Morgunblaðið - 30.12.2020, Síða 2

Morgunblaðið - 30.12.2020, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2020FRÉTTIR VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn) Mesta lækkun BRIM 0,00% 49,85 Mesta hækkun REITIR +7,03% 70,00 S&P 500 NASDAQ +0,74% 12.899,307 +1,04% 3.741,48 +2,04% 6.627,95 FTSE 100 NIKKEI 225 30.6.'20 30.6.'2029.12.'20 1.500 2.004,15 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. 51,38 +3,37% 27.568,15 2.000 29.12.'20 1.619,75 60 20 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu) 41,15 Fulltrúar verslunar segja fyrirséða íbúafjölgun á Íslandi á næstu árum munu skapa ýmis tækifæri. Samkvæmt mannfjöldaspá Hag- stofunnar, miðspá, mun lands- mönnum fjölga úr 368 þúsund frá lokum 3. fjórðungs í ár í 400 þúsund einhvern tímann á árinu 2026. Með því bætast 32 þús. manns við íbúafjöldann, eða álíka fjöldi og býr alls í Garðabæ og á Seltjarnarnesi. Því er spurning hvaða áhrif þessi fjölgun muni hafa á eftirspurn eftir verslun og þjónustu á næstu árum. María Jóna Magnúsdóttir, fram- kvæmdastjóri Bílgreinasambands- ins, segir að með íbúafjölguninni geti eftirspurn í bílgreininni einnig aukist. En á sama tíma hafi fjöldi ferðamanna á landinu mikil áhrif á fjölda skráðra bíla hverju sinni en árið 2019 voru rúmlega 24 þúsund bílar skráðir á bílaleigu. Sjálfkeyrandi bílar nálgast Fyrir utan þessa þætti séu ýmsar breytingar í farvatninu. Meðal annars færist sjálfkeyrandi bílar stöðugt nær veruleika. „Þeir munu hafa áhrif á mark- aðinn og hvernig hann þróast. Spurningin er hvenær þeir verða til- búnir fyrir okkar markað og hvenær okkar gatnakerfi verður tilbúið að taka við þeim. Verður það eftir þrjú ár eða sjö ár?“ spyr María Jóna. Hvað snertir fyrirséða fjölgun ný- orkubíla á móti bensín- og dísel- bílum, segir María Jóna of snemmt að svara því hvort þjónusta við bíla muni dragast saman eða aukast – fyrst og fremst sé hún að breytast. Þótt reglubundið viðhald kunni að vera minna á hreinum rafbílum kalli þeir áfram á ýmsa þjónustu, svo sem almennar viðgerðir, tjónaviðgerðir og uppfærslur. Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, SVÞ, segir samtökin ekki hafa unnið greiningu á áhrifum fólksfjölgunar á verslunina. Hitt hafi verið áætlað að 2,3 millj- ónum erlendra ferðamanna árið 2018 hafi verið jafnað við að hér byggju 35 þúsund manns á landinu. Þá tölu megi setja í samhengi við að landsmönnum muni fjölga um 32 þúsund fram til ársins 2026. Áhrifin svæðisbundin Áhrif íbúafjölgunar á verslunina verði að einhverju leyti svæðis- bundin enda líklegast að fólkinu muni fjölga mest á höfuðborgar- svæðinu og í sveitarfélögunum í kring. Jafnframt muni fjölgun eldra fólks, hlutfallsleg og eiginleg fjölg- un, skapa tækifæri fyrir fyrirtæki sem þjónusta þann hóp. „Sá hópur fólks sem fer á eftir- laun á næstu tíu árum kallar eftir aukinni og bættri þjónustu. Hann hefur líka meira milli handanna og býr við sterkari lífeyrissjóði og hærri eftirlaun en margir þeirra sem hafa verið að taka lífeyri á síð- ustu 20 árum. Þetta er hópur sem hefur meiri kaupmátt og gerir meiri kröfur til þjónustu. Og það skapar ný viðskiptatækifæri, eðli málsins samkvæmt,“ segir Andrés. Veltan eykst með fleira fólki Finnur Oddsson, forstjóri Haga, segir almennt mega áætla að velta í verslun aukist í takt við íbúafjölgun. Í þessu tilviki þá spá Hagstofunnar að landsmönnum muni fjölga um 32 þúsund fram til ársins 2026. Hvað snertir möguleg áhrif íbúa- fjölgunar á verslunina séu ýmsir straumar á markaðnum. „Á undanförnum árum hefur fólk í auknum mæli borðað utan heim- ilis, í mötuneytum og á veitinga- stöðum. Það er hins vegar óvíst hvaða áhrif kórónuveirufaraldurinn mun hafa á þessa þróun til lang- frama. Mun hún jafnvel ganga til baka að hluta?“ Spurður hvort þessi íbúafjölgun, ef spáin gengur eftir, muni kalla á samsvarandi fjölgun verslana, til dæmis hjá Bónus, bendir Finnur á að verslanir á Íslandi starfi nú al- mennt ekki nærri mörkum afkasta- getunnar. „Reyndar mega akkúrat nú að- eins hundrað manns fara í stórar búðir, og það er jólaös, en þar fyrir utan geta verslanirnar vel annað fleirum en þær gera nú. Hins vegar mun verslunarmynstrið breytast á næstu fimm árum með aukinni spurn eftir einfaldleika og þæg- indum, t.d. heimsendingum, einföld- um lausnum og tilbúnum réttum og öðru slíku sem sparar tíma. Við munum laga okkur að þeim þörfum, bæði í vöruframboði og verslunum. Hlutfall dagvöruverslunar í net- verslun mun örugglega aukast en það er nú í kringum 2%, sem er töluvert lægra hlutfall en í ná- grannalöndunum. Þetta er kannski milljón dollara spurningin á Íslandi: Hversu hröð verður aukningin og hversu mikil?“ spyr Finnur. Færist inn í hverfin Spurður hvort þétting byggðar dragi úr þörfinni fyrir nýjar versl- anir, þrátt fyrir íbúafjölgun, bendir Finnur á þá stefnu Reykjavíkur- borgar að breyta hverfisskipan á þann veg að hægt verði að nálgast alla þjónustu, gangandi eða hjól- andi, innan 20 mínútna. Hluti versl- unar muni því mögulega færast inn í hverfin til að koma til móts við breyttan lífsstíl. „Því fylgja breyttir verslunarhættir og hugsanleg fjölg- un smærri þægindavöruverslana til viðbótar við stærri og afkastameiri verslanir,“ segir Finnur. Mannfjölgun skapar tækifæri Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ef mannfjöldaspá Hagstof- unnar, miðspá, gengur eftir verða landsmenn orðnir 400 þúsund árið 2026. En hvaða áhrif mun sú fjölgun hafa á eftirspurnina? Þúsundir íbúa skv. miðspá Hagstofunnar Spá um mannfjölda á Íslandi til ársins 2030 425 400 375 350 2021 2022 2023 2024 2025 2026 2027 2028 2029 2030 Heimild: Hagstofan * Rauntölur frá 30.9.2020 368* 376 391 401 411 Búum í haginn fyrir atvinnulíf framtíðarinnar arionbanki.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.