Morgunblaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2020FRÉTTASKÝRING L augarnar í Reykjaví k Jólasund SUNDK ORT ER GÓ Ð JÓL AG JÖF Lengdur opnunartími y fir jól og áramót Nánar á w w w.itr.is Ég mæli með því við lesendur sem eiga leið til Lundúna, þegar farald- urinn er liðinn hjá og lífið aftur komið í eðlilegar skorður, að þeir athugi hvað er á dagskrá hjá frjálshyggju- hugveitunni Institute of Economic Affairs (IEA). Stofnunin, sem er með aðsetur steinsnar frá þinghúsinu, efn- ir reglulega til fyrirlestra og funda þar sem snjallasta frjáls- hyggjufólk sam- tímans veitir inn- sýn inn í málefni líðandi stundar. Árlegur há- punktur í starfi IEA er Hayek- fyrirlesturinn þar sem kanóna úr heimi frjálshyggjunnar fær frjálsar hendur til að rýna í áskoranir sam- tímans. Meðal fyrirlesara undanfar- inna ára má nefna Grover Norquist, Matt Ridley, Elinor Ostrom, Martin Wolf, Hernando de Soto og Vaclav Klaus en í ár féll það í hlut Stephen Davies að flytja erindið sem streymt var yfir netið þann 17. desember síð- astliðinn. Davies er fræðslustjóri IEA og maður sem er gaman að kynna fyrir lesendum. Hann er djúpfróður sagn- fræðingur og manna duglegastur við að rýna í söguna gegnum linsu frjáls- hyggjunnar en jafnframt framúr- skarandi kennari og fyrirlesari og yndislegt að hlusta á hann tala enda einstaklega skýr og skiljanlegur. Þeir sem leita að fyrirlestrum Davies á YouTube verða ekki fyrir von- brigðum. Efni fyrirlestrarins í ár þarf ekki að koma á óvart: Hvernig verður heimurinn eftir faraldurinn? Greining Davies er sannfærandi og jafnvel ógnvekjandi á köflum en reynslan af faraldrinum gefur líka til- efni til bjartsýni á vissum sviðum og veitir okkur vísbendingar um hvar þarf að gera betur. Það sem er sér- staklega umhugsuanarvert er sú spá Davies að heimsfaraldrar eigi eftir að verða mun tíðari sem þýðir að sam- félög þurfa að átta sig betur á hvað virkar – og hvað virkar ekki – þegar næsti faraldur fer á kreik. Ekta óvissuástand Fyrst af öllu minnir Davies á hversu erfitt það er að átta sig á at- burði eins og heimsfaraldri á meðan hann stendur yfir og að enginn hafi fullkomna yfirsýn og hárréttan skiln- ing á því sem er að gerast hverju sinni. Að því leyti eru bæði stjórnvöld með sínar harkalegu smitvarnaað- gerðir, og þeir sem gagnrýna aðgerð- irnar, að gera sömu mistökin að mati Davies: báðar fylkingar telja sig búa yfir miklu meiri vissu en þær gera í raun. Sjúkdómsfaraldrar eru svo af- skaplega flókið fyrirbæri þar sem ótalmargar breytur koma við sögu og við skiljum ekki til hlítar hvað gerðist fyrr en allt er yfirstaðið. Að því sögðu þá þýðir ekki að gera ekki neitt þegar smitandi sjúkdómur lætur á sér kræla og eðlilegt að gera heiðarlega tilraun til að spá fyrir um verstu mögulegu útkomu til að geta síðan vegið og metið hvort áhættan sé það mikil að kalli á harkalegar að- gerðir. Þar gagnast að líta á reynsl- una af öðrum heimsfaröldrum og því mynstri sem þeir hafa fylgt. Við get- um t.d. verið nokkuð viss um að veiru- faraldrar vara í 18 til 30 mánuði og koma í a.m.k. tveimur bylgjum. Við vitum líka að faraldrar byrja á einum stað og berast síðan eftir ferða- og viðskiptaleiðum og ná fyrst til þeirra borga sem eru vel tengdar við um- heiminn. Einnig getum við stólað á það að sjúkdómsfaröldrum mun fylgja ein- hver röskun sama hvað yfirvöld gera. Jafnvel ef stjórnvöld gera ekki neitt mun fólk breyta hegðun sinni til að vernda eigin heilsu og hagsmuni. Bendir Davies t.d. á að löngu áður en ríkisstjórn Borisar Johnsons fyrir- skipaði að íbúar Bretlands skyldu halda sig heima og fyrirtæki skella í lás mátti þegar greina allt annan brag á mannlífinu og sást m.a. á miklum samdrætti í notkun almennings- samgangna. Sumsé: veruleg röskun er óhjákvæmileg. Færni og skilvirkni stjórnvalda En reynslan af kórónuveirufaraldr- inum og þeim heimsfaröldrum sem á undan komu kennir okkur líka ým- islegt um hvað virkar vel og hvað ger- ir illt verra. Formúlan er í grófum dráttum þessi: bregðast þarf hratt við áður en vandinn verður óviðráð- anlegur; loka landamærum, draga úr ferðalögum innanlands og banna stór- ar samkomur; hafa skilvirka ferla til að greina og rekja smit og ganga nógu hreint til verks til að ná alvöru- árangri – sem þýðir samt ekki að eigi að ganga fram af offorsi. Hér kemur í ljós áhugaverð breyta sem skýrir hvers vegna sumum lönd- um hefur gengið illa að glíma við veir- una en öðrum gengið mun betur. Víða virðist að það sem hafi gert útslagið hafi ekki verið hvort að nóg var af sjúkrarúmum og öndunarvélum eða hvort búið var að gera ítarlegar áætl- anir fyrir öll hugsanleg stóráföll, held- ur hvort að stofnanir hins opinbera gátu aðlagast með hraði og brugðist við án tafar. Ef kerfið er þannig hann- að, segir Davies, að ofuráhersla er lögð á að fylgja öllum reglum og ferl- um sama hvað, þá hægir það á við- brögðunum við faraldri og ekkert er gert fyrr en það er orðið of seint. Það virðist hafa skipt miklu meira máli í baráttu ríkja heims við faraldurinn hvort að stjórnvöld gátu verið skilvirk í aðgerðum sínu frekar en nákvæm- lega hvaða úrræða þau gripu til. Far- aldurinn hefur varpað ljósi á það hjá hvaða löndum vantar sárlega upp á færni og hæfni stjórnvalda. Hnattvæðing gerir meira gagn en ógagn Sumir hafa spáð því að kór- ónuveirufaraldurinn verði til þess að heimurinn lokist: að alþjóðavæðingin hafi átt stóran þátt í því hve greiðlega veiran breiddist út um allan heim og margar þjóðir hafi líka vaknað upp við vondan draum þegar í ljós kom að þær voru háðar öðrum löndum um framleiðslu á lyfjum og hlífðarbúnaði. Davies bendir hins vegar á að hvernig faraldurinn sýndi líka að við erum, með tækni okkar, auði og innviðum, miklu betur í stakk búin en forfeður okkar til að takast á við sjúkdómsfar- aldra og að það að búa í alþjóðlegu samfélagi gefi þjóðum, einstaklingum og fyrirtækjum aukna getu til að að- lagast og finna nýjar lausnir. Að- fangakeðjur alþjóðahagkerfisins komust t.d. fjótlega í lag og það er til marks um krafta nýsköpunar og sam- starfs þvert á landamæri að það skyldi takast að þróa og prófa þrjú bóluefni við kórónuveiru á mettíma. Það verður kannski ögn meira vesen í framtíðinni að ferðast á milli heims- álfa en hnattvæðingin verður ekki blásin af. Að því sögðu þá er ljóst að gengið hefur verið aðeins of langt í að straumlínulaga bæði alþjóðlega og innlenda framleiðslu- og þjónustu- ferla. Ef farið er alla leið í að hámarka skilvirkni verður lítið svigrúm eftir til að bregðast við áföllum: Skilvirkustu kerfin virðast vera viðkvæmust fyrir hvers kyns röskun. Eitt besta dæmið um þetta, segir Davies, er hvernig búið er að hámarka nýtingu á heil- brigðiskerfum þjóða heims svo að þau rétt svo geta ráðið við flensufaraldra og bugast þegar sjúkrahúsin fyllast af Covid-19 sjúklingum. Smithætta í landbúnaði Eitt þarf þó að laga alveg strax, og það er verksmiðjulandbúnaður sem Davies segir vera eins og tifandi tímasprengju. Að vísu hófst kórónu- veirufaraldurinn ekki á nauta-, svína-, eða kjúklingabúi en af öllum þeim stöðum þar sem ný og skaðleg örvera gæti sprottið fram og borist í fólk er hættan mest á verksmiðjubýlum: Þar er sýklalyfjanotkun óhófleg og dýrum og mannfólki þjappað saman í einn allsherjar graut af úrgangi, innyflum og vessum. Væri ekki hægt að skapa betri kringumstæður til að láta stór- varasamar veirur og fjölónæmar bakteríur berast úr öðrum dýrateg- undum yfir í menn og er þá alveg eftir að taka dýravelferðarsjónarmið með í reikninginn. Blessunarlega virðist lausnin handan við hornið og miklar framfarir orðið í frumuræktun á kjöti. Er þess skemmst að minnast að að nýlega gáfu stjórnvöld í Singapúr grænt ljós á sölu á frumræktuðum kjúklinganöggum sem kosta álíka mikið og hefðbundnir naggar. Fram undan eru ótal fleiri áskor- anir sem faraldurinn magnaði upp. Davies nefnir mikla skuldasöfnun ríkja, fyrirtækja og einstaklinga. Skuldir atvinnulífsins eru sérstakt áhyggjuefni og ljóst að afskrifa þarf risastórar fjárhæðir en fjár- málakerfið verður mjög viðkvæmt þar til tekist hefur að leysa úr þessum vanda. Þá eru ákveðnir geirar at- vinnulífsins í miklum vanda og t.d. ljóst að verslun hefur færst að stórum hluta yfir á netið. Þessu fylgir að tölu- vert minni eftirspurn verður eftir húsnæði á besta stað í stórborgum heimsins og mun valda sviptingum á fasteignamarkaði. Í þessu nýja um- hverfi verður erfiðara að réttlæta dýra leiguna á Regent Street og Fimmta breiðstræti, og þökk sé góðri reynslu af fjarvinnu munu skrifstofu- fyrirtækin geta látið sér nægja a.m.k. helmingin minna húsnæði. Skrif- stofufólkinu liggur heldur alls ekkert á að þurfa aftur að ferðast langar leið- ir vinnu sinnar, klukkutíma hvora leið, ellegar borga svimandi háa leigu til að geta búið hæfilega miðsvæðis í París eða Tókýó. Veröldin orðin reynslunni ríkari Ásgeir Ingvarsson skrifar frá Mexíkóborg ai@mbl.is Faraldurinn varpaði ljósi á bæði kosti og galla al- þjóðavæðingar og mikil- vægi þess að stjórnvöld séu hæf og skilvirk. AFP Meðal þess sem Davies varar við er að sjúkdómar geta hæglega farið á kreik í verksmiðjubúskap og valdið faraldri. Stephen Davies

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.