Morgunblaðið - 16.12.2020, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2020FRÉTTIR
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
„Eftir að hafa séð hvernig Macron Store-verslanir
virkuðu í öðrum löndum ákváðum við að við taka
stökkið,“ segir Hafþór Hafliðason, annar eigenda
Macron Store á Íslandi. Vísar hann þar til opnunar
verslunarinnar á Íslandi, en í desember eru fimm
ár liðin frá því að ítalska vörumerkið kom fyrst
hingað til lands. Segja má að Macron Store hafi
komið eins og stormsveipur inn á markað íþrótta-
vöruverslana. Fyrirtækið gerði strax samninga við
fjölmenn íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu og
hefur vöxturinn frá þeim tíma verið stöðugur. Ný-
lega flutti Macron Store í stærra húsnæði í Skútu-
vogi, en þar áður hafði verslunin verið til húsa á
Grensásvegi.
Reka umboðsskrifstofu
Fyrirtækið er í eigu Hafþórs og Halldórs B.
Bergþórssonar. Óhætt er að fullyrða að þeir komi
úr ólíkum áttum, en Hafþór starfaði áður í banka-
geiranum og Halldór í markaðsstörfum. Þeir hafa
þó þekkst frá tíma sínum í Verzlunarskóla Íslands
og hafa síðustu ár rekið umboðsskrifstofuna
Sportic. Hafa þeir m.a. komið að sölu íslenskra
landsliðsmanna í atvinnumannalið erlendis. „Eftir
hrun var krónan mjög veik og þar af leiðandi mik-
ill hvati fyrir íslenskt íþróttafólk að komast til út-
landa í betra launaumhverfi. Við náðum á þessum
árum að koma mörgum út, til dæmis landsliðs-
mönnunum Arnóri Ingva, Hannesi Þór og Alfons
Sampsted. Við höfum svo sem ekki tekið það sam-
an en tekjurnar sem íslensk félagslið fengu hlaupa
á hundruðum milljóna,“ segir Hafþór.
Spurður hvernig hugmyndin að Macron Store
kviknaði segir Hafþór að upphaflega hafi ætlunin
verið að opna netverslun. „Á þessum árum fórum
við að taka eftir þessu ítalska íþróttamerki, Mac-
ron, sem okkur fannst vera að gera spennandi
hluti og vaxa hratt. Við höfðum samband við þá og
þeir tóku okkur opnum örmum. Þeir sögðu við
okkur að ef við ætluðum að fá umboðið yrðum við
að opna svokallaða Macron Store-verslun á Ís-
landi. Upphaflega hugmyndin okkar var að vera
einungis með netverslun. Það virkaði ekki sann-
færandi þegar við hittum íslensk félagslið með
fleiri hundruð iðkendur. Eftir að hafa séð hvernig
Macron Store-verslanir virkuðu í öðrum löndum
ákváðum við að taka stökkið og opnuðum á Grens-
ásvegi árið 2015,“ segir Hafþór og bætir við að
fyrst um sinn hafi viðskiptavinirnir fyrst og
fremst verið vinir og vandamenn. Það hafi þó fljótt
breyst. „Kúnnahópurinn jólin 2015 voru vinir og
vandamenn og einstaka fólk sem slysaðist inn í
verslunina, enda Grensásvegur ekki beint þekktur
sem blómleg verslunargata. HK var fyrsta liðið
sem samdi við okkur og Víkingur kom fljótlega í
kjölfarið. Síðan komu Valur og Fylkir og núna síð-
ast Njarðvík. Við segjum stundum í gamni að í
kringum árið 2016 hafi formleg kaupskylda vina
og vandamanna verið afnumin. Þá væri óhætt að
koma í kaffi án þess að fara út lestaður af vörum.“
Varnarsigur í erfiðu ástandi
Ljóst er að heimsfaraldur kórónuveiru hefur
haft slæm áhrif á rekstur fjölda fyrirtækja. Að-
spurður segist Hafþór ekki hafa farið varhluta af
ástandinu. Hins vegar hafi þeim með mikilli seiglu
tekist að komast í gegnum ástandið. „Eins og hjá
fleiri smásölum var höggið í vor mikið en með
áherslu á netverslun og aukinni heildsölu hefur
unnist ákveðinn varnarsigur,“ segir Hafþór og
tekur fram að engar tafir hafi verið í framleiðslu.
Þá hafi gengið mjög vel að fá vörur hingað til
lands.
Að sögn Hafþórs má áfram búast við vexti í sölu
á hlaupafatnaði og öðrum íþróttavörum næstu ár.
Segir hann að lögð verði sérstök á heildverslun hjá
Macron Store. „Á næstunni sjáum við aðallega
fram á vöxt í heildverslun ásamt sölu á hlaupafatn-
aði. Það var stór liður í því að flytja í stærra hús-
næði, að fá meira pláss fyrir hlaupa- og tískuvörur.
Hvað heildverslunina varðar er okkar markmið
ekki að gera samning við endalaust af liðum. Við
viljum vanda vel til verka og sinna hverju liði af
metnaði.“
Macron lætur að sér kveða
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Nú eru liðin fimm ár frá því að Macron
Store hóf rekstur á Íslandi. Fjölmörg
íþróttafélög hér á landi klæðast nú
búningum vörumerkisins.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Halldór er lengst til hægri á myndinni, en milli hans og Hafþórs er Ágeir Börkur Ásgeirsson, leikmaður HK. Til vinstri er Hróðmar, starfsmaður í verslun.
Bergþór Karlsson, framkvæmda-
stjóri Bílaleigu Akureyrar, segir
fyrirhugaða lækkun á vörugjöldum
munu hafa mikla þýðingu fyrir
endurnýjun bílaleiguflotans og flýta
orkuskiptum. Til stendur að veita
leigunum afslátt af vörugjöldum á
bíla 2021 og 2022.
„Fyrir kórónuveirufaraldurinn
hafði hagnaður í
bílaleigugreininni
hrunið síðustu ár,
sem má m.a.
rekja til lægri
tekna af útleigu,
falls WOW air,
hækkandi
rekstrar-
kostnaðar og af-
náms afsláttar af
vörugjöldum svo fáein dæmi séu
nefnd. Þá hefur fjárfesting dregist
verulega saman og bílafloti bílaleiga
minnkað og elst. Eiginfjárhlutfall í
greininni er mjög lágt og hefur ný-
skráningum bílaleigubíla fækkað um
59,2% í ár vegna faraldursins. Því
gefur augaleið að endurnýjunar-
þörfin er orðin gríðarleg eftir árið í
ár og var hún mikil fyrir.“
Hjólin fari að snúast á nýju ári
Spurður hvort raunhæft sé að ís-
lenskar bílaleigur muni geta greitt
vörugjöld á næsta ári, í ljósi þess
mikla áfalls sem greinin hefur orðið
fyrir, segir Bergþór að það sé klár-
lega raunhæft „en auðvitað þurfi
ákveðnar forsendur að liggja fyrir“.
„Þetta ár hefur sannarlega verið
þungt en það má gera ráð fyrir að
hjólin geti farið að snúast að nýju á
öðrum ársfjórðungi 2021 með já-
kvæðum áhrifum á rekstrar-
umhverfi og fjárfestingargetu bíla-
leiga, ef rétt er haldið á spilunum.
Þessir hvatar þurfa þó að haldast í
hendur við opnun landamæra. Bíla-
leigur og önnur sambærileg ferða-
þjónustufyrirtæki eru rekin nær
eingöngu á afkomu sumarsins. Af
þeim sökum er mikilvægi sumarsins
gífurlegt fyrir greinina. Til að við-
spyrnan í ferðaþjónustunni geti haf-
ist er því bráðnauðsynlegt að landið
verði opnað fljótlega með fyrir-
sjáanlegum aðgerðum,“ segir Berg-
þór.
Bergþór kveðst aðspurður ekki
vita til þess að bílaleigur hafi stað-
fest pantanir fyrir 2021 en óneitan-
lega muni boðaðir hvatar hleypa lífi í
þær áætlanir. baldura@mbl.is
Léttir á
bílaleig-
unum
Bergþór
Karlsson