Fréttir - Eyjafréttir - 22.01.2020, Side 6
6 | Eyjafréttir | 22. janúar 2020
Gunnar Már Kristjánsson var
vígður til prests í Stamsund
kirkju í Lofoten í Noregi þann
5. janúar síðastliðinn. Gunnar
er hress Eyjapeyi sem hefur
alla tíð verið virkur í félags-
skapnum Vinum Ketils bónda
og áberandi í þeirra hópi.
Það lá beinast við að byrja
á að spyrja Gunnar hvernig
VKB villingur verður prestur í
Noregi?
„Svarið er í sjálfri spurningunni.
Þegar maður tilheyrir bræðrafélagi
eins og VKB eru manni allar dyr
opnar. Enda samtök með alþjóðleg
ítök og erum við bræður ötulir
í að hvetja hvern annan áfram í
vitleysunni.“ Gunnar var þó ekki
lengi að skipta yfir í alvarlegri gír
eins og kirkjunnar manni sæmir.
„Það er ekki öllum gefið að ná
einbeitingu og fótfestu í lífinu á
ungdómsárunum og fyrstu árunum
sem fullorðinn. Þeir sem muna eftir
mér á eyjunni fögru muna eflaust
að áfengi var ekki mín stærsta gæfa
og var ég það sem Birgir Þór bakari
kallar „lundabarn“. Árið 2005
lánaðist mér að hætta að drekka
áfengi. Byrjaði ég á sama tíma að
leita meira í trúna.“
Langaði að vinna með fólki
Í trúnni fann Gunnar eitthvað sem
gaf honum kraft og ró sem hann
hafði ekki áður. Á sama tíma hætti
Gunnar líka á sjónum og fór að
vinna í landi. „Ég vann í Nethamri
rúm þrjú ár. Seinna fór ég að taka
að mér aukavinnu hér og þar. Ég
þjálfaði sund hjá stór- og meistara-
liðinu Ægi íþróttafélagi fatlaðra. Þá
var ég einnig farinn að hjálpa til í
barna- og unglingastarfi í Landa-
kirkju. Á einhverjum tímapunkti
vaknaði ég upp og fattaði að
ég hlakkaði meira til að mæta í
aukavinnurnar en föstu vinnuna.
Það var meira fyrir mig að vinna
með fólki. Það gæti mögulega
verið að einhverjar af predikunum
frá Séra Gumma (sem allir kalla
Örra af einhverri ástæðu) hafi haft
einhver áhrif, þrátt fyrir að hann
haldi leiðinda lofræður inn á milli
um viftuna sem er reist á hverju ári
í annars gullfallega Herjólfsdaln-
um. Ég veit ekki nákvæmlega hvað
varð til þess að ég fór að hugsa að
prestastarfið gæti verið eitthvað
Hvernig verður VKB
villingur prestur í Noregi?
Fjölskyldan að lokinni guðþjón-
ustu. Aftari röð frá vinstri:
Unndís Ósk Gunnarsdóttir,
heldur á Jón Gísla Garðarssyni.
ég, Guðbjörg Guðmundsdóttir,
móðir Gunnars, Þuríður Gísla-
dóttir, systir Gunnars.
Í fremri röðinni eru börn
Gunnars og Unndísar. Frá vinstri
Mattías Breki, Guðbjörg Salka
og Sæmundur Guðni.