Morgunblaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020 með allt öðrum hætti en þau voru áð- ur fyrr,“ segir hann. „Það var oft tekist hart á hér áður fyrr en aðilar lögðu sig fram um að ræða málin og leita ásættanlegra lausna þótt á stundum þyrfti marga fundi til, s.s. 2004 þegar þeir voru á sjöunda tug- inn. Í dag birtist samskiptamátinn sem snubbótt skilaboð í tölvupósti frá SFS. Svo dæmi sé tekið kom ný- verið frá þeim einhliða yfirlýsing þar sem þeir felldu niður ákvæði í bókun síðasta kjarasamnings. Þar var kveðið á um að skiptaprósenta til sjómanna til útreiknings launa yrði hálfu prósentustigi hærri þar til um- ræðum um bókanir væri lokið. Um- ræðum um bókanir er fjarri því lokið en þrátt fyrir þá staðreynd lækkuðu þeir skiptaprósentuna. Það mál er nú fyrir Félagsdómi sem er sann- arlega ekki réttur vettvangur þegar um kjarasamningsviðræður er að ræða.“ Myndi Árni vilja sjá betri sam- stöðu innan sjómannastéttarinnar og betra viðmót hjá fulltrúum út- gerðanna. „Það hljóta allir aðilar að vilja ef árangur á að nást. Annað væri í hæsta máta óeðlilegt en til þess að úr rætist þarf ansi margt að breytast. Útgerðarmenn af gamla skólanum sem litu á starfsfólk sitt nánast sem hluta af fjölskyldunni eru vandfundnir í dag,“ segir hann og bendir á að sundrungin á meðal sjómannasamtakanna sé alvarlegt vandamál „Undarlegt er til þess að hugsa að á stóru uppsjávarskipi með átta-níu manna áhöfn séu kannski engir tveir í sama stéttarfélaginu, og hvert og eitt stéttarfélag með ólíkar kröfur og áherslur. Flækjustigið er því dálítið svakalegt.“ „Heilu hnífasettin“ í bakið En hvað má til bragðs taka til að koma málum í betri farveg, fá stétt- arfélög sjómanna til að snúa bökum saman og leyfa talsmönnnum út- gerðanna og sjómanna að kveikja í friðarpípunni? Árni segir sárin ekki enn að fullu gróin frá kjarasamn- ingaviðræðunum fyrir fjórum árum. „Þar tókst að ná samningum fyrir hönd bæði Sjómannasambandsins og Félags skipstjórnarmanna og var samningurinn samþykktur af skip- stjórnarmönnum en kolfelldur hjá undirmönnunum. Í því sem á eftir kom upplifðu ákveðnir aðilar þetta eins og að fá heilu hnífasettin í bakið, Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is T öluverð harka hefur ein- kennt kjaraviðræður sjó- manna undanfarin ár. Eins og lesendur muna tókust síðast samningar milli SFS og sjómanna í febrúar 2017 eftir langt verkfall en samningar höfðu þá verið lausir frá árinu 2011 sem er Ís- landsmet að sögn viðmælanda. Verkfallssamningarnir giltu til 1. desember 2019 og hafa því verið lausir í rösklega tólf mánuði. Árni Bjarnason er formaður Fé- lags skipstjórnarmanna og segir það umhugsunarvert hversu treglega virðist ganga að semja við fulltrúa sjávarútvegsins og byggja upp breiða samstöðu á milli sjómanna. Að hans sögn voru ýmsar ástæður fyrir því að samningar voru svo lengi lausir á sínum tíma en sú sem vó þyngst var að um margra ára skeið var mikið góðæri í sjávarútvegi og afkoma almennt mjög góð. „Það var ekki fyrr en krónan styrktist mikið, með tilheyrandi tekjurýrnun fyrir sjómenn og útgerðir, að einhver hreyfing komst á hlutina. Stærsta ástæðan fyrir verkfallinu og fram- gangi þess þegar að því kom var ósætti og sundrung sem hafði náð að magnast upp milli stéttarfélaga sjó- manna. Þetta ósætti leiddi til veru- lega flókinnar stöðu innbyrðis og samningsstaða útgerðarmanna styrktist en staða sjómanna veikt- ist.“ Árni segir að sér þyki miður að all- ar götur frá þessum tíma virðist að útgerðir og SFS fyrir þeirra hönd hafi verið að herða tökin. „Sam- skiptin á milli samtaka útgerða og stéttarfélaga sjómanna eru orðin og má segja að brennt barn forðist eldinn.“ Óttast Árni að það sé mjög langt í land. „Til þess að eitthvað gerist verðum við sjómannamegin að gera alvarlega tilraun til þess, sem heild, að koma okkur saman um sameig- inlegar áherslur. Kröfugerð sem all- ir staðfesti með undirskrift sinni að standa eða falla með og bindist fast- mælum um að enginn hoppi af vagn- inum í miðri á. Þetta er mikil áskor- un og ærið verkefni sem ég tel að við verðum að láta reyna á áður en hefja skal viðræður við SFS.“ Árni segir meginkröfurnar ekki óeðlilegar og nefnir sem dæmi að skipstjórnarmenn vilji njóta sömu orlofs- og lífeyrisréttinda og aðrar stéttir fengu með lífskjarasamn- ingnum svokallaða. Einnig þurfi að finna farsæla lausn á ýmsum ann- mörkum skiptimannakerfa, s.s. hvernig eigi að túlka og afgreiða veikindalaun. Þá brennur á sjómönnum að skoða þau vinnubrögð og viðmið sem stýra verðmyndun á afla en finna má dæmi um að það verð sem notað er við út- reikning á launum sjómanna sé ekki í samræmi við markaðsverð aflans. „Fjölmiðlar fjölluðu nýverið um til- vik þar sem útgerð ákvað að lækka um 35% það verð sem notað var til að reikna út laun rækjusjómanna. Mikil vinna var lögð í málið og niðurstaðan að okkar mati að engar forsendur væru fyrir þeirri kjarskerðingu sem ákveðin var af fulltrúum útgerðar í úrskurðarnefnd með fulltingi for- manns nefndarinnar. Í framhaldi af þessu máli kom nú nýverið fram á heimasíðu Verðlagsstofu skipta- verðs úttekt þar sem gerður er verð- samanburður á síld á Íslandi og í Noregi. Þar kemur fram gríðarlegur munur á verði upp úr sjó á meðan gott samræmi var á afurðaverði beggja landa. Ótrúlegt er að sjá hversu litla umfjöllun og athygli þessi úttekt hefur vakið,“ segir Árni. Vald og ábyrgð skipstjóra „Hvar varðar skipstjórnarmenn sem ég hef starfað fyrir í áratugi þá finnst mér dapurlegt að upplifa þá þversögn sem við blasir hvað varðar ákvæði sjómannalaga um valdsvið skipstjóra, en 49. greinin er svo- hljóðandi: „Skipstjóri hefur í öllum efnum æðsta vald á skipinu.“ Raunin er einfaldlega sú að allar stærri ákvarðanir sem taka þarf úti á sjó eru gerðar í fullu samráði við útgerð- ina sem hefur úrslitavald, hvað sem lögin segja. Mín upplifun af sam- skiptum við útgerðarmenn og skip- stjórnarmenn er sú að útgerðin ræð- ur því sem hún vill ráða og hefur verið að færa sig upp á skaftið á því sviði undanfarin ár,“ segir Árni. Hann segir mikla endurnýjun á skipum hafa átt sér stað undanfarin ár og uppsjávarflotinn skeri sig úr með afgerandi hætti vegna þess eðlismunar sem felst í að veiða mikið magn fisks sem dælt er um borð og kældur á skömmum tíma. „Nútíma- væðing uppsjávarflotans býður upp á mun meiri hagræðingarmöguleika en eru til staðar í öðrum veiðigrein- um. Sem dæmi má nefna að það eru ekki svo ýkja mörg ár síðan hefði mátt sjá sex uppsjávarskip þess tíma í höfn til löndunar og hvert þeirra með 500 tonna afla og 12-14 manna áhöfn – þar sem allir þessir 60-70 sjómenn höfðu það gott. Í dag kemur eitt skip til löndunar með 3.000 tonn með átta eða níu manna áhöfn,“ út- skýrir Árni. „Þótt miklar framfarir hafi átt sér stað hvað varðar bolfisk- veiðar þá verður hagræðingu ekki við komið með jafn afgerandi hætti á skipum þar sem handfjatla þarf sér- hvern fisk. Af þessu leiðir að enginn er betur til þess fallinn en skipstjór- inn að meta og ákveða fjölda í áhöfn með tilliti til allra þeirra þátta sem horfa þarf til, s.s. álags, afkasta, gæða og öryggisþátta svo eitthvað sé nefnt. Enginn skipstjóri hefur nokk- urn áhuga á að hafa fjölmennari áhöfn en þörf er fyrir. Því síður vill hann fara með færri menn en hann telur þurfa, til að uppfylla eigin kröf- ur.“ Sameiginlegir hagsmunir allra Árni leggur áherslu á að greininni hljóti að farnast best þegar sjómenn og útgerðir eru samstiga, og að sú staða sé ekki neinum til hagsbóta að annar hópurinn líti á hinn sem óvini sína eða andstæðinga: „Fyrir mörgum árum horfði ég á viðtal við milljarðamæring í Kísildal í fréttaskýringaþættinum 60 Min- utes, og þar var maðurinn spurður hvernig honum hefði tekist að verða svona vellauðugur. Svarið var að hann hafði borið gæfu til að læra það snemma að því betur sem hann gerði við starfsfólkið sitt, því betur gengi honum sjálfum. Því næst var hann spurður hvernig það væri að vera svona ofsalega ríkur og svaraði millj- arðamæringurinn að bragði að þeg- ar hann horfði út um skrif- stofuglugga sinn í lok vinnudags og sæi starfsfólkið aka áleiðis heim til sín, þá sæi hann á eftir 98% af öllum auðæfum sínum enda byggðust verðmætin á mannauðinum. Þetta viðhorf vinnuveitanda til launþega er sú staða sem mig dreymir um launa- fólki til handa í mínum villtustu draumum.“ Morgunblaðið/Eggert Árni Bjarnason segir sárin ekki að fullu gróin eftir síðustu kjarasamn- ingsviðræður en ósk- andi væri að stétt- arfélög sjómanna gætu snúið bökum saman. Morgunblaðið/Árni Sæberg „Enginn er betur til þess fallinn en skipstjórinn að meta og ákveða fjölda í áhöfn með tilliti til allra þeirra þátta sem horfa þarf til,“ segir Árni. Mynd úr safni. „Það var oft tekist hart á hér áður fyrr en aðilar lögðu sig fram um að ræða málin og leita ásætt- anlegra lausna þótt á stundum þyrfti marga fundi til,“ segir Árni Bjarnason og þykir samskipti út- gerðarfélaga og sjómanna hafa versnað til muna. Best ef allir gætu verið samstiga Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.