Málfríður - 15.11.1988, Page 27
NÁMSKEIÐ ÞÝSKUKENNARA
Félag þýskukennara á íslandi hef-
ur undanfarin ár skipulagt námskeið
fyrir félagsmenn sína með reglulegu
millibili - á minnst tveggja ára fresti.
Þessi námskeið hafa verið haldin í
samvinnu við Goethe Institut á ís-
landi. I ár voru námskeiðsdagarnir
15.-18. ágúst og fengum við afnot af
húsakynnum og tækjum Þýska
bókasafnsins við Tryggvagötu. Oft-
ast hafa þessi námskeið verið haldin
úti á landi, en vegna þess hve fáir
höfðu tilkynnt þátttöku á tilsettum
tíma, var námskeiðið haldið í
Reykjavík. Þá bættust þó nokkrir í
hópinn og varð endanlegur fjöldi 15
manns. Við sem þarna mættum
þessa fjóra daga fengum mikið og
gott veganesti fyrir komandi skóla-
ár.
Leiðbeinandinn var ungur og
hress kennari frá Liibeck, Helmut
Weil að nafni, sem flest okkar höfðu
kynnst áður á námskeiðum Deut-
sche Auslandsgesellschaft í Lubeck.
Hann kennir þýsku og tónlist þar í
bæ og er auk þess leiðbeinandi á
áðurnefndum námskeiðum.
Aðalefni námskeiðsins í þetta
sinn var „Textameðferð“. Fyrsta
daginn fengum við hugmyndir og æf-
ingar í meðhöndlun texta í bundnu
máli. Leiðbeinandi okkar fór leiðir
sem opna nemendum kvæðin smátt
og smátt og þegar að því kemur að
rannsaka innihaldið er nemandinn
löngu orðinn kunnugur því. Við
æfðum okkur í að lesa, túlka, leika,
jafnvel teikna þessi kvæði, bæta í,
finna titil eða niðurlag - og með því
að nota eitthvað af þessum aðferð-
um ætti ekki að vera vandamál að
hafa oftar kvæði í kennslu.
Næstu tvo daga tókum við aðal-
lega fyrir óbundið mál. Alltaf feng-
um við að „sannreyna" hverja að-
ferð sjálf, meðhöndluðum sömu
textana á mismunandi vegu eða
reyndum sömu aðferðina á mismun-
andi textum, ein, tvö saman eða í
stærri hópum. Síðan ræddum við
reynslu hvers annars. Einnig notuð-
um við „dulda hæfileika“ okkar,
skrifuðum heilar og hálfar skáldsög-
ur, blaðagreinar og viðtöl, stigum í
pontu með ræðu eða á svið með
stutt, leikin atriði - allt unnið upp úr
textunum. Þegar ég skrifa þessa
grein, rifjast upp fyrir mér hve margt
við gerðum þessa þrjá daga, en á
fjórða degi fengum við aldeilis frá-
bæran fyrirlestur um „Lieder-
macher" (vísnahöfunda og -söngv-
ara). Það var gaman að sitja þarna
og skemmta sér og fræðast um leið.
Fræðast, ekki bara um efnið sem
kynnt var, heldur einnig um vinnu-
brögð fyrirlesarans, bæði hvað varð-
ar undirbúning, framsetningu og
hvernig nýta má tónlist í tungumála-
kennslu. Við lærum alltaf ný og betri
vinnubrögð á þessum námskeiðum.
fáum gagnlegar upplýsingar um
margt sem tengist kennslu, fáum í
hendur margs konar efni - að ekki sé
talað um persónuleg kynni sem eru
líka mikils virði.
Goethe-stofnunin bauð leiðbein-
anda og þátttakendum í kvöldverð
að venju og hafi hún þökk fyrir.
Stjórn Félags þýskukennara færi
ég hér með kærar þakkir fyrir skipu-
lagningu námskeiðs þessa, sem var í
alla staði hið vandaðasta. Þátttak-
endum, félögum mínum, sendi ég
bestu kveðjur með ósk um að við
megum hittast jafnhress á næsta
námskeiði.
Eva Jónasson, MH
Rétti tfminn til
reiknivélakaupa.
IVIikiö úrval.
Lækkað verð.
Suðurlandsbraut 12.
S: 685277 - 685275
27