Morgunblaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 1
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2020
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Hafnartorg - 511 1900 - michelsen.is
Upplifðu faglega og persónulega þjónustu
Skuldahlutföll á hreyfingu í ár
Þetta kemur fram í greiningu Kristrúnar
Frostadóttur, aðalhagfræðings Kviku banka,
fyrir ViðskiptaMoggann í tilefni áramóta.
Íbúðaskuldir heimila hafi aukist um tæpa
200 milljarða króna í ár hjá bönkum, líf-
eyrissjóðum, Íbúðalánasjóði (nú HMS) og
öðrum fjármálafyrirtækjum og -sjóðum.
Ný útlán nema 280 milljörðum
Þá nemi ný útlán banka og lífeyrissjóða til
heimila um 280 milljörðum, borið saman við
200 milljarða á sama tímabili í fyrra, að teknu
tilliti til uppgreiðslna og endurfjármögnunar.
Spurð um skiptingu milli verðtryggðra og
óverðtryggðra lána í ár segir Kristrún að nettó
aukningu í íbúðalánaskuldum heimilanna megi
að öllu leyti rekja til óverðtryggðrar lántöku.
„Um 55% af útlánum innlánsstofnana til
heimila eru nú óverðtryggð, miðað við
þriðjung í byrjun síðasta árs og tæplega 40% í
byrjun þessa árs. Ef við tökum Íbúðalánasjóð
inn í myndina er nú um þriðjungur af íbúða-
skuldum í landinu óverðtryggður, miðað við
20% í byrjun árs,“ segir Kristrún um þróunina.
„Þessi hraða lántaka á árinu hefur leitt til
þess að skuldir heimilanna hafa aukist um 200
milljarða frá lokum 2019. Á sama tíma hefur
landsframleiðslan dregist saman. Skuldahlut-
fall heimilanna hefur því snarhækkað, úr 76%
af landsframleiðslu í 87% undir lok þess árs,
þar sem skulda- og landsframleiðslutölur hafa
farið í sitthvora áttina,“ segir Kristrún. Skýr-
ingin liggi m.a. í því að þeir sem bæti við sig
lánsfjármagni og þeir sem taki á sig lands-
framleiðsluskellinn séu ólíkir hópar.
Pólun á lánamarkaði ekki jákvæð
Loks nái ný útlán til atvinnufyrirtækja, að
frádregnum uppgreiðslum, ekki einu sinni
milljarði hjá bönkunum í ár. „Þessi pólun á
lánamarkaðnum er ekki jákvæð, enda augljóst
að heimilin hafa ekki endalaust svigrúm til að
bæta við sig skuldum ef fyrirtæki ná ekki að
fjármagna atvinnusköpun,“ segir Kristrún um
þróunina á lánamarkaði á árinu.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skuldir heimila hafa aukist sem
hlutfall af landsframleiðslu og
óverðtryggð íbúðalán tekið fram úr
verðtryggðum íbúðalánum í ár.
Skuldir heimilanna 2015-2020 Útlán innlánastofnana til heimila*
Verðtryggð lán
Útlán innlánastofna og skuldir heimilanna
90%
85%
80%
75%
70%
750
650
550
450
350
250
Heimild: Kvika banki *Lán með veði í húsnæði
2015 2016 2017 2018 2019 2020 2019 2020
674
570
604
356
Ma.kr.Sem hlutfall af
landsframleiðslu Árslok 2020: 87%
Ársbyrjun 2020: 76%
Óverðtryggð lán
EUR/ISK
30.6.'20 29.12.'20
165
160
155
150
145
140
155,25
156,15
Úrvalsvísitalan
2.500
2.400
2.300
2.200
2.100
2.000
1.900
30.6.'20 29.12.'20
2.089,45
2.548,97
Fyrr í þessari viku var gengið frá
samkomulagi þess efnis að félagið
Riftún ehf. kaupi helmingshlut
danska félagsins Semler í bílaum-
boðinu Heklu. Riftún ehf. er í eigu
Friðberts Friðbertssonar, forstjóra
Heklu, sem fyrir átti helminginn í
fyrirtækinu á móti Semler.
Friðbert segir að breytt eignar-
hald fyrirtækisins hafi verið til skoð-
unar um nokkurt skeið og að þessi
lending hafi orðið enda rími hún við
þá framtíðarsýn Semler að einbeita
sér fremur að bílamarkaðnum í
Danmörku en fyrirtækið er með
umboðið fyrir bifreiðar sem fram-
leiddar eru undir hatti Volkswagen-
samsteypunnar, þ.e. Volkswagen,
Audi, Porsche, SEAT og Skoda.
„Semler, sem hefur átt hlut í félag-
inu síðan 2013 hefur verið góður
samstarfsfélagi og þetta hefur verið
ánægjulegur tími,“ segir Friðbert.
Hann segir spennandi tíma fram
undan hjá Heklu, ekki síst í
tengslum við að fyrirtækið hefur á
undanförnum misserum kynnt
margar tegundir nýrra rafbíla á
markaðinn.
„Á næsta ári munu nýir rafbílar
bætast í hópinn og margar áhuga-
verðar nýjungar líta dagsins ljós. Ís-
land er leiðandi í innleiðingu rafbíla
og sá reynslumikli og öflugi hópur
sem starfar hjá fyrirtækinu er
reiðubúinn að takast á við nýja
tíma.“
Friðbert segir að kaupverð hlutar-
ins af Semler sé trúnaðarmál. Arion
banki og Lögfræðistofan Landslög
voru ráðgefandi við söluferlið. Fyrir-
tækið velti um 15 milljörðum króna á
árinu sem nú er að líða.
Félag Friðberts eignast Heklu að fullu
Friðbert Friðbertsson, for-
stjóri bílaumboðsins Heklu,
á fyrirtækið nú að fullu leyti.
Friðbert eignast nú fyrirtækið að fullu
eftir samstarf við danska félagið.