Fréttir - Eyjafréttir - 22.01.2020, Side 9
22. janúar 2020 | Eyjafréttir | 9
Um 200 próftökur fóru fram í
Visku í kringum jól og áramót, sem
er nokkur aukning frá fyrri prófa-
tíðum. Um er að ræða bæði loka-
og upptökupróf og stendur vertíðin
frá nóvember og fram í janúar.
Mikill meirihluti þessara prófa er
á háskólastigi en einnig er eitthvað
um próf á framhaldsskólastigi og
próf til rétt-
inda. Valgerður
Guðjónsdóttir
segir bæði vera
um stað- og
fjarnemendur
að ræða. „Við
höfum auk
þess verið að
fá töluvert af
nemendum sem eru í staðnámi í
borginni í sjúkra- og upptökupróf
hjá okkur eftir jól. Þetta er þá fólk
sem er að koma heim um jólin og
nýtir sér þessa þjónustu hjá okkur
í stað þess að þurfa að rjúka upp á
land strax eftir hátíðarnar. Þá hefur
fjarnám frá Eyjum aukist undan-
farin ár og það skýrir að hluta
þessa aukningu.“ Valgerður á von
á að annar eins fjöldi muni taka
próf í vor. Þessi hái fjöldi prófa á
sér m.a. þá skýringu að það voru
um tuttugu nýnemar í fjarnámi frá
Háskólanum á Akureyri.
Það er eitt og annað framundan
á vorönn hjá Visku. Seinni hluti
Grunnmenntaskólans er nú þegar
hafinn og nokkrir hópar í íslensku
fyrir útlendinga, bæði í grunnnám
og einnig framhaldshópar. Þessir
námshópar er
annars vegar
Pólverjar og
svo blandaðir
hópar.
Fram-
undan eru svo
menntabúðir
og alls kyns
námskeið.
Albert og Bergþór verða með stutt
námskeið 29. janúar og Ragnhildur
Vigfúsdóttir mun koma með nám-
skeið Jákvæðni og vellíðan í starfi
og erindi sem kallast ertu gleðigjafi
eða fýlupúki. Hún mun samhliða
þessu vera með erindi fyrir starfs-
fólk Grunnskólanna. Við stefnum á
saumanámskeið og matreiðslunám-
skeið og ýmislegt fleira. Auglýsing
frá okkur kemur innan tíðar.
Mikið líf í fjarnámi
hjá Visku
Það var svipað stef og undan-
farnar vikur hjá sjávarút-
vegsaðilum í Eyjum í vikunni.
Bræla eftir brælu og ekkert
útlit fyrir betri tíð.
„Það er bara endalaus bræla,
suðvestan áttir og haugasjór. Það
kemur nú ekki á óvart þótt séu
brælur í janúar en þetta er engu
líkt,“ sagði Sverrir Haraldsson hjá
Vinnslustöðinni þegar við ræddum
við hann á mánudag og hélt áfram,
„bátarnir hafa þó verið á sjó og afli
verið ágætur, þegar hægt er að vera
að. En það þarf að hafa mikið fyrir
þessu þegar tíðarfarið er svona.“
Brynjólfur landaði á sunnudag og
Drangavík á mánudag. Báðir voru
með fullfermi af blönduðum afla.
Breki er væntanlegur á miðviku-
dag, þeir eiga ekki langt í að fylla
sig en næsta sólarhring verður
lítið hægt að gera vegna veðurs að
sögn Sverris. Kap II er byrjuð á
netum vestur í Breiðafirði og búin
að landa einu sinni. Veiðin er að
komast í gang þar en veðrið er að
gera það erfitt eins og annað. Upp-
sjávarskipin hjá Vinnslustöðinni
hafa ekkert farið út sem af er ári
og þar bíða menn fregna af loðnu.
Eyþór Harðarson hjá Ísfélaginu
var nokkuð brattur þegar við
náðum í hann. „Heimaey landaði
um helgina 750 tonnum af síld úr
íslenska stofninum. Síldin fékkst
50 sjómílur vestur úr Reykjanesi
í flotvörpu. Nú bíða uppsjávar-
skipin eftir verkefnum og helsta
vonin er að einhver loðna finnist í
því magni að kvóti verði gefinn út.
Annars er kolmunnaveiði í apríl
það næsta sem þau gera ef loðnan
sýnir sig ekki.“ Ottó N. Þorláksson
landaði 424 körum af blönduðum
afla í Eyjum á mánudag og Dala
Rafn var á miðunum fyrir austan
land í rysjóttu veðri eins og lands-
menn hafa orðið varir við síðustu
vikurnar.
„Smáey fór út á fimmtudag. Það er
búið að ganga ágætlega þrátt fyrir
leiðinda veður, þeir hafa verið í ýsu
og karfa. Bergey fór í prufutúr á
laugardag sem gekk vel. Þeir komu
inn vegna brælu og var sá tími var
notaður til að gera sjóklárt. Vest-
mannaey fór norður á fimmtudag
í Slippinn á Akureyri en þar á að
fara í endurbætur á millidekki,“
sagði Arnar Richardsson í samtali
við Eyjafréttir á mánudag.
Gylfi Sigurjónsson skipstjóri á
Þórunni Sveinsdóttur var bundinn
við bryggju þegar við náðum í
hann á mánudaginn. „Við skutumst
út milli bræla vestur í skerjadýpi.
Náðum í 350 kör og lönduðum
því í Þorlákshöfn á laugardag.
Það fer svo út með Akranesinu
í dag.“ Gylfi sagði þessar ferðir
Smyril Line frá Þorlákshöfn opna
á fleiri möguleika að koma vöru
með meiri hraða en áður á markað
í Þýskalandi. „Þetta skiptir okkur
máli varðandi karfann, fiskur sem
fer héðan á fimmtudegi getur
farið á sama uppboð og fiskur
sem við sendum frá Þorlákshöfn
mánudeginum á eftir. Þetta getur
verið góður möguleiki sérstaklega
þegar við er ekki á réttu róli vegna
veðursins,“ sagði Gylfi. Hann segir
þá ætla að fara út í fyrramálið og
reyna að ná í einn stubb fyrir næstu
brælu.
Kristján Georgsson hjá Fisk-
markaði Vestmannaeyja sagðist
varla hafa fengið fisk inn í hús hjá
sér þar til á laugardaginn en þá var
mikill afli frá smábátum í kringum
Eyjar. „Það var flottur dagur, góð
veiði og fínn fiskur. Nú bíðum
við bara eftir fleiri svona dögum
fyrir smábátana en það er oft gott
fiskirí hjá þeim á þessum árstíma.“
Það var svipað hljóðið í Kidda og
öðrum varðandi tíðarfarið. „Ég veit
ekki hvað er langt síðan maður sá
ákveðna báta hérna vera bundna
við bryggju í rúma viku. Þetta
er búið að vera afleitt veður hjá
okkur.“ Kiddi sagði síðasta ár hafa
verið fínt á markaðnum og mjög
svipað og 2018. „Svona miðað
við allt þá er ég nokkuð sáttur við
árið, þetta eru orðnir fáir bátar sem
eru að skila til okkar en við höfum
verið að fá mikið frá Ottó á síðasta
ári og það er uppgrip fyrir okkur.“
Það er bara endalaus bræla
Sjávarútvegurinn
Ný Bergey kom til heimahafnar sl. föstudag.
V
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur hlýhug, samúð og vinarhug
vegna andláts ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa.
Sævars Brynjólfssonar
skipstjóra
Pósthússtræti 3, Keflavík
Einnig þökkum við öllum þeim sem af alúð og fagmennsku
studdu hann í veikindum hans.
Ingibjörg Hafliðadóttir,
Bryndís Sævarsdóttir, Einar Þ. Magnússon,
Hafliði Sævarsson, Jenný Lovísa Þorsteinsdóttir,
Brynjólfur Ægir Sævarsson, Áslaug Ármannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Eyjafréttir
- vertu með á nótunum!