Málfríður - 15.11.1988, Page 22
Frá alþjóðaþingi frönskukennara
í Þessaloniku
Dagana 10.-16. júlí s.l. fór fram í
Þessaloniku í Grikklandi 7. alþjóða-
þing frönskukennara undir yfir-
skriftinni „Le Francais Pour De-
main".
í Alþjóðasambandinu, F.I.P.F.
eru rúmlega 80 aðildarfélög og þátt-
takendur á Pessaloniku-þinginu frá
um 90 þjóðlöndum, alls 1300-1400
manns.
ísland, eitt Norðurlandanna, er
ekki aðili að Alþjóðasambandinu og
hefir ekki þar til nú sótt þingin, sem
haldin eru 4. hvert ár. Frönskukenn-
arafélagið hefir þó á undanförnum
árum leitt hugann að því að ganga í
sambandið en verið dálítið hikandi,
m.a. af ótta við mikinn kostnað og
skriffinnsku. Við nánari athugun
hefir þó komið í ljós að líklega er sá
ótti ástæðulaus og verður væntan-
lega borið undir samþykki næsta al-
menna félagsfundar að sækja um að-
ild. Undirrituð, núverandi formaður
félagsins, lagði sem sagt land undir
fót til Þessaloniku, á þingið - og kom
jákvæð til baka.
Dagskrá þingsins var gríðarstór í
sniðum og engin leið að fylgjast með
nema broti af því sem um varfjallað,
heldur velja úr það sem helst var
áhugavert fyrir íslending, eftir því
sem þróttur leyfði, en hitinn þarna
FRÁ FÉLAGI
FRÖNSKUKENNARA
Um sumarmálin, dagana 21.-23.
apríl s.l. var haldið í Reykjavík nám-
skeið fyrir frönskukennara á Islandi.
Félag frönskukennara í samvinnu
við sendiráð Frakka í Reykjavík
gekkst fyrir námskeiðinu og var vel
til þess vandað. Leiðbeinendur, sem
sendiráðið hafði milligöngu um að
útvega voru þrír starfandi frönsku-
kennarar og sérfræðingar í París,
Toulouse og Glasgow. Færir menn á
sínu sviði og allir þrír hinir þekkileg-
ustu menn.
Viðfangsefni námskeiðsins var í
aðalatriðum þríþætt. Kennsluað-
ferðir, kennsla í bókmenntum, ný
tækni: myndbönd, tölvur o.fl.
Hverjum þessara þátta var ætlaður
einn dagur á námskeiðinu til kynn-
ingar með blönduðum aðferðum:
fyrirlestrum, sýnikennslu, fyrir-
22
spurnum og samræðum. Tölvukynn-
ingin fór fram í tölvustofu MH en
námskeiðið var annars til húsa í
Borgartúni 6.
í tengslum við námskeiðið - og í
sama húsnæði var sett upp sýning á
frönskum kennslubókum og frönsk-
um tímaritum á vegum Bókaversl-
unar Sigfúsar Eymundssonar,
franska sendiráðsins og franska út-
gáfufyrirtækisins Hachette.
Þátttaka í námskeiðinu var góð -
31 kennari sem er rúmlega tveir
þriðju hlutar starfandi frönskukenn-
ara á landinu. Námskeiðið þótti tak-
ast vel, þátttakendur námfúsir og
áhugasamir í besta lagi.
Rúsínan í pylsuendanum var svo
veglegt lokahóf sem sameinað var
árshátíð Frönskukennarafélagsins
og fór fram á Hótel Sögu við veislu-
föng, söng og skemmtan.
var ógurlegur, allt að 50 gráðum.
Ein mesta hitabylgja í Grikklandi
s.l. 30-40 ár svo að grísk blöð líktu
jafnvel landinu við víti á jörð þessa
júlídaga. Fjöldi manns hreinlega dó
úr hita og jafnvel kollegar frá svört-
ustu Afríku báru sig illa undan lofts-
laginu. Fyrir íslendinginn og raunar
hina líka þýddi því ekkert annað en
að setja í lággír til að lognast ekki
alveg útaf.
Og auðvitað fór þarna fram ýmis-
legt sem fróðlegt var að heyra og
kynnast, m.a. í samtölum við starfs-
félaga frá gerólíkum þjóðum og að-
stæðum. Áberandi var hve kennarar
frá ýmsum hinna vanþróaðri landa
töldu sig illa afskipta hvað snerti all-
ar framfarir og nýjungar á sviði
kennslumála, þeir ættu jafnvel enga
samleiðmeð okkurhinum, semm.a.
nutu þess munaðar að vera með inn-
an við 30 nemendur í bekk og svo
alls konar hjálpartæki við kennsl-
una.
Þá komu einnig fram á þinginu
töluverðar áhyggjur af framtíð
frönskunnar í samkeppni við ensk-
una sem alls staðar sækti á og
Kanadamenn frá frönskumælandi
Quebec voru sársvekktir og reiðir, -
amerískan væri hreinlega að gleypa
þá.
Félag frönskukennara í Norður-
Grikklandi hafði haft veg og vanda
af undirbúningi og skipulagningu
þingsins og fórst það úr hendi af
miklum myndarskap. Gestrisni
þeirra og móttökur allar með ágæt-
um og veislur undir berum himni í
borg Alexanders mikla - um mið-
næturbil, þegar hitinn var kominn
niður í 30 stig, svalandi tilbreyting
frá svitakófinu yfir daginn.
Og svo breiddi maður faðminn
mót norðangolunni með svolitlum
sudda við heimkomuna þ. 19. júlí
eftir sólríka dvöl á grískri grund.
Sigurlaug Bjarnadóttir