Morgunblaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2020 7VIÐTÖL 2020 Við vorum fengin til þess að tengja þessa aðila saman og ég var hérna í mesta lagi í eina eða tvær vikur. Það var leitt að ekki tókst að bjarga félaginu en það var farið of seint af stað. Ég fylgdist með starfsfólki WOW air sem allt var ótrúlega öflugt, vel menntað og með mikla reynslu. Það reyndi allt sem það gat til að bjarga félaginu og baráttan var hörð. Ég skildi þau ótrúlega vel enda hef ég oft staðið í sömu sporum. Mig langaði mikið til að segja þeim að þetta myndi allt ganga yfir enda er það reynsla mín af þessum markaði. […] Það er alveg klárt að MAX-vélarnar munu fljúga á ný og sennilega verður kyrrsetningunni aflétt á síðari hluta þessa árs. Nú tekur við mikil vinna að fá fólk til að fljúga með vél- unum og það gerist ekki nema fólk trúi því að þær séu 200% öruggar. Það er vinna sem við verðum að leggja út í en okkur mun takast það.“ 11. mars Nina Jonsson, stjórnarmaður í Icelandair ” Það var oft þannig að menn hlupu bara út í port og náðu í einhvern varahlut sem svo annaðhvort pass- aði ekki eða var skemmdur. Það fór gríðarleg orka í að vinna verkstæðin á okkar band og fá þau til að treysta því að það væri í lagi að nýta notaðan varahlut. Eitt árið varð hlutfall nýtingar á notuðum varahlutum 7-8%, sem er besta árið til þessa. Það sýnir vel hvað hægt er að ná miklum ár- angri á þessu sviði. En þegar það er ekki virk eftirfylgni með þessu, og allir fara beint í að kaupa nýtt, þá detta menn aftur í gamla farið. Þetta er eins og þegar fólk er duglegt að borða heilsufæði en dettur svo aftur í skyndibit- ann.“ 15. júlí Aðalheiður Jacobsen eigandi Netparta ” Leiðin fram á við er skýr í okkar huga. Á sama tíma og hlúa þarf að því sem fyrir er þá á að virkja hugvitið í auknum mæli til verðmætasköpunar. Þannig er hægt að skapa aukin verðmæti til þess að standa undir þeim lífsgæðum sem landsmenn hafa vanist og óska eftir. Þetta er hægt en þá þurfum við öll að leggj- ast á eitt og ganga í takt. Það tókst okkur vel í vor þegar við börðumst við veiruna og þetta getum við sé vilji fyrir hendi og skýr leiðsögn. Stjórnvöld varða veginn og skapa almenn skilyrði svo fyrirtæki og frumkvöðlar geti einbeitt sér að nýjungum og fjármagnið þarf að fylgja með til vaxtar. Sóknarfærin liggja mjög víða og lykilatriðið er að við þurfum að hreyfa okkur hraðar. 16. september Árni Sigurjónsson, formaður Samtaka iðnaðarins ” Það var dýrt fyrir kvikmyndaverin að útvega okkur filmurnar. Þegar stafrænu spólurnar komu spöruðu kvikmyndaverin mikið, en við þurftum að kaupa rándýrar sýningarvélar til að geta tekið við þessu. Þá hefur upplýs- ingaflæðið breyst nokkuð frá því sem áður var. Hér áður fyrr voru menn ekkert að biðja okkur um upplýsingar um eitt né neitt, enda erum við svo lítið land. En núna erum við talin með í hópi stærri þjóða. Við erum reglulega beðin um álit á kvik- myndum sem taka á til sýningar. Menn vilja vita hvað við höldum um mögulega aðsókn, jafnvel á myndir sem við höfum ekki einu sinni séð! Það er erfiðara að gefa álit á þeim mynd- um. [...] Við lokum á aðfangadag, jóladag og á gamlársdag. Annars hefur verið opið alla daga ársins alveg síðan ég byrjaði í þess- um bransa.“ 20. maí Árni Samúelsson, eigandi SAM-bíóanna ” Núna er skýr krafa um að viðskiptavinurinn sé í fyrsta sæti í öllum verkefnum okkar en samhliða gríðarlegri hagræðingu í rekstri var það gert án þess að skerða þjónustu á nokkurn hátt. Það lætur nærri að við höfum náð að skera kostnað niður um 1.100 milljónir á ári. Arðsemin hefur því aukist mikið og reksturinn styrkst mjög mikið. Það er afrek sem við erum öll stolt af og hver einn og einasti starfsmaður Póstsins á hlut í þess- um árangri. Pósturinn, eins og flest fyrirtæki, getur þó enn staðið sig betur í þjónustu við viðskiptavini sína og ég var t.d. búinn að vinna heila vinnuviku þegar ég byrjaði án þess að heyra orðið „við- skiptavinur“, það var ekki góð tilfinning.“ 22. júlí Birgir Jónsson, forstjóri Póstsins ” Í ár og næstu ár munum við einblína á vöxt á kostn- að arðsemi. Þegar tekjurnar aukast þá nýtast inn- viðir fyrirtækisins betur en rekstrar- og þróunar- og rann- sóknarkostnaður mun lækka hlutfallslega og eftir nokkur ár verður félagið arðbært. Undanfarinn áratug höfum við fjár- fest mikið í þróun og rannsóknum og okkur hefur gengið vel að selja vöruna. Aðalmálið núna er að koma vörunni til sem flestra sjúklinga og með því munu eflaust skapast ýmis tæk- færi, s.s. kaup okkar á öðrum fyrirtækjum eða kaup annarra á okkur. Við einblínum á að koma vörunni til sem flestra sjúklinga og svo koma tækifærin til okkar, vegna þess hversu miklum árangri varan okkar skilar. Þar einblínum við á Bandaríkin, þessa þýskumælandi markaði og svo Mið- Austurlönd. 7. október Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis ” Við höfum aukið markaðshlutdeild okkar, og við- haldið henni, en það bíða enn mörg tækifæri til að veita þjónustu sem viðskiptavinir eru tilbúnir að greiða fyrir og nýta þannig betur markaðshlutdeild okk- ar. Leiðarljós okkar er alltaf, og í gegnum núverandi ástand, að þjónusta viðskiptavini og við verðum að hafa eitthvað að bjóða sem viðskiptavinirnir vilja kaupa af okkur. Við verðum að vera tilbúin að bjóða fjármagn á ásættanlegum kjörum með gagnkvæmum ávinningi. Það er okkar meginhlutverk. Svo er ýmis bankaþjónusta, á borð við eignastýringu, vaxandi þáttur í okkar starfsemi og verður áfram vaxandi þáttur. Og við sjáum það líka að við höfum mörg sóknartækifæri sem við erum búin að greina.“ 19. ágúst Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans ” Það hefur gengið mjög vel í Danmörku. Ég held að við höfum aldrei lokað í Kødbyen, sem er aðalstaðurinn í Kaupmannahöfn. Við vorum svo heppnir að þar má taka matinn með sér heim og hægt að sitja úti. Svo opnuðum við stað í Nør- rebro og það hefur gengið framar vonum. Við vorum langt komin með að innrétta hann þegar faraldurinn byrjaði en við kláruðum hann í rólegheitum. Svo létum við slag standa og opnuðum stað- inn í miðjum faraldrinum. Okkur til mikillar undrunar gekk það mjög vel. [...] Ég hef einhvern eiginleika með auglýsingar sem ég geri mér enga grein fyrir hvaðan kemur. Ég get ekki lært á píanó en skil eitthvað sem hefur að gera með auglýsingar. Það má orða það þannig að ég geti spilað auglýsingar eftir eyranu. 29. júlí Tómas Tómasson, eigandi Hamborgarabúllunnar ” Tómas J. Gestsson, frkv.stjóra Heimsferða. Hörð Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra SI. Frosta Ólafsson og Björn Lárus Örvar hjá ORF líftækni. Þorvald Gissurarson, framkvæmdastjóra ÞG verks. Gunnar Má Sigurfinnsson, frkv.stjóra Icelandair Cargo. Anders Jensen, forstjóra Viaplay. Ara Edwald, forstjóra MS. Sveinbjörn Indriðason, forstjóra ISAVIA. Höskuld Ara Hauksson, vínræktanda. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóra SA. Gylfa Gíslason, framkvæmdastjóra Jáverks. Benedikt Skúlason, forstjóra Laufs. Þórarin Ævarsson, eiganda Spaðans. Sigurð Pálsson, forstjóra BYKO. Finn Geirsson, forstjóra Nóa Síríuss. Höllu Helgadóttur, frkv.stjóra Hönnunarmiðstöðvar. Skjöld Sigurjónsson, verslunareiganda. Guðmund Magnason, forstjóra Heimkaupa. Jónas Þór Þorvaldsson, framkvæmdastjóra Kaldalóns. Þorstein Víglundsson, forstjóra Hornsteins. Bjarna Bjarnason, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur. Elvar Örn Þormar, framkvæmdastjóra Reon. Ólafur Baldursson, forstjóra Verkfæris. Tryggva Þór Herbertsson, stj.form. Icelandair Hotels. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóra Kópavogs. Guðmund Gauta Reynisson, eiganda Greenwater. Marinó Örn Tryggvason, forstjóra Kviku banka. Friðrik Adolfsson, forstjóra Norlandair. Einar Karl Birgisson, framkvæmdastjóra Cintamani. Einnig var rætt við þessi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.