Morgunblaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is S kólinn hefur stækkað mjög mikið og þá sér- staklega á síðasta ári. Árið 2018 vorum við með 157 nemendur en í fyrra um fjögur hundruð. Þannig að það var mjög ánægjuleg breyting milli ára sem kannski af einhverju leyti er vegna Covid, ég veit það ekki, en það getur verið að krakkarnir hafi ekki átt eins greiða leið í sum- arvinnu eins og áður,“ segir Guð- rún Arndís Jónsdóttir, for- stöðumaður Sjávarútvegsmiðstöðvar Háskól- ans á Akureyri sem rekur sjáv- arútvegsskólann. Hún segir til- gang skólans að kynna fyrir grunnskólanemendum atvinnu- og námsmöguleika í sjávarútvegi. „Sjávarútvegsskólinn var stofn- aður af Síldarvinnslunni hf. á Nes- kaupsstað árið 2013 og var fyrst eingöngu starfræktur á Aust- fjörðum með aðkomu Síldarvinnsl- unnar og fleiri fyrirtækja fyrir austan. En svo tekur Sjáv- arútvegsmiðstöð Háskólans á Ak- ureyri við skólanum árið 2017 og er hann þá útvíkkaður og náði þannig til sveitarfélaga í Eyjafirði og var einnig á Húsavík. Síðast- liðið sumar taka Reykjavík, Sauð- árkrókur og Vesturbyggð þátt í fyrsta sinn. Í Vesturbyggð var lögð sérstök áhersla lögð á fisk- eldið samhliða fræðslu um almenn- an sjávarútveg,“ segir Guðrún Arndís. Fjármagnað af sjávarútveginum Hún útskýrir að skólinn sé starf- ræktur sem samvinnuverkefni með sveitarfélögum í gegnum vinnu- skólana og fá krakkarnir laun vik- una sem þau eru í skólanum. Þá er skólinn alfarið fjármagnaður af fyrirtækjum í sjávarútvegi sem bæði styrkja hann beint og standa straum af öllum kostnaði. „Frá því að Sjávarútvegsmiðstöðin koma að þessu hafa kennarar skólans verið útskrifaðir úr eða eru nemendur í sjávarútvegsfræðinni við Háskól- ann á Akureyri. Þannig að þetta hefur verið atvinnuskapandi fyrir þau líka,“ bætir Guðrún Arndís við. Aðspurð kveðst hún ekki þekkja til sambærilegra skóla annar stað- ar í heiminum. „Þetta var bara frumkvöðla- starfsemi af hálfu Síld- arvinnslunnar,“ segir hún. Þá hefur skól- inn vakið tölu- verða athygli er- lendis, að sögn hennar og hefur verið hrint af stað þróun nýs skóla þar sem hugmyndafræði og skipulag Sjávarútvegsskóla unga fólksins verður lögð grundvallar nýs Fiskeldisskóla unga fólksins þar sem ungt fólk á aldrinum 14- 20 ára verður frætt um atvinnu- og námsmöguleika í fiskeldi. Lagt í útrás „Háskólinn á Akureyri ásamt Fisktækniskólanum, Háskólanum á Hólum og Arnarlaxi eru núna að hefja samstarf við skóla í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi vegna náms tengt fiskeldi á framhaldsskóla- stigi. Það er hugmyndin um sjáv- arútvegsskólann sem verður til þess að við hjá Háskólanum á Ak- ureyri erum með í því verkefni. Þá er hugsunin sú að koma á fisk- eldisskóla unga fólksins með sjáv- arútvegsskólann að fyrirmynd. Við erum bara rétt að hefja þá vegferð,“ útskýrir Guðrún Arndís. Hún leiðir þátttöku Háskólans á Akureyri og hefur skólinn hlotið um 40 milljóna króna Erasmus+ styrk sem samstarfsaðili í verk- efninu „ Bridges“ en það snýr að þróun starfsmenntunar á sviði fiskeldis. Bridges var úthlutað fjórum milljónum evra í heild, um 600 milljónum íslenskra króna. „Þetta er og verður mjög spenn- andi og krefjandi verkefni,“ segir hún. Hlutverk Háskólans á Akureyri í verkefninu verður meðal annars að hanna verkfæri til miðlunar kennsluefnis og þekkingar um ný- sköpun í sjávarútvegi og innleiða hugmyndafræði Sjávarútvegs- og Fiskeldisskóla unga fólksins bæði á Íslandi og í samstarfslöndum. Þá mun skólinn einnig sjá um skipulag ráðstefna um nám í fisk- eldi þar sem saman munu koma fræðsluaðilar og fyrirtæki í fisk- eldi. Víðtækt hlutverk Starfsemi Sjávarútvegsmiðstöðv- arinnar nær einnig langt út fyrir samstarf við nágrannaríki Íslands og hafa nemendur í fyrrum Sjáv- arútvegsskóla Sameinuðu þjóð- anna, sem nú heitir GRÓ- ptf, Sjávarútvegsskóli UNESCO, sótt Háskólann á Akureyri heim. Hefur starfsmaður Sjávarútvegsmið- stöðvarinnar aðstoðað nemendur meðan á dvöl þeirra stendur. „Í fyrra fengum við um 30 nema víðsvegar að, Afríku, Asíu og Suð- ur-Ameríku, og kynntum fyrir þeim sjávarútveginn hér,“ segir Guðrún Arndís. „Það er líka mjög fræðandi fyrir okkur að vita hvað fólk í þróunarríkjunum er að gera og hvernig sjávarútvegur er þar. Þetta er í hag beggja aðila,“ út- skýrir hún. Ljósmynd/Sjávarútvegsmiðstö Brautryðjandi sjávarútvegsskóli Sjávarútvegsskóli unga fólksins hófst sem leið fyrir Síldarvinnsluna að vekja áhuga ungra heimamanna á atvinnu- tækifærum í sjávar- útvegi. Skólanum hefur vaxið fiskur um hrygg og er útrás hugmyndafræð- innar í bígerð. Guðrún Arndís Jónsdóttir Ljósmynd/Sjávarútvegsmiðstöðin Markmið skólans er að vekja áhuga ungmenna á sjávarútvegi og vonandi velja einhverjir það sem starfsvettvang til framtíðar. Vel tókst að halda úti kennslu sjávarútvegsskólans um land allt í sumar. Að sögn Guðrúnar Arn- dísar var aðsóknin slík að færri krakkar komust að en vildu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.