Morgunblaðið - 12.12.2020, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
S
kólinn hefur stækkað
mjög mikið og þá sér-
staklega á síðasta ári.
Árið 2018 vorum við með
157 nemendur en í fyrra
um fjögur hundruð. Þannig að það
var mjög ánægjuleg breyting milli
ára sem kannski af einhverju leyti
er vegna Covid, ég veit það ekki,
en það getur verið að krakkarnir
hafi ekki átt eins greiða leið í sum-
arvinnu eins og áður,“ segir Guð-
rún Arndís Jónsdóttir, for-
stöðumaður
Sjávarútvegsmiðstöðvar Háskól-
ans á Akureyri sem rekur sjáv-
arútvegsskólann. Hún segir til-
gang skólans að kynna fyrir
grunnskólanemendum atvinnu- og
námsmöguleika í sjávarútvegi.
„Sjávarútvegsskólinn var stofn-
aður af Síldarvinnslunni hf. á Nes-
kaupsstað árið 2013 og var fyrst
eingöngu starfræktur á Aust-
fjörðum með aðkomu Síldarvinnsl-
unnar og fleiri fyrirtækja fyrir
austan. En svo tekur Sjáv-
arútvegsmiðstöð Háskólans á Ak-
ureyri við skólanum árið 2017 og
er hann þá útvíkkaður og náði
þannig til sveitarfélaga í Eyjafirði
og var einnig á Húsavík. Síðast-
liðið sumar taka Reykjavík, Sauð-
árkrókur og Vesturbyggð þátt í
fyrsta sinn. Í Vesturbyggð var
lögð sérstök áhersla lögð á fisk-
eldið samhliða fræðslu um almenn-
an sjávarútveg,“ segir Guðrún
Arndís.
Fjármagnað af sjávarútveginum
Hún útskýrir að skólinn sé starf-
ræktur sem samvinnuverkefni með
sveitarfélögum í gegnum vinnu-
skólana og fá krakkarnir laun vik-
una sem þau eru í skólanum. Þá er
skólinn alfarið fjármagnaður af
fyrirtækjum í sjávarútvegi sem
bæði styrkja hann beint og standa
straum af öllum kostnaði. „Frá því
að Sjávarútvegsmiðstöðin koma að
þessu hafa kennarar skólans verið
útskrifaðir úr eða eru nemendur í
sjávarútvegsfræðinni við Háskól-
ann á Akureyri. Þannig að þetta
hefur verið atvinnuskapandi fyrir
þau líka,“ bætir Guðrún Arndís
við.
Aðspurð kveðst hún ekki þekkja
til sambærilegra skóla annar stað-
ar í heiminum. „Þetta var bara
frumkvöðla-
starfsemi af
hálfu Síld-
arvinnslunnar,“
segir hún.
Þá hefur skól-
inn vakið tölu-
verða athygli er-
lendis, að sögn
hennar og hefur
verið hrint af
stað þróun nýs
skóla þar sem hugmyndafræði og
skipulag Sjávarútvegsskóla unga
fólksins verður lögð grundvallar
nýs Fiskeldisskóla unga fólksins
þar sem ungt fólk á aldrinum 14-
20 ára verður frætt um atvinnu-
og námsmöguleika í fiskeldi.
Lagt í útrás
„Háskólinn á Akureyri ásamt
Fisktækniskólanum, Háskólanum
á Hólum og Arnarlaxi eru núna að
hefja samstarf við skóla í Noregi,
Svíþjóð og Finnlandi vegna náms
tengt fiskeldi á framhaldsskóla-
stigi. Það er hugmyndin um sjáv-
arútvegsskólann sem verður til
þess að við hjá Háskólanum á Ak-
ureyri erum með í því verkefni.
Þá er hugsunin sú að koma á fisk-
eldisskóla unga fólksins með sjáv-
arútvegsskólann að fyrirmynd.
Við erum bara rétt að hefja þá
vegferð,“ útskýrir Guðrún Arndís.
Hún leiðir þátttöku Háskólans
á Akureyri og hefur skólinn hlotið
um 40 milljóna króna Erasmus+
styrk sem samstarfsaðili í verk-
efninu „ Bridges“ en það snýr að
þróun starfsmenntunar á sviði
fiskeldis. Bridges var úthlutað
fjórum milljónum evra í heild, um
600 milljónum íslenskra króna.
„Þetta er og verður mjög spenn-
andi og krefjandi verkefni,“ segir
hún.
Hlutverk Háskólans á Akureyri
í verkefninu verður meðal annars
að hanna verkfæri til miðlunar
kennsluefnis og þekkingar um ný-
sköpun í sjávarútvegi og innleiða
hugmyndafræði Sjávarútvegs- og
Fiskeldisskóla unga fólksins bæði
á Íslandi og í samstarfslöndum.
Þá mun skólinn einnig sjá um
skipulag ráðstefna um nám í fisk-
eldi þar sem saman munu koma
fræðsluaðilar og fyrirtæki í fisk-
eldi.
Víðtækt hlutverk
Starfsemi Sjávarútvegsmiðstöðv-
arinnar nær einnig langt út fyrir
samstarf við nágrannaríki Íslands
og hafa nemendur í fyrrum Sjáv-
arútvegsskóla Sameinuðu þjóð-
anna, sem nú heitir GRÓ- ptf,
Sjávarútvegsskóli UNESCO, sótt
Háskólann á Akureyri heim. Hefur
starfsmaður Sjávarútvegsmið-
stöðvarinnar aðstoðað nemendur
meðan á dvöl þeirra stendur.
„Í fyrra fengum við um 30 nema
víðsvegar að, Afríku, Asíu og Suð-
ur-Ameríku, og kynntum fyrir
þeim sjávarútveginn hér,“ segir
Guðrún Arndís. „Það er líka mjög
fræðandi fyrir okkur að vita hvað
fólk í þróunarríkjunum er að gera
og hvernig sjávarútvegur er þar.
Þetta er í hag beggja aðila,“ út-
skýrir hún.
Ljósmynd/Sjávarútvegsmiðstö
Brautryðjandi sjávarútvegsskóli
Sjávarútvegsskóli unga
fólksins hófst sem leið
fyrir Síldarvinnsluna að
vekja áhuga ungra
heimamanna á atvinnu-
tækifærum í sjávar-
útvegi. Skólanum hefur
vaxið fiskur um hrygg og
er útrás hugmyndafræð-
innar í bígerð.
Guðrún Arndís
Jónsdóttir
Ljósmynd/Sjávarútvegsmiðstöðin
Markmið skólans er að vekja áhuga ungmenna á sjávarútvegi og vonandi velja einhverjir það sem starfsvettvang til framtíðar.
Vel tókst að halda úti kennslu
sjávarútvegsskólans um land allt
í sumar. Að sögn Guðrúnar Arn-
dísar var aðsóknin slík að færri
krakkar komust að en vildu.