðstæðna. Þetta var
tilkynnt í gær á vef Reykjavíkur-
borgar. Var ákvörðunin tekin á fundi
allra sveitarfélaganna síðastliðinn
föstudag í ljósi þess að fjöldatak-
markanir vegna sóttvarnaaðgerða
miðast við 10 manns.
Segir í tilkynningunni að mikil-
vægt sé að sveitarfélögin séu ekki að
hvetja til hópamyndunar og að allir
þurfi að vinna saman að því að
fækka smitum. „Höldum okkur við
„jólakúlurnar“ okkar og forðumst
mannmergð. Við getum gert þetta
saman, samstaða er besta sóttvarna-
aðgerðin,“ segir í tilkynningunni.
Engar brenn-
ur um áramót
Freyr Bjarnason
freyr@mbl.is
Rýma þurfti íbúðar- og atvinnuhús-
næði í fjórum götum á Seyðisfirði í
gær vegna aurflóða, en ríkislög-
reglustjóri lýsti yfir óvissustigi al-
mannavarna í bænum eftir að tvær
aurskriður féllu úr Botnum með
skömmu millibili. Önnur skriðan fór
niður í Botnahlíð og hin á Austur-
veg. Að minnsta kosti ein aurskriða
til viðbótar féll svo um hálf-níuleytið
í gærkvöldi. Hún náði niður að
tveimur húsum sem þegar var búið
að rýma.
Engin slys urðu á fólki vegna aur-
flóðanna, en önnur skriðan náði að
tveimur húsum að minnsta kosti og
flæddi inn í nokkur önnur, sam-
kvæmt tilkynningu frá lögreglunni á
Austurlandi. Sagði þar einnig að
óvíst væri með skemmdir en að það
ætti að skýrast betur í dag.
Rýmdu svæðið á 45 mínútum
Mikil úrkoma hefur verið fyrir
austan undanfarna daga og gerir
veðurspáin ráð fyrir að rigningin
muni halda áfram fram að helgi.
Sagði í tilkynningu lögreglunnar að
óvíst væri hvenær íbúarnir gætu
snúið aftur til síns heima, en staðan
verður metin í dag.
Björgunarsveitir sáu um að rýma
þau hús sem þurfti vegna hættunn-
ar, og tók verkefnið um 45 mínútur.
Var allri rýmingu lokið um fimm-
leytið í gær. Þegar mest lét höfðust á
bilinu 40-50 manns við í fjöldahjálp-
arstöð Rauða krossins, sem sett var
upp í félagsheimilinu Herðubreið á
Seyðisfirði.
Jón Brynjar Birgisson, sviðsstjóri
innanlandssviðs hjá Rauða krossin-
um, reiknaði með því í samtali við
mbl.is í gær að flestir myndu finna
sér gistingu annars staðar í bænum
hjá vinum og vandamönnum, en að
fólk væri undirbúið fyrir það ef ein-
hverjir þyrftu að gista í hjálparstöð-
inni.
Skriðan komin upp að glugga
Diljá Jónsdóttir sem býr í Botna-
hlíð á Seyðisfirði sagðist í samtali við
mbl.is í gær telja að önnur aurskrið-
an sem féll á svæðinu í gær hefði
fyrst lent á sínu húsi og að skriðan
hefði verið komin upp að glugga hjá
sér áður en hún rýmdi húsið.
Diljá og maðurinn hennar hringdu
í lögregluna, sem mætti skömmu
síðar á staðinn. Eftir það tók hún
með sér tölvur, föt og köttinn og leit-
aði skjóls á hótelinu Öldunni sem
þau hjónin reka, en maður hennar
varð eftir til þess að byrgja glugga.
Fjórar götur rýmdar vegna aurflóða
Tvær aurskriður féllu á Seyðisfirði í gær Engin slys urðu á fólki Tugir
manna fóru á fjöldahjálparstöð Rauða krossins Meta umfang skemmda í dag
Ljósmynd/Diljá Jónsdóttir
Aurskriður Önnur skriðan fór upp að minnst tveimur húsum á Seyðisfirði.