Kópavogsblaðið - 29.03.2014, Síða 11

Kópavogsblaðið - 29.03.2014, Síða 11
Kópavogsblaðið 11 Sími: 588 9705 www.skautaholl.is Opnunartímar: Mánud. Þriðjud og Miðvikud. 12:00 til 15:00 Fimmtudaga 12:00 til 15:00 og 17:00 til 19:30 Föstudaga 13:00 til 19:30 Laugardaga og Sunnudaga 13:00 til 18:00 Skólar og sérhópar: Mánudag til föstudags 10:00 til 15:00 Taktfasti Kópavogur: Hannes Friðbjarnar-son, trommari í Buffinu, vakti athygli á því í nýlegri stöðufærslu á Facebook hvað Kópavogur hefur alið af sér marga trommara í þekktum hljómsveitum. Þeir eru: Hannes Friðbjarnarson, trommari i Buffinu og fleiri hljómsveitum. Sigtryggur Baldursson: Þeyr, Kukl, Sykurmolarnir, Bogomil Font og fleiri hljómsveitir. Birgir Baldursson sem trommaði í hljómsveitunum SH draum og Bless. Síðan spilaði hann í nokkur ár með Sálinni hans Jóns míns og Unun. Baldvin A B Aalen, Synir Raspútíns og Sóldögg. Birgir Jónsson, Dimma, Skepna, XIII og Stafrænn Hákon Arnar Geir Ómarsson, HAM ofl. Magnús Eliassen, Moses Hightow- er, ADHD. Axel Haraldsson, Hjaltalín. Tómas Jóhannesson, Sálin hans Jóns míns . Guðlaugur Júníusson, Vinyll. Veist þú um fleiri trommara úr Kópavogi. Sendu okkur ábendingu á kfrettir@kfrettir.is Listi Bjartrar framtiðar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor var samþykktur á nýlegum félagsfundi. Eftirtaldir skipa listann 1. Theodóra S. Þorsteinsdóttir, lögfræðingur 2. Sverrir Óskarsson, félagsráðgjafi 3. Hreiðar Oddsson, grunnskólakennari og verslunarstjóri 4. Ragnhildur Reynisdóttir, sölu og markaðsstjóri 5. Andrés Pétursson, sérfræðingur 6. Rannveig Bjarnadóttir, forstöðumaður 7. Auður Sigrúnardóttir, verkefnastjóri 8. Vilhjálmur Einarsson, fasteignasali 9. Anna María Bjarnadóttir, verkefnastjóri 10. Eiríkur Ólafsson, grunnskólakennari 11. Sturla Gunnar Eðvarðsson, framkvæmdastjóri 12. Hulda Hvönn Kristinsdóttir, laganemi 13. Sigursteinn Óskarsson, rafvirkjameistari og framhaldsskólakennari 14. Rannveig Jónsdóttir, grunnskólakennari 15. Bergþór Skúlason, tölvunarfræðingur 16. Ragnheiður Bóasdóttir, sérfræðingur 17. Ólafur H. Ólafsson, stjórnmálafræðinemi 18. Erla Karlsdóttir, guðfræðingur 19. Kristinn Sverrisson, kennaranemi 20. Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir, B.A. í mannfræði og markvörður HK 21. Jón Ingi Ragnarsson, málarameistari 22. Kjartan Sigurjónsson, organisti Trommarar Kópavogs Theodóra leiðir Bjarta framtíð Hannes Friðbjarnarson. Hannes Friðbjarnarson. Axel Haraldsson. Birgir Baldursson. Sigtryggur Baldursson. Sigtryggur Baldursson. Guðlaugur Júníusson. Birgir Jónsson Bréf til blaðsins: Listin að lifa er að kunna að leika sér Í námi mínu í Tómstunda og félagsmálafræði er það með því fyrsta sem við lærum, hversu mikilvægur leikurinn er. Með því að brjóta upp kennslustundir með leikjum og aukinni hreyfingu, förum við út fyrir þægindahringinn okkar með jákvæðum hætti. Heilmikið nám fer í gegnum leikinn; unnið er með traust, samvinnu og hópefli svo eitthvað sé nefnt. Það þykir ef til vill mörgum sérstakt að nemendur í háskóla skuli vera úti í leikjum í stað þess að sitja í kennslustund og hlusta á fyrirlestur. Í hvert skipti sem einhver spyr mig út í nám mitt fæ ég að heyra hvað það er alltaf gaman hjá mér og að við séum bara alltaf að leika okkur. Ég segi kannski ekki að við séum alltaf að leika okkur en við gerum hinsvegar mikið af því. Við lærum heilmargt um tómstundir barna, unglinga og aldraða og oftast nær snúa tómstundir að einhverju sem er skemmtilegt, vekur áhuga og eykur vellíðan. Það er líka alveg rétt að námið mitt er ótrúlega skemmtilegt og fjölbreytt en auðvitað eru fullt af krefjandi verkefnum líka. Við gerum bara svo miklu meira en að sitja yfir námsbókum og hanga inni á bóksafni daginn út og inn. Í íslenskri orðabók er leikur útskýrður svona: Að gera sér eða öðrum til skemmtunar. Athöfn sem veitir líkamlega og/ eða andlega vellíðan. Dregur viðkomandi út úr reglubundnu munstri dagsins. Þegar talað er um leik þá er þekkt að tengja leikinn við börn en þó er ekki síður mikilvægt Ástrós Pétursdóttir. fyrir unglinga og fullorðna að leika sér. Leikurinn felur í sér mikið þroskagildi fyrir einstak- linginn og litið er á leikinn sem verkfæri til náms og undirbúning fyrir fullorðinsárin. Flest okkar ölumst upp við það að vera mikið í leikjum, hvort sem það eru úti eða innileikir. Mín æska einkenndist allave- ganna mikið af því að vera úti í leikjum. Sumrin einkenndust af því að vera úti frá morgni til kvölds í leikjum og koma rétt svo inn til þess að borða og sofa. Börnin vaxa síðan úr grasi og verða að unglingum og þá kemur allt í einu tímabil þar sem það telst frekar hallærislegt að leika sér og unglingar kjósa frekar að hanga saman. Mannfólkið er þannig gert að það þróast og lærir alla ævi. Þess vegna er mikilvægt að viðhal- da leiknum svo lærdómurinn haldi áfram svo lengi sem við lifum. Það er mjög mikilvægt að varðveita barnið í sjálfum sér og taka lífinu ekki of alvarlega. Í grunninn höfum við öll gaman af því að leika okkur og vil ég enda þessa grein á því að vitna í uppáhalds frasann minn: Við hættum ekki að leika okkur því við eldumst, við eldumst því við hættum að leika okkur. Ástrós Pétursdóttir nemi í Tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands. Bæjarstjórnarmál:

x

Kópavogsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.