Málfríður - 15.11.1988, Blaðsíða 19
VI) 150 manns sóttu vinnufund er
nefndist „Dictation, a major new
tool“, hjá Mario Rinvolucri og sam-
starfsmanni hans, Paul Davis.
Könnun í upphafi fundar leiddi í ljós
að nær allir fundargestir höfðu
kynnst „dictation“ sem nemendur
og um helmingur þeirra kvaðst nota
þessa aðferð í kennslu. I ljósi þessar-
ar niðurstöðu var lögð mest áhersla
á að fá kennara til að segja frá hug-
myndum sínum og reynslu af
„dictation“.
Dæmi um notkun „dictation" við
ólíkar aðstæður:
1. Fyrirblandaðanbekkervalinn
texti, örfá orð strikuð út fyrir þá
slökustu, þriðjungur orðanna fyrir
meðalnemendur en þeir sem mest
kunna fá autt blað. Einn fundar-
gesta stakk upp á því að gefa nem-
endum kost á að velja þyngdarstig
þar sem slíkt væri alltaf hvetjandi.
Einnig var bent á að þessi aðferð
gefur möguleika á að snúa hlutverk-
um í bekknum við - þeir lakari sem
hafa meiri hluta textans á sínu blaði
geta aðstoðað betri nemendurna
sem þurfa að skrifa allan textann.
2. Kennari frá Súdan lýsti aðferð
er hann notar í mjög fjölmennum
bekk. Nemendum er skipt í minni
hópa, í hverjum hóp er upplesari og
síðan leiðréttir hópurinn í sam-
vinnu.
3. Nemendur fá í hendur blað
með texta sem nota skal fyrir
„dictation". Kennari gefur þeim 2-3
mínútur til að lesa textann og gaum-
gæfa erfið orð. Síðan eru blöðin tek-
in og upplestur fer fram.
Væntanleg er á markað nú í októ-
ber bókin „Dictation“ eftir þá Rin-
volucri og Davis, útgefin af Cam-
bridge University Press.
Þess má geta að Mario Rinvolucri
er afkastamikill og vinsæll kennslu-
bókahöfundur og skal kennurum
t.d. bent á ágæta bók eftir hann sem
nefnist „Grammar Games“.
Þátttakendur bjuggu á stúdenta-
görðum í Pollock Halls. Húsnæði og
fæði var með ágætum og umhverfi
stórkostlegt. (Næstum hægt að seil-
ast í Arthur’s Seat út um herbergis-
gluggann!) Boðið var til kvöldveislu
þar sem tekið var á móti gestum með
sekkjapípuleik og ríkulegar veiting-
ar kryddaðar með snilldarlegum
upplestri úr verkum Burns.
Pá var boðið til sýningar á skosk-
um dönsum og að því loknu voru
ráðstefnugestir sjálfir látnir þreyta
danslist heimamanna við mikinn
fögnuð. Fleira var mönnum gert til
ánægjuauka en skal ekki frekar rak-
ið hér.
Að lokum: Næsta alþjóðaráð-
stefna IATEFL verður haldin í
Warwick á Englandi 31. mars - 3.
apríl 1989.
Guðrún Jónsdóttir,
Ingi Viðar Árnason,
Hagaskóla
75%
vextir
álSmánaða veróti>ggöum
spameíkmngi
SAMVINNUBANKIÍSLANDS HF
19