Kópavogsblaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 14
Kópavogsblaðið14
Framhaldsskóla-nemendur um land allt fá ókeypis bókasafns-
skírteini, verður boðið á tiltekna
tónleika í Salnum og fá frítt í
sund á meðan á verkfalli ken-
nara stendur. Þetta var samþyk-
kt á fundi bæjarráðs Kópavogs.
Nemendur eru auk þess hvattir
til þess að nýta sér ókeypis að-
gang að Gerðarsafni og öðrum
söfnum í Kópavogi.
Með framtakinu vill Kópavogs-
bær kynna ungu fólki listir,
menningu, og aðra þá afþreyingu
sem í boði er í Kópavogi en um
leið stuðla að fræðslu og virkni
framhalds-
skólanema á meðan á verkfalli
stendur.
„Við vonumst sannarlega til þess
að framhaldsskólanemendur
nýti tækifærið og kynni sér það
sem Kópavogur hefur upp á að
bjóða,“ segir Ármann Kr. Ólafs-
son bæjarstjóri Kópavogs.
Í verkfallinu verður boðið upp
á námskeið og fyrirlestra í
Bókasafni Kópavogs. Einnig
stendur leiðsögn um Héraðs-
skjalasafn Kópavogs, Tónlistar-
safn Íslands og Náttúrufræði-
stofu Kópavogs nemendum
til boða. Þá verður ókeypis á
tónleikana Við slaghörpuna og
veittur afsláttur af tónleikum
Sætabrauðsdrengjanna mið-
vikudaginn 26. mars. Þá geta
framhaldsskólanemendur nýtt
sér góða lesaðstöðu í aðalsafni
bókasafnsins og lesaðstöðu í
ungmennahúsinu Molanum, sem
einnig ætlar að lengja opnunar-
tíma sinn í verkfallinu. Eins og
alltaf er ókeypis inn á Gerðar-
safn en þar stendur sýning
Blaðaljósmyndarafélags Íslands
yfir.
Bent er á að öll þessi söfn eru
á sama reitnum og því stutt að
labba á milli. Þaðan er örstuttu
spölur yfir í Sundlaug Kópavogs
en einnig er ókeypis í Salalaug í
verkfallinu.
Framhaldsskólanemendum
verður kynnt tilboðið í gegnum
nemendafélög skólanna. Þá eru
ítarlegar upplýsingar að finna á
vef Kópavogsbæjar. Til að nýta
sér tilboðin þurfa nemendur að
framvísa nemendaskírteini.
Vinstri græn munu bjóða fram í samstarfi við félagshyggjufólk í
Kópavogi í bæjarstjórnar-
kosningunum 31.maí. Með því
að efna til slíks samstarfs vilja
VG leggja sitt af mörkum til
að vera vettvangur þeirra sem
vilja ekki endilega binda sig á
flokkslista en telja að sjónarmið
félagshyggju, velferðar, um-
hverfisverndar og kvenfrelsis
falli að sínum skoðunum. Sex
efstu sætin á listanum skipa:
Ólafur Þór Gunnarsson,
öldrunarlæknir og bæjarfulltrúi
Margrét Júlía Rafnsdóttir,
umhverfisfræðingur og
varabæjarfulltrúi
Sigríður Gísladóttir,
dýralæknir
Arnþór Sigurðsson,
forritari og varabæjarfulltrúi
Signý Þórðardóttir,
þroskaþjálfi
Gísli Baldvinsson,
náms-og starfsráðgjafi og nemi
Ókeypis í sund, á tónleika og
söfn fyrir framhaldsskólanemendur
Listi VG og félagshyggjufólks birtur
Skólamál:
GETRAUNANÚMER
Breiðabliks
ER 200
GETRAUNANÚMER
HK
ER 203
Nemendur í fjölmiðlafræðiáfanga
í MK skrifa um skólalífið:
Börrlesk
Við í Sauðkindinni, leiklistarfélagi Mennta-skólans í Kópavogi, erum
að setja upp söngleikinn Börr-
lesk. Börrlesk sýningin
er í anda kvikmyndarinnar Bur-
lesque. Hún segir frá
sveitastelpunni Ali sem flytur
í stórborgina til að láta
drauma sína rætast. Hún rekst
á hinn fræga stað Burlesque þar
sem stemningin er í 50’s stíl og
dansararnir eggjandi. Þar byrjar
hún að vinna sem þjónn þrátt
fyrir að draum-
urinn sé að vera dansari. Hún
kynnist barþjóninum Jack og
komast þau að því að þau eiga
margt sameiginlegt. Eigandi
staðarins er Tess sem á í miklu
basli við að halda staðnum gan-
gandi. Til sögunnar kemur þá
Markús sem vill kaupa staðinn af
Tess en hún gefur sig ekki.
Með aðalhlutverk sýningar-
innar fara Natalía Blær með hlut-
verk Ali, Guðrún Björg með hlut-
verk Tess, Elías með hlutverk
Markúsar og Sturlaugur með
hlutverk Jack.
Leikstjórarnir sem við höfum
í ár eru þau Júlíana Sara
Gunnarsdóttir og Ásgrímur Geir
Logason. Við erum
heppin að fá þessa þaulreyndu
og lærðu leikara úr leiklistar-
skólanum Rose Bruford í
London.
Sýningardagar eru
eftirfarandi:
26. mars: General prufa
kl. 20:00.
27. mars: Frumsýning
kl. 20:00.
28. mars: Sýning kl. 20:00.
29. mars: Sýning kl. 15:00 og kl.
20:00.
30. mars: Sýning kl. 15:00
og kl. 20:00.
31. mars: Sýning kl. 20:00.
1. apríl: Sýning kl. 20:00.
2. apríl: Sýning kl. 20:00.
Miðaverð eru litlar 1.500 krónur
fyrir MK-inga og
krakka yngri en 12 ára og 2.000
krónur fyrir aðra.
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Jón Bjarnason
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Þorsteinn Elíasson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogs auglýsir eftir
umsóknum um styrki til einstakra verkefna sem hafa
framgang mannréttinda og jafnréttis í Kópavogi að
markmiði.
Verkefni geta t.d. verið þróun námsefnis, námskeið,
útgáfa eða vefsíðugerð. Styrkir eru veittir einstaklingum,
stofnunum og hagsmunasamtökum eða öðrum hópum.
Heildarúthlutun er kr. 400.000.
Umsóknum skal skila fyrir 22. apríl 2014 til
Jafnréttisráðgjafa, Fannborg 2, 200 Kópavogur
eða asakr@kopavogur.is á eyðublaði sem nálgast má
hjá jafnréttisráðgjafa.
Styrkir
til jafnréttis- og
mannréttindaverkefna
kopavogur.is
Fyrir heimili - húsfélög - fyrirtæki
Úrval slökkvitækja. Leitið tilboða!
Auglýstu
í Kópavogsblaðinu
og náðu til 30 þúsund lesenda
á hagkvæman hátt
KópavoGsblaðið
www.kfrettir.is
Bæjarstjórnarmál: