Málfríður - 15.11.1988, Blaðsíða 21
„Sprákkampen" í Svíþjóð en þar er
átt við baráttu tungumálakennara
fyrir aukinni málakennslu, þ.e.a.s.
aukinni kennslu í erlendum málum
almennt, en þó fyrst og fremst auk-
inni kennslu í því sem við köllum
þriðja og fjórða mál. Svíar drógu
fyrir nokkrum árum mjög úr mála-
kennslu bæði í grunnskóla en þó
fyrst og fremst á menntaskólastigi
þrátt fyrir mótmæli kennara. Nú eru
afleiðingar þess að koma í ljós og
hefur verið sýnt fram á að léleg
málakunnátta er nú þegar búin að
kosta sænskt þjóðfélag stórfé. Sam-
tök tungumálakennara í Svíþjóð,
LMS, og helstu aðilar vinnumarkað-
arins svo sem Vinnuveitendasam-
bandið, Útflutningsráð o.fl. hafa því
snúið bökum saman um að auka og
bæta tungumálakennsluna. Um
tungumál og atvinnulíf voru líka
pallborðsumræður og tók Valgerður
Bjarnadóttir viðskiptafræðingur
þátt í þeim fyrir íslands hönd.
Of langt mál yrði að telja allt upp
sem við heyrðum og sáum en við
viljum þó ekki láta hjá líða að tala
um þjálfun ritmáls sem þarna voru
gerð nokkuð góð skil. Norðmenn,
Finnar og Danir eru að vinna sam-
eiginlega að rannsóknarverkefni
(gaman hefði verið ef við hefðum
getað verið þar með) um nýjar leiðir
í þjálfun ritmáls „Process Writing“,
hugmyndir sem upphaflega eru sótt-
ar til móðurmálskennslu. í stuttu og
mjög einfölduðu máli má kannski
segja að í stað þess að skoða aðeins
ritsmíðina í sinni endanlegu gerð
(the final product) eins og löngum
hefur tíðkast er megináherslan lögð
á skriftarferlið og nemendur fá við-
brögð og svörun frá öðrum nemend-
um og kennurum meðan á samningu
stendur.
Ráðstefnunni lauk með mjög
skemmtilegum pallborðsumræðum
um tungumálakennslu og menningu
og var Njörður P. Njarðvík rithöf-
undur verðugur fulltrúi Islands þar.
Við sem sóttum þessa ráðstefnu
teljum okkur hafa haft bæði gagn og
gaman af. Við fengum þarna ýmsar
gagnlegar hugmyndir auk upplýs-
inga um rannsóknir og þróunarstarf
sem er í gangi á Norðurlöndum á
sviði tungumálakennslu. Það er
okkur að sjálfsögðu mikils virði ekki
síst vegna þess að hér á landi eru nær
engar slíkar rannsóknir fram-
kvæmdar og lítið sem ekkert þróun-
arstarf eins og kunnugt er. - Við er-
um því miður fyrst og fremst þiggj-
endur á svona þingum.
Petta var í fyrsta sinn sem slík ráð-
stefna er haldin eftir að STÍL var
stofnað og má því segja að þetta hafi
verið í fyrsta sinn sem íslendingar
voru formlegur aðili að þessu sam-
starfi Norðurlandanna. Við hefðum
því kosið að sjá fleiri kennara héðan
og þá sérstaklega frönsku- og þýsku-
kennara en þarna var margt sem sér-
staklega var ætlað þeim. Þeir (sem
og aðrir tungumálakennarar) munu
vonandi fjölmenna á næstu ráð-
stefnu sem verður haldin eftir fjögur
ár, væntanlega í Danmörku.
Umeáfarar
NÝTTFRÖNSKUKENNSLUEFNI
ENTRÉE LIBRE KOMIÐ ÚT
Myndskreytt textabók
Æfingabók
Kassettur
Videoefni
Frönsk málfræði væntanleg
. Kennarar, vinsamlegast hafið samband og fáið sýnishorn
Mál og menning
Laugavegi 18, sími 15199
21