Fréttir - Eyjafréttir - 22.01.2020, Page 10
10 | Eyjafréttir | 22. janúar 2020
Ég er ótvíræður
Yatzy-meistari liðsins
Lágkolvetna brokkolísalat,
pizza og Quinoa puffs kökur
Ég vil byrja á því að þakka
Guðbjörgu áskorunina. Þar
sem ég hef sjálf dregið úr
kolvetnaneyslu sl. 18 mánuði
ætla ég að koma með nokkrar
hugmyndir í þeim dúr.
Fyrst kemur brokkolí salat sem ég
hef gert í mörg ár. Í upprunalegu
uppskriftinni er 1 dl. sykur en ég
er farin að setja sykurlaust síróp í
staðinn og er salatið alveg jafn gott
þannig.
Brokkolísalat
• 2 búnt brokkolí
• 1 rauðlaukur
• 1 dl sólblómafræ eða furu-
hnetur
• 1,5 dl Majones (nota oft
meira eða set smá sýrðan
rjóma)
• 3 msk rauðvínsedik
• 1 dl sykur (nú sleppi ég sykr-
inum og set ca 3 msk Fiber
sírop, smakka mig til)
• 300 gr saxað og steikt beikon.
Byrjið á að steikja beikonið og
kælið. Ristið fræin á pönnu og
kælið. Brytjið brokkolíið smátt og
rauðlaukinn líka. Blandið saman
majonesi, rauðvinsediki og Fiber-
sírópi og hrærið vel saman. Bætið
öllu hinu saman við og blandið vel.
Þetta er bæði gott á kex og brauð
og einnig sem meðlæti með kjöti.
Við fjölskyldan bökum, eins og svo
margir, pizzu á föstudögum. Ég
geri mér tvenns konar pizzu botn.
Gott að geta breytt til.
Pizzabotn úr huski
• 300 gr ostur
• 3 egg
• 2 msk Husk
• Krydd, t.d heitt pizza krydd
frá Pottagöldrum.
Allt sett í skál og hrært saman.
Dreift á ofnplötu milli tveggja laga
af bökunarpappír. Mér finnst best
að nota hendurnar eða glas til þess
að fletja út botninn. Baka við 180
gr í 10-15 mín. Tekið út og álegg
sett á og bakað aftur þangað til
pizzan lítur út eins og þú vilt hafa
hana. Sjálf nota ég pizzaofn. Þá
nota ég 1/3 af uppskriftinni, móta
hring og baka fyrst í bakaraofn-
inum og baka svo með álegginu í
pizzaofninum.
Spínat pizzabotn
• 2 lúkur ferskt spínat
• 1 egg
• 100 gr ostur
• Heitt pizzakrydd eða ítölsk
hvítlauksblanda frá Potta-
göldrum
Spínatið skolað og undið og sett
í blandara ásamt egginu. Verður
vatnsþunnt. Ostinum og kryddinu
blandað saman við með gaffli.
Mótaður 12“ hringur á olíuborinn
bökunarpappír. Best að nota
hendurnar í þetta. Bakað við 200 g
í 12-15 mínútur þar til botninn er
orðinn fallega gylltur.
Mér finnst nauðsynlegt að eiga
einhver sætindi í frysti þegar
sykurpúkinn er að trufla mig. Þá
er t.d mjög gott að eiga sykurlaust
„rise crispies“ úr quinoa puffs
sem ég hef reyndar ekki fundið í
búðum í Vestmannaeyjum. Ég enda
allar borgarferðir í Nettó í Mjódd
og birgi mig upp af lágkolvetna
vörum.
Quinoa puffs kökur
• 80 g ósaltað smjör
• 150 Cavalier súkkulaði (fást
í Nettó og eru þau bestu að
mínu mati)
• ¼ tsk sjávarsalt
• 150 g Fiber Síróp eða Sukrin
gold síróp
• 6 dr Karamellustevia
• 160 g Quinoa puffs.
Hitið smjör, súkkulaði, síróp og
salt í potti (stundum sleppi ég
saltinu og nota venjulegan smjörva)
Hrærið stöðugt í og blandið quinoa
puffs útí þegar allt er bráðnað
saman. Ég set þetta svo í minnstu
muffinsformin og geymi í frysti.
Einn, tveir eða þrír molar með
kaffinu er svo gott.
Að lokum ætla ég að skora
á vinkonu mína Ragnheiði
Borgþórsdóttur að koma með
eitthvað gott í næsta blaði.
Hún býr til einstaklega góðan,
hollan og fallegan mat.
matgæðingurinn
Þóra Þorleifsdóttir
Eins og eflaust hefur ekki farið
framhjá neinum tekur Íslenska
landsliðið í handbolta þátt í
úrslitakeppni Evrópumeist-
aramótsins þessa dagana. Þar
er okkar maður, Kári Kristján
Kristjánsson, í stóru hlutverki.
Við heyrðum í Kára á milli
leikja, í miðri Yatsy viðureign.
Nafn: Kári Kristján Kristjánsson.
Fæðingardagur: 28. okt. 1984.
Fæðingarstaður: Vestmanna-
eyjum.
Fjölskylda: Giftur Kiddý. Á Klöru
og Kristján Kára + norska skógar-
köttinn Kút.
Uppáhalds vefsíða: eyjafrettir.is
Aðaláhugamál: Þessar blessuðu
íþróttir.
Uppáhalds app: NFL.
Uppáhalds matur: Úfffhh, hvar á
ég að byrja. Segjum samt rifsauga-
steik, ógeðslega gott.
Versti matur: Soðinn Lax, ógeð.
Hvað óttastu: Að missa heilsuna.
Mottó í lífinu: Út með það.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Alexander Mikla.
Hvaða bók lastu síðast: To Kill a
Mockingbird eftir Harper Lee.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Já... Packers,
Brewers, Liverpool og ÍBV
Ertu hjátrúarfullur: Jaaaá.
Uppáhalds sjónvarpsefni: Gæða
heimildarefni og auðmelt glæpó.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Amerísk sveitatónlist.
Hvernig er að vera kominn aftur
í lykilhlutverk í landsliðinu?
Þetta er pínu óvænt en mikil
viðurkenning. Eins og alltaf er upp
og niður í þessu en fyrst fremst að
reyna drullast til að halda stöðug-
leika. Sem er búið að ganga upp
og ofan.
Er þetta mót eitthvað öðruvísi en
fyrri mót? Já ég verð að segja það,
hef aldrei verið í stærra hlutverki
en akkúrat núna bæði innan sem
utan vallar.
Hvernig er stemmningin í hópn-
um? Hópurinn er flottur bræðingur
af ungum og eldri leikmönnum
og svo tveimur gömlum. Þeir sem
eldri eru að reyna fá þá yngri úr
símunum og miðla til þeirra því
sem lífið hefur upp á að bjóða.
Hefur einhver unnið þig í Yatzy
í ferðinni? Ekki nokkur, ég er
ótvíræður Yatzymeistari liðsins og
þó víða væri leitað.
eyjamaðurinn
Kári Kristján Kristjánsson