Morgunblaðið - 16.12.2020, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 16.12.2020, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2020 11FRÉTTIR Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666      Kæli- & frystiklefar í öllum stærðum Í vor tók Vigdís Jóhannsdóttir við nýju starfi sem markaðsstjóri Stafræns Íslands. Verkefnið heyrir undir fjármála- og efna- hagsráðuneytið og hefur það hlutverk að bæta stafræna þjón- ustu hins opinbera. Hverjar eru helstu áskor- anirnar í rekstrinum þessi misserin? Við stöndum frammi fyrir ein- hverju stærsta breytingastjórn- unarverkefni sem við höfum þurft að horfast í augu við. Breytingar sem eru búnar að vera á leiðinni lengi en aðstæður hafa sýnt að þær eru gerlegar. Við þurfum að hafa þor til að gera breytingar og þor til að gera mistök – því af þeim lærum við mest. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Ég reyni markvisst að fara út fyrir eigin ramma eins mikið og ég get. Það geri ég helst með því að sækja ráðstefnur, lesa bækur og hlusta á hlaðvörp. Söguleg, al- þjóðleg sem og samtöl við áhuga- vert fólk. Þegar ég vel mér bæk- ur snúa þær að stjórnun sem og ævisögum áhugaverðs fólk sem ég lít upp til. Stundum líka þeirra sem ég lít ekki upp til í von um að læra af þeirra mistökum. Ég hóf meistaranám í alþjóða- samskiptum í byrjun árs. Nám sem er langt út fyrir allt sem ég hef gert hingað til og naut þess að verkja í heilann sökum vaxta- verkja. Er í smá hléi núna en hlakka til að finna tíma til að taka eitt og eitt fag. Hugsarðu vel um líkamann? Eins og svo margir þá hreyfi ég mig ekki næstum því eins mikið og ég vildi. Vinn allt of mikið til þess. Það er fátt sem ég nýt meira en að fara í sund, nýt þess að fara í langar göngur, spila golf og tennis. Finnst allt of margt skemmtilegt til að geta valið eitthvað eitt enda elska ég fjölbreytni. Það sama á við um mataræði. Ég trúi að með fjöl- breyttri hreyfingu og mataræði næri maður bæði líkama og sál. Bý á heimsins besta veitingastað þar sem ég sé um að gera mat- seðilinn. Ekkert endilega það allra hollasta, en fjölbreyttur matur eldaður frá grunni. Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa? Draumastarfið væri að halda úti viðtalsþáttum. Ég er forvitin um fólk, alls konar fólk. Hvaðan það kemur og hvers vegna það er eins og það er. Væri til í að ferðast um landið og heiminn all- an og taka viðtöl við alls konar áhugavert fólk. Ég trúi því að við eigum öll svo miklu meira sam- eiginlegt en okkur grunar og ef við myndum bara hlusta betur þá væri allt betra. Hvaða kosti og galla sérðu við rekstrarumhverfið? Við stöndum á tímamótum mik- illa breytinga. Breytinga sem þegar voru hafnar en árið 2020 hefur ýtt við ýmsu og afhjúpað margt. Það er verið að rífa ofan af ýmsu sem hefur verið plástrað sem gefur ýmis tækifæri í að bæta rekstrarumhverfi með auknum sveigjanleika og fram- legð. Svigrúm til að láta á reyna og gera mistök hefur aukist en það er þannig sem okkur mun takast að gera betur. Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi? Ég fæ orkuna mína frá öðru fólki. Samtali og samstarfi bæði í vinnu og utan þannig að þessir tímar hafa verið mér eins og svo mörgum mikil áskorun. Í þessu ástandi hafa langir göngutúrar með hundinn með hlaðvarp eða bók í eyrunum gefið mér mikið. Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráð í einn dag? Ég myndi setja af stað mark- vissa vinnu við að yfirfara öll lög. Við búum við góðan grunn en allt of víða er að finna orðalag sem hamlar framþróun enda skrifað á öðrum tímum. Með markvissri yf- irferð og vinnu við að aðlaga lög- in í landinu ekki aðeins að nú- tímasamfélaginu heldur samfélaginu sem við viljum til framtíðar má hraða þeim breyt- ingum sem þurfa að eiga sér stað fyrir réttlátara og betra sam- félag. Við getum alltaf bætt okk- ur. SVIPMYND Vigdís Jóhannsdóttir markaðsstjóri Stafræns Íslands. Mætti bæta lögin með markvissri yfirferð Morgunblaðið/Eggert NÁM: Fjölbrautaskóli Suðurnesja. Eðlisfræðibraut, 1996; Há- skólinn í Rvk., viðskiptafræði með áherslu á stjórnun 2006; leið- togaþjálfun TBWA. Hóf meistaranám í alþjóðasamskiptum, meðfram vinnu, við HÍ vorið 2020. STÖRF: Markaðsfulltrúi hjá 365/Íslenska útvarpsfélaginu 1999- 2005; dagskrárgerð Stöð 2 2002-2004; kynningarstjóri Útvarps 365 2005-2007; ráðgjafi hjá Pipar\TBWA 2009-2016; kosn- ingastjóri Höllu Tómasdóttur 2016; aðstoðarframkv.stjóri Pip- ar\TBWA 2016-2019; markaðsstjóri hjá Stafrænu Íslandi síðan vorið 2020. Stjórnarformaður Hannesarholts. Sit í stjórn FKA og hef verið félagi til fjölda ára. ÁHUGAMÁL: Nýt mín í golfi, göngum, tennis, á ferðalögum og í góðra vina hópi. Ég stekk til í flest þegar færi gefst en síðustu ár- in hafa farið að mestu í heimilið og fjölskyldu ef ég er ekki í vinnu. FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift hljóðhönnuðinum og tónlistarmann- inum Bigga Tryggva og saman eigum við fjögur börn, þar af tvö sem ég fékk í forgjöf. Ég er reyndar ekki viss að þau væru sátt við að vera kölluð börn lengur enda sá yngsti 13 ára. HIN HLIÐIN GREIÐSLUKORTAVIÐSKIPTI Samkvæmt nýbirtum kortaveltutöl- um frá Seðlabankanum skrapp kortavelta landsmanna saman um tæp 5% að raungildi í nóvember mið- að við sama mánuð í fyrra. Um þetta er fjallað á vef Íslands- banka en þar segir einnig að mikill munur hafi hins vegar verið á þróun innlendrar kortaveltu og kortaveltu utan landsteinanna í mánuðinum. Þannig hafi kortavelta innanlands numið alls 71,5 milljörðum króna og óx hún um ríflega 6% að raungildi frá nóvember í fyrra. Kortavelta landsmanna erlendis dróst hins veg- ar saman um tæpan helming á sama kvarða og nam alls tíu mö.kr. Tilboðsdagar höfðu áhrif Er á það bent í pistlinum að lík- legt sé að tilboðsdagar kenndir við Dag einhleypra og Svartan föstudag hafi haft sitt að segja um veltuaukn- ingu innanlands á milli ára á þessu tímabili. Slík tilboðstímabil hafi rutt sér hratt til rúms undanfarin ár hér- lendis og í samkomutakmörkunum kórónuveirukreppunnar hafi hlutur netverslunar í slíkum tilboðs- tímabilum tekið stökk. Morgunblaðið/Hari Kortavelta innanlands nam alls 71,5 milljörðum króna í nóvembermánuði og óx hún um ríflega 6% að raungildi. Kortavelta erlendis dróst mikið saman. Kortavelta skrapp sam- an um 5% í nóvember „Við stöndum á tíma- mótum mikilla breyt- inga. Breytinga sem þegar voru hafnar en árið 2020 hefur ýtt við ýmsu og afhjúpað margt,“ segir Vigdís. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.