Morgunblaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 28
lega tengt kórónuveirufaraldrinum.
Það voru 53 útköll á stóru skipunum
sem er nokkuð undir meðaltali fyrri
ára,“ segir Örn Smárason, verk-
efnastjóri sjóbjörgunar hjá Lands-
björg.
Hann segir að þessa breytingu
megi meðal annars rekja til þess að
ferðamönnum hafi fækkað mikið.
„Björgunarskipið á Ísafirði hefur
mikið verið að sinna sjúkraflutn-
ingum af skemmtiferðaskipum og
eins leit og björgun í Horn-
strandafriðlandinu, þeir fara úr næst-
um þrjátíu útköllum í fyrra niður í
níu. Þrátt fyrir að útköllin [á lands-
vísu] séu enn nokkuð mörg þá erum
við ánægð með að alvarleiki útkall-
anna hefur verið eilítið minni í ár en í
fyrra.“
Örn segir alveg ljóst að af öllum
verkefnum ársins standi upp úr um-
fangsmikil leit að skipverja sem féll
útbyrðis 18. maí þegar fiskiskipið sem
hann var á var á leið til hafnar á
Vopnafirði. „Það fór gríðarlega mikill
tími í skipulag á leitinni og tóku þátt
þrjú stór björgunarskip og átta minni
bjargir í leit í um þrjá daga. Þetta var
skelfilegur atburður og flókið verk-
efni, kallaði á mikinn mannafla.
Sennilega voru um 90 manns í verk-
efninu að leita á sjó og á landi á sama
tíma þegar mest lét.“
Í aðgerðunum komu við sögu
björgunarbátar og -skip, drónar, flug-
vél Landhelgisgæslunnar og neðan-
sjávardróni. Fjörur voru gengnar
beggja vegna fjarðarins og svæði tví-
leituð. Allt kom þó fyrir ekki og til-
kynnti lögreglan á Austurlandi 25.
maí að skipulagðri leit væri hætt án
þess að skipverjinn kæmi í leitirnar.
Faraldurinn truflar félagsstarf
Kórónuveirufaraldurinn truflaði sem
betur fer ekki björgunargetu félags-
ins á árinu, að sögn Arnar. „Við erum
búin að vera með hugann mikið við
þetta og fórum strax mjög skilvirkt í
það að koma til okkar fólks leiðbein-
ingum um búnað og persónuvarnir. Í
sjóbjörgun hefur blessunarlega lítið
reynt á þetta en menn hafa nýtt
hanska og grímur. Sem betur fer hafa
sjúkraflutningar á sjó hitt einmitt á
þann tíma sem eru lægðir í faraldr-
inum, en mest var af þeim í sumar.
Við höfum verið mjög heppin hvað
þetta varðar og sem betur fer ekki
þurft að fara í nein Covid-tengd verk-
efni.“
Hann segir hins vegar að kórónu-
veirufaraldurinn hafi haft áhrif á allt
félagsstarf og æfingar. „Það er auð-
vitað bagalegt, en menn eru hringinn
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
F
jöldi útkalla er svipaður og í
fyrra. Þeim hefur fækkað
meira hjá stóru björgunar-
skipunum okkar, sem er að
einhverju leyti alveg klár-
um landið að einbeita sér að því að
halda sér útkallshæfum og draga því
mikið úr innra starfi, æfingum og
öðru slíku. Þó svo að við munum ná
okkur aftur á strik er ekki gott að
geta ekki haldið öllu við eins og venju-
lega.“
Slysavarnir sjómanna
Þá segir hann að helstu verkefni
næsta árs verði áætluð endurskoðun
á námsefni félagsins auk þess sem
mikilvægt sé að leggja áherslu á
slysavarnir sjómanna og minna á
neyðarrásina.
Stefnt hefur verið að umfangsmik-
illi endurnýjun björgunarflota félags-
ins. Spurður hvort faraldurinn hafi
haft áhrif á þau áform, svarar Örn: „Í
sannleika sagt þá óttuðumst við í
mars að þurfa að gera algjört hlé á
því verkefni og bjuggum okkur undir
það. En í sumar ákvað ríkisstjórnin
að aðstoða okkur við að endurnýja
þrjú af þrettán stóru björgunar-
skipunum. Það er vissulega minna en
við vonuðum en við erum mjög fegin
yfir þeim stuðningi sem þó er og nú
er verið að ljúka við útboðsgögn
vegna útboðs sem fer í gang strax á
næsta ári.“
Morgunblaðið/Eggert
Alvarlegum
útköllum
fækkaði
Útköll björgunarskipa og -báta Landsbjargar
2016 til 2020 Heimild: Landsbjörg
*Það sem af er ári 2020
2016 2017 2018 2019 2020*
Stærri skip 61 64 64 91 53
Minni skip og bátar 56 75 83 106 96
Samtals 117 139 147 197 149
Breyting milli ára 22 (19%) 8 (6%) 50 (34%) -48 (-24%)
200
175
150
125
100
197
149
147
139
117
Örn Smárason segir útköll
björgunarskipa og -báta á
landsvísu nokkuð mörg þrátt
fyrir að hafa fækkað milli ára.
Umfangsmikil leit var í
Vopnafirði í maí eftir að
skipverji féll útbyrðis.
Útköllum sjóbjörgunarsveita fækkaði nokkuð milli
ára og má meðal annars rekja þá þróun til færri
ferðamanna. Verkefnin voru þó næg hjá björg-
unarsveitarmönnum.
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum