Málfríður - 15.11.1988, Qupperneq 30
FORMANNASKIPTI
Á aðalfundi Félags dönskukenn-
ara sem haldinn var í febrúar s.l.
urðu eftirtaldar breytingar á stjórn
félagsins: Fírefna Arnalds, Kirsten
Friðriksdóttir og Elín Lýðsdóttir
gengu úr stjórninni og í stað þeirra
komu: Osa Knútsdóttir, Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja, Ragnhildur Páls-
dóttir, Garðaskóla og Auður
Hauksdóttir, Flensborgarskóla.
Stjórnina skipa nú:
Osa Knútsdóttir, formaður
Ragnhildur Pálsdóttir, varafor-
maður
Brynhildur Ragnarsdóttir VÍ,
gjaldkeri
Anna Sigríður Árnadóttir MK,
ritari
Aðalfundur Félags enskukennara
var haldinn 31. maí s.l. Kjörin var ný
stjórn félagsins. Formaður er Kristín
Guðmundsdóttir, kennari við MH.
Aðrir í stjórn félagsins eru: Kolbrún
Valdimarsdóttir, varaformaður,
Guðrún Jónsdóttir, gjaldkeri, Halla
Thorlacius, ritari og Julian Meldon
D’Arcy, meðstjórnandi. Úr stjórn
gengu Björn Finsen, Ingi Viðar
Árnason og Auður Torfadóttir, sem
Elísabet Valtýsdóttir, Fjölbr.
Suðurlands, meðstj.
í varastjórn sitja: Auður Hauks-
dóttir og Lars Brink, prófessor í
dönsku við Háskóla íslands.
Ósa lauk BA prófi í dönsku og
íslensku frá H.í. vorið 1979 og upp-
eldis- og kennslufræði frá sama
skóla 1981. Hún kenndi við Stýri-
mannaskólann í Reykjavík 1977-
1979, Menntaskólann á Egilsstöðum
1979-1980 og Menntaskólann við
Sund 1980-1981. Hún stundaði fram-
haldsnám í dönsku við Kaupmanna-
hafnarháskóla 1981-1984. Hefur
kennt dönsku við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja síðan haustið 1984.
verið hefur formaður síðastliðin
fimm ár.
Nýkjörinn formaður tók BA próf
í ensku og sögu við Háskóla íslands
árið 1972. Sama ár réðst hún til
kennslu í Menntaskólanum við
Hamrahlíð. í fyrstu kenndi hún sögu
en ensku hin síðari ár. Hún tók þátt í
samningu námsskrár fyrir fram-
haldsskóla á vegum menntamála-
ráðuneytisins. Kristín hefur sótt ým-
is námskeið bæði heima og erlendis.
KENNSLUBÓKAÚTGÁFA
MÁLS OG MENNINGAR 1988
Mál og menning sendir á þessu
hausti frá sér mikinn fjölda náms-
bóka. Flestar þeirra eru ætlaðar
framhaldsskólastigi, en nokkrar
grunnskólastigi. Alls er um að ræða
18 nýjar kennslubækur og 15 endur-
útgáfur. Meðal nýrra bóka á þessari
önn eru:
Fisketur er safn af dönsku hrað-
lestrarefni fyrir grunnskóla sem
Guðmundur Ingi Sigbjörnsson valdi.
Lesbókin er 208 bls. að stærð í
kirkjubroti. Með henni geta skólanir
fengið vinnubók í stærra broti og
tvær snældur með upplestri
danskra leikara á því efni sem er í
bókinni. Lesbókin er prentuð í Dan-
mörku en vinnubókin í prentsmið-
junni Odda.
Genvej — dönsk málfræði handa
íslendingum er 100 bls. kilja eftir
Keld Gall Jörgensen. í henni eru öll
helstu atriði danskrar málfræði tekin
fyrir á hnitmiðaðan hátt, studd fjöl-
mörgum dæmum. Sérstök áhersla
er lögð á þau atriði sem lengi hafa
vafist fyrir íslendingum. Bókin er
unnin í Odda.
Guldregn er vinnubók við skáld-
söguna Guldregn eftir Anders
Bodelsen, sem Þyri Árnadóttir og
Lovísa Kristjánsdóttir hafa gert. Hún
geymir fjölbreytileg verkefni sem tal-
in eru henta nemendum 8. bekkjar
grunnskóla. Vinnubókin er gefin út í
tilraunaútgáfu, 152 bls. að stærð og
unnin í Prentstofu G. Benediktsson-
ar.
Á næstu vikum eru auk þess
væntanlegar frá forlaginu kennslu-
bækur í ritgerðasmíð, tjáningu, staf-
setningu, frönsku og þýsku. Þetta er
viðamesta kennslubókaútgáfa ís-
lensks forlags á einu ári, að Náms-
gagnastofnun frátalinni.
30