Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.10.1991, Page 1

Bæjarins besta - 16.10.1991, Page 1
DREIFT ÁN ENDURGJALDS AÐHJAÐSAMTÖKUM BÆIAR- OG HÉRAÐSFRÉITABLAÐA MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991 42. TBL. ■ 8. ÁRG. Báru til bíla NOKKUR ölvun var á ísafirði um helgina, sérstaklega á fimmtudags- kvöld. Þrátt fyrir mikla ölvun var lítið um áflog og önnur ólæti og var því helgin með rólegra móti fyrir lögregluna. Þó var hjólkoppum stol- ið af Mazda bifreið sem stóð við Bílasöluna Eld- ingu og eru þeir sem þar voru að verki vinsamlegast beðnir um að skila þeim á sama stað. Aðfararnótt föstudags var brotist inn í Sundhöllina. Þar var litlu stolið en skemmdir urðu þónokkrar. Ekki hefur enn tekist að hafa hendur í hári þeirra sem þar voru að verki. Á laugardagskvöld, rétt fyrir miðnættið, fékk lög- reglan tilkynningu um að krakkar væru að bera til bifreiðar í Sundstræti. Er lögreglan kom á vcttvang voru kraftakrakkarnir á bak og burt. Einn fékk að gista fangageymslur lög- reglunnar aðfararnótt sunnudagsins vegna ölv- unar og óspekta. -s. Kjörbók Kjörin leið tilsparnaðar LANDSBANKI ÍSLANDS ÍSAFIRÐI S 3022 Vöruval — ódýrara en þig grunar Bónusval Hagkvæm kaup — hagur heimilanna VORUVAL LJÓNINU SKEIÐI — SÍMI 4211 BÚÐ SEM STENDUR UNDIR NAFNI Isafjörður: Ólafur Helgi tekinn við sem bæjarfógeti BÆJARFOGETA og sýsluiiiarinsskipti urðu á Isafirði í gærmorgun en þá mætti Olafur Helgi Kjartansson til síns fyrsta vinnudags sem bæjarfógeti. Meðfylgjandi mynd var tekin klukkan 8 í gærmorgun þegar Björn Jóhannesson, aðalfulltrúi (t.h.) afhenti Ólafi Helga lyklavöldin að embættinu. -s. Patreksfjörður: Áhaldahúsið brann til kaldra kola — tfóraið metid á 16-17 milljónir króna UM KLUKKAN 22 á föstudagskvöld kom eldur upp í áhaldahúsi Pat- rekshrepps á Patreksfirði með þeim afleiðingum að það brann til kaldra kola. Mikill eldur gaus upp við olíutank hússins sem síðar sprakk. Slökkviliðið á staðnum kom fljótt á vett- vang og lauk slökkvistarfi um kl. eitt aðfararnótt laug- ardags. Þá stóð grind húss- ins ein eftir og allt annað brunnið. í húsinu voru geymd öll áhöld sveitarfé- lagsins en vélar voru geymd- ar á öðrum stað. Samkvæmt upplýsingum blaðsins er talið að upptök eldsins megi rekja til mið- stöðvar en húsið var olíu- kynnt. Tjónið er metið á 16- 17 milljónir króna. -s. • Áhaldahúsið á Patreksfirði hafði að geyma öll áhöld sveitarfélagsins, og brann allt sem brunnið gat. Ljósm.: Ólafur Arnfjörð. Lögreglan: Hús- leit — lagt hald á tæki og tól til dópneyslu Asunnudags- KVÖLDIÐ síðasta fór lögreglan á ísafirði yfir til Suðureyrar vegna fjölda ábendinga um neyslu eiturlyfja í ákveðnu húsi. Húsleit var framkvæmd og fundust tól og tæki til neyslu og var lagt hald á þau. Hins vegar fannst ekkert efni. Málið fer til dómara og verður síðan afgreitt með hefðbund- num hætti. -GHj. Kristján Gunnar settur skatt- stjóri KRISTJÁN Gunnar Valdimarsson, starfs- maður Fjármálaráðuneyt- isins hefur verið settur skattstjóri Vestfjarðaum- dæmis til næstu mánaða- móta og tók hann til starfa í gærdag. Staða skattstjóra Vest- fjarðaumdæmis hefur ver- ið auglýst laus til umsókn- ar og rennur umsóknar- frestur út 29. október næstkom andi. Flj ótlega upp úr mánaðarmótum má þvf búast við að nýr skatt- stjóri á Vestfjörðum verði skipaður til frambúðar. Höfum opið í vetur vár kl. 9-17. VÁTRYGGINGAFÉLAG 2? 3555 ISLANDS HF. HAFNARSTRÆTI1 ÍSAFIRÐI /O_________ |> BÍLAVERItSTÆÐI vcz ÍSAFJARÐAR t BÍLALEIGA — -S1 3837 — Veisluþjónusta Nu faia árshátiðir og aðrir mannfagnaðir að hefjast. Bjóðum ykkur upp á veisluþjónustu, ostabakka, ostapinna og veislu- bakka. Sama verð og í Reykjavík. Höfum verðlista, Nánari upplýsingar í síma 4368 (Guðrún) og 4483 (Guðbjörg). Mjólkursamlag isfirðingaS 3251 RITSTJÓRN s 4560 • FAX S 4564 • AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT S 4560

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.