Morgunblaðið - 30.12.2020, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2020 3FRÉTTIR
Traustur fyrirtækjarekstur og öflug nýsköpun
kallar á samstarfsaðila sem skilur þarfirnar.
Arion banki býður fyrirtækjum af öllum
stærðum og í öllum geirum alhliða
þjónustu með fagmennsku, innsæi
og þekkingu að leiðarljósi.
Hafðu samband á fyrirtaeki@arionbanki.is,
við þjónustuver í síma 444 7000 eða í
netspjalli á arionbanki.is.
„Ég hef enn fulla trú á Íslandi sem
áfangastað og ferðaþjónustu lands-
ins,“ segir Skúli Mogensen, stofn-
andi Hvammsvíkur sjóbaða, um til-
efni hins nýja félags um reksturinn.
Greint er frá stofnun félagsins í
hlutafélagaskrá. Heimili og varnar-
þing félagsins er í Hvammsvík í
Hvalfirði en fjölskylda Skúla keypti
jörðina í haust en Skúli eignaðist
jörðina árið 2011.
Með mörg járn í eldinum
Skúli kveðst aðspurður munu
verða framkvæmdastjóri félagsins,
ásamt „ýmsu öðru“ en tilgreinir þau
verkefni ekki frekar að sinni. Hann
muni sjá um rekstur fyrirtækisins
ásamt fjölskyldu sinni.
„Foreldrar mínir keyptu jörðina
og þess vegna segi ég að þetta sé
orðið eitt allsherjar fjölskyldu-
fyrirtæki. Ég hef ótrúlega gaman af
því [innsk. að sinna þessu verkefni]
og hef verið þarna lengi og ætla mér
að vera þar áfram,“ segir Skúli um
Hvammsvík en hann eignaðist
jörðina fyrir um áratug.
Skúli er stjórnarmaður en vara-
maður í stjórn er móðir hans, Anna
Skúladóttir, fyrrverandi fjármála-
stjóri Reykjavíkurborgar. Endur-
skoðandi félagsins er Matthías Þór
Óskarsson. „Ég stofna félagið og við
fjölskyldan verðum eigendur að
því,“ segir Skúli.
Afla tilskilinna leyfa
„Eins og komið hefur fram erum
við að undirbúa sjóböð í Hvamms-
víkinni. Við höfum verið að fara í
gegnum ferlið við að fá öll tilskilin
leyfi og vonumst til að geta hafist
handa fljótlega. Það er útlit fyrir að
þessi Covid-vitleysa sé að leysast,
sem betur fer, og [innsk. ef það
gengur eftir] munum við setja allt á
fullt á vormánuðum,“ segir Skúli.
Spurður hvort Íslendingar muni
því geta farið í sjóböðin í apríl segir
Skúli það of bratt; eitthvað verði
liðið á sumarið þegar hægt verði að
taka á móti fyrstu gestum.
„En vonandi í sumar,“ segir Skúli.
Margháttuð starfsemi
Spurður um markmið félagsins
vitnar Skúli í hlutafélagaskrá.
Segir þar að tilgangur félagsins sé
uppbygging og rekstur sjóbaða,
rekstur ferðaþjónustu og tengd
starfsemi; kaup, sala, rekstur,
eignarhald og leiga fasteigna og
hvers kyns lausafjár; eignarhald,
kaup og viðskipti með hlutabréf,
hluti í félögum, önnur verðbréf og
hvers kyns önnur fjárhagsleg verð-
mæti og skyldur rekstur.
Samkvæmt skipulagslýsingu
verða hlaðnar baðlaugar á jörðinni.
Skúli opnar sjóböð í Hvammsvík
Baldur Arnarson
Stefán Einar Stefánsson
Athafnamaðurinn Skúli
Mogensen snýr aftur í
íslenskt viðskiptalíf á nýju
ári með rekstri sjóbaða.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Um 45 mínútur tekur að aka frá miðborg Reykjavíkur og til Hvammsvíkur, sem er landnámsjörð og kom við sögu í síðari heimsstyrjöldinni.
Morgunblaðið/Kristinn
Athafnamaðurinn Skúli Mogensen
hefur víða komið við á ferlinum.
Árið 2011 setti Orkuveita Reykjavíkur jarðirnar Hvamm og Hvammsvík í
opið söluferli. Í október það ár var tilkynnt að Skúli Mogensen, fjárfestir
og aðaleigandi MP banka, hefði orðið hlutskarpastur í ferlinu og að
eignirnar hefðu verið slegnar honum á 155 milljónir króna. Þremur árum
fyrr hafði orkuveitan stefnt að sölu sömu eigna og bárust þá á annan
tug tilboða í jarðirnar og var hæsta tilboð þá 231 milljón króna. Ekkert
varð af sölunni í það skiptið. Í báðum söluferlunum voru jarðhitaréttindi
sem finna má á jörðunum undanskilin.
Hvammsvíkurlandið komst í eigu Veitustofnana Reykjavíkurborgar
árið 1996 þegar þær keyptu það af Lögreglufélagi Reykjavíkur á 26,2
milljónir króna. Lögreglumenn höfðu keypt jörðina fimm árum fyrr af
þrotabúi fiskeldisstöðvar Laxalónsfeðga á 39 milljónir. Voru kaupin
mjög umdeild innan félagsins. Reyndust kaupin félaginu mjög þungbær
vegna framkvæmda sem ráðist var í, m.a. þar sem borað var eftir jarð-
hita, og lá við gjaldþroti þess um tíma. Í Hvammsvík hefur verið byggð
upp aðstaða til sjóstangveiði, kajakferða og grillveislna og þar er níu
holu golfvöllur og tjaldsvæði.
Keypti jörðina 2011 af OR