Kópavogsblaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 2

Kópavogsblaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 2
Kópavogsblaðið2 kfrettir.is Útgefandi: ago.slf - Lyngheiði 1 - 200 Kópavogi Ritstjóri: Auðun Georg Ólafsson - Sími: 899 3024 Netfang: audun@kfrettir.is Heimasíða: www.kfrettir.is Netfang: kfrettir@kfrettir.is Prentun: Ísafold. Dreifing: Póstdreifing Kópavogsblaðinu er dreift frítt í öll hús í Kópavogi. Ritstjórnarstefnan er eftirfarandi: Kópavogsblaðið vill stuðla að aukinni samheldni og samstöðu Kópavogsbúa. Við höfum sérstakan áhuga á skemmtilegu mannlífi og atvinnulífi í Kópavogi og því sem gerir Kópavog að sérstökum og jákvæðum bæ að búa í, starfa og heimsækja. Á fundi Rótarýklúbbs Kópavogs fyrir skömmu var Guðbjörg Kristjáns- dóttir listfræðingur og forstöðu- maður Listasafns Kópavogs, Gerðarsafns, útnefnd Eldhugi Kópavogs 2014. Rótarýklúbbu- rinn hefur um árabil útnfefnt Eldhuga ársins. Á 350 ára afmæ- li Árna Magnússonar hand- ritasafnara, 13. nóvember sl. var opnuð merk sýning á Gerðar- safni í Kópavogi, að viðstöddum m.a. Danadrottingu, forseta Íslandss, menntamálaráðherra og fjölda fræðimanna á sviði lista og menningarsögu. Tilefnið var opnun sýningar á myndum, ásamt skýringartextum úr nýútgefinni bók eftir Guð- björgu Kristjánsdóttur, Íslenska teiknibókin. Á miðöldum og fram á endurreisnartímann bjuggu listamenn til handbækur með mynd- efnum sem þeir notuðu við vinnu sína og gengu mann fram af manni. Þessi vinnuplögg ey- ddust flest og týndust með tímanum. Í Evrópu allri er nú aðeins vitað um tæplega fjörutíu slík handrit. Á Norðurlönd- unum er aðeins til eitt, Íslenska teiknibókin. Hún varpar ómetanlegu ljósi á vinnulag teiknara og lýsenda handrita á fjórtándu og fimmtándu öld og er í raun kennslubók teiknarans, rétt eins og Snorra-Edda var rituð sem kennslubók ungra skálda. Segja má að Teiknibókin hafi samskonar gildi fyrir skilning okkar á lýsingum í handritum og Edda Snorra fyrir rannsóknir á kveðskap dróttkvæðanna. Teiknibókin er Blásarasextett Skóla-hljómsveitar Kópavogs fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi atriði í miðnámi á Nótunni, uppskeruhátíð tón- listarskólanna. Sextettinn skipa sex stúlkur úr 8. og 10. bekk grunnskóla. Þær heita Auður Skarphéðinsdóttir, Björg Stein- unn Gunnarsdóttir, Helga Mi- kaelsdóttir, Herdís Ágústa Linnet, Ingibjörg Ragnheiður Linnet og Katrín Guðnadóttir. Nótan var haldin hátíðleg í Hörpu síðastliðinn sunnudag. Kópavogur átti þar fjóra fulltrúa, tvo frá Tónlistarskóla Kópavogs og tvo frá Skólahljómsveitinni. Auk Blásarasextettsins léku sex nemendur í grunnnámi saman á píanó lagið Litla spörfuglinn, þau heita Andri Snær Valdimars- son, Andrea Ósk Jónsdóttir, Helena Rós Jónsdóttir, Ingibjörg Brynja Finnbjörnsdóttir, Katrín Arnardóttir og Þórhildur Anna Traustadóttir. Þá fluttu Hjördís Anna Matthíasdóttir og Vilhjál- mur Guðmundsson Lærdóms- blús við undirleik Matthíasar V. Baldurssonar. Loks lék Anna Elísabet Sig- urðardóttir á víólu við undirleik Evu Þyri Hilmarsdóttur. Anna Elísabet flutti 1. þátt Märchen- bilder eftir Schumann en hún tók þátt í flokki nemenda í fram- haldssnámi. Á hátíðinni komu fram fjöldi atriða frá tónlistar- skólum víðs vegar að af landinu en keppt var um viðurkenningar- gripi í tíu mismunandi flokkum. Í valnefnd sátu þau Helga Þóra- rinsdóttir, Martial Nardeau og Þóra Einarsdóttir. Félagar úr Kiwanis-klúbbnum Eldey í Kópavogi Reynir, Guðlaugur, Steinn og Gestur heimsóttu nýlega sambýlið að Marbakka- braut 14 og afhentu tveimur íbúum tvær iPad air tölvur. Söfnun klúbbsins í verk- efninu Isgolf 2012 var notuð í þetta verkefni sem mæltist mjög vel fyrir hjá íbúum sambýlisins. Guðbjörg Kristjánsdóttir Eldhugi Kópavogs 2014 Blásarakvartett SK fékk Nótuverðlaun Eldey gefur spjaldtölvur Eldhuginn ásamt formanni viðurkenningarnefndar Þóri Ólafssyni t.v og Jóni Ögmundssyni formanni klúbbsins. Spurning dagsins: Bæjalífið: Bæjalífið: Hvað vilt þú greiða bæjar- fulltrúum Kópa- vogs í laun? Óskar Guðmundssson: „Menn eiga að fá borgað eftir afköstum. Bæjarfulltrúar eiga að vera á tímakaupi.“ Páll Pétursson: „Best væri að það væri bara til einn pottur sem tekjur þeirra kæmu úr. Ef það eru fleiri bæjar- fulltrúar, þá minnkar potturinn Andri Týr: „Þeir eiga að vera áfram í 27% starfi og miða við meðallaun í landinu sem eru 350 þúsund. 150 þúsund fyrir bæjarfulltrúa er því eðlilegt.“ Valgerður Hjartardóttir: „320 þúsund fyrir 100% vinnu.“ Anna María Hákonardóttir: „Ég þekki ekki hvað viðvera þeirra er mikil. En fyrir fullt starf mætti þetta vera um 350 – 400 þúsund á mánuði.“ Hallur Guðmundsson: „Þetta þurfa að vera mann- sæmandi laun. Ef þetta á að vera 100% starf þá þurfa launin að vera þannig að hæft fólk fáist í þetta. En þá myndi ég vilja að fólk væri virkt í þessu starfi og myndi sitja í öllum nefndum og ráðum.“ ein af merkustu skinnbókunum í safni Árna Magnússonar. Verðmæti hennar birtist ekki í ytra útliti: brotið er lítið, bók- fellið þykkt og dökkt, blöðin illa skorin, sum skert og önnur götuð, enda var bókin í notkun allt fram á sautjándu öld. Auður hennar er fólginn í einstakri innsýn í myndheim kaþólskun- nar, sérkenni íslenskrar mynd- og skreytilistar á síðmiðöldum og táknfræði trúarlegra mynd- verka. Guðbjörg Kristjánsdóttir list- fræðingur hefur um áratuga skeið rannsakað Teiknibókina og niðurstöður hennar koll- varpa flestu því sem áður hefur verið haldið fram. Hún hefur einangrað ólíka stíla í hand- ritinu og heimfærir þá upp á fjóra teiknara sem voru uppi á árabilinu 1330 – 1500. Í rannsókn sinni bregður hún ljósi á það hvernig túlkun teiknaranna þróast í tímans rás, bendir á fyrirmyndir þeirra og hliðstæður í öðrum bókum. Með nákvæmri og frumlegri rannsókn á einu handriti bætir Guðbjörg mörgum köflum við menningarfsögu okkar. Frekari staðfesting á þessu merka verki Guðbjargar fékkst síðan við úthlutun bókmennta- verðlauna ársins á Bessastöðum 30. janúar sl. er Guðbjörg hlaut verðlaunin í flokki fræðibóka. Auður Skarphéðinsdóttir, Björg Steinunn Gunnarsdóttir, Helga Mikaelsdóttir, Herdís Ágústa Linnet, Ingibjörg Ragnheiður Linnet og Katrín Guðnadóttir. Eldeyjarfélagarnir Reynir, Guðlaugur, Steinn og Gestur komu færandi hendi.

x

Kópavogsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.