Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.10.1991, Síða 5

Bæjarins besta - 16.10.1991, Síða 5
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 16. október 1991 5 ísafjarðardjúp: Fjárkaup — sauðfé keypt úr Bolungarvík í Mjóafjörð bifreiðaeiganda, annað hvort bréflega eða með sím- hringingu, og honum gefin lokaviðvörun". Lögmanninum hlýtur að vera alveg ljóst, að gíróseðl- ar þeir sem hann talar um eru sektarbréf lögreglu- stjóra, þar sem fólki er boð- ið að ljúka málum með greiðslu sekta án frekari málareksturs. Honum hlýt- ur þá að vera einnig jafn Ijóst, að ekki er um beinar rukkanir að ræða, heldur boð um að ljúka málum með ákveðnum hætti. Vilji fólk ekki gera það, er það beðið að mæta hjá lögreglu og gera grein fyrir máli sínu og er þá að öllu jöfnu tekin skýrsla af viðkomandi, nema í ljós komi, að mistök hafi átt sér stað. Sinni fólk þessu ekki, er send út ítrek- un, þar sem boð lögreglu- stjóra er enn og aftur írek- að, en viðkomandi jafnframt boðaður ákveðinn dag til skýrslutöku, ætli hann ekki að fallast á boðið. Þar sem það kemur því miður fyrir að fólk hunsar slíkar boðanir er því gert ljóst hverju það get- ur varðað að sinna ekki boði lögreglu um mætingu, þ.e. að minnt er á, að lögregla geti handtekið þann, sem ekki hefur forfallalaust gegnt kvaðningu lögreglu- manns til að gefa skýrslu í opinberu máli. Þetta er gert til upplýsinga fyrir fólk og til að firra því frekari vandræð- um eins og lögmanninum er fullkunnugt um. Ég reikna með að hann kannist sjálfur við alls kyns óbeinar hótanir sem fylgja gjarnan innheimt- ubréfum lögmanna og ým- issa stofnana, sem eru full- komlega eðlilegar að mínu mati. Hvað varðar það að klippa númer af óskoðuðum bílum á nóttinni skal lög- maðurinn upplýstur um það, að lögreglan hér starfar ekki einungis á tímabilinu frá 09:00 til 17:00, heldur allan sólarhringinn. Lög- maðurinn telur líklega að það sé bagalegra fyrir fólk að koma að bifreið sinni af- klipptri að morgni, heim við hús, heldur en t.d. þegar það kemur út frá vinnustað sínum í lok vinnudags osfrv. Ég sé engan mun á þessu nema þá kannski þann, að viðkomandi þarf að láta draga bifreiðina heim til sín frá þeim stað þar sem hún stóð þegar númerin voru tekin af. Það kemur ekki til greina að lögregla fari að hringja í hvern og einn sem ekki hirðir um að koma með bifreið sína til skoðunar á þeim þremur mánuðum sem viðkomandi hefur til þess ár hvert. Útilokað væri að komast hjá því að þá yrði mönnum gróflega mismun- að og einnig þckki ég það af reynslu, að þá myndu trass- arnir aldrei fara með bif- reiðar sínar til skoðunar fyrr en lögregla hefði samband og minnti þá á það. Hvers eiga þeir að gjalda sem fara með bifreiðarnar í skoðun á réttum tíma? Einnig má benda á ágætar augjýsingar Bifreiðaskoðunar Islands, sem ekki eiga að geta hafa farið fram hjá neinum. Ég sæi lögmanninn í anda hringja í þá aðila, sem hann fengi mál til innheimtu á, og gefa þeim kost á að hlaupa á skrifstofu hans og ganga frá skuldinni, áður en hann rit- aði þeim bréf og bætti við skuldina lágmarkstaxta Lögmannafélags íslands. Auðvitað myndi hann ekki gera það, en ég er viss um að margir gætu, að óat- hugðu máli, tekið undir að þetta væri bæði sjálfsagt og eðlilegt, enda skuldir að jafnaði ekki útistandandi vegna ásetnings þar um, heldur af öðrum örsökum, ekki síst mannlegum, eins og flest mál sem lögregla þarf að hafa afskipti af. Auðvitað er hér ekki alveg um sambærilegt dæmi að ræða nema að því leytinu til, að hægt er að slá öllum hlut- um fram með þeim hætti að almenningi þyki sjálfsagt og eðlilegt, en eru talsvert flóknari ef betur er að gáð. FAGRANES flutti sl. mánudag 250 kindur frá Bolungarvík inn í Mjóafjörð í Djúpi. Venjulega var fé flutt hina leiðina, úr Djúpi til Bolungarvíkur, þegar rek- ið var sláturhús í Víkinni. Torfi Jónsson frá Kletti, hinn nýi bóndi í Botni, er nú að fá sér bústofn og stendur í fjárkaupum. Torfi sagði í viðtali við blaðið, að hann hefði keypt allt fé frá Miðdal í Bolung- arvík, utan tíu kindur sem þeir Miðdalsmenn ætla að halda eftir sjálfir. Þarna er um að ræða 180 ær og lömb frá Miðdal og Hanhóli og ær Valdimars Guðmundssonar, lögregluþjóns í Bolungar- Eins og áður er sagt talar lögmaðurinn um að lögregla hafi átt að kynna fólki breyttar aðstæður og vara það við að beitt yrði sekt- um. Á sama hátt talar hann um að hringja í fólk, eða skrifa því, og minna á að fara með bílana í skoðun. Ég vil leggja á það áherslu, að ekki á að vera þörf á að vekja sérstaka athygli öku- manna á sýnilegum umferð- armerkingum og eins og áður sagði, eru áberandi auglýsingar frá Bifreiða- skoðun íslands í hverjum mánuði varðandi aðalskoð- un. Einnig geta ekki hafa farið fram hjá neinum marg- ítrekaðar fréttir í bæjarblöð- um og svæðisútvarpi um af- klippingar lögreglu vegna vanrækslu á aðal- og endur- vík. Auk þess keypti Torfi svo einn lambhrút af Trausta Beródussyni í Þjóð- ólfstungu. Sanrtals eru þetta því 250 gimbrarlömb og ær sem Fagranesið flutti til Torfa á mánudaginn. Torfi sagði að kindunum yrði skipað upp á Eyri í Mjóafirði og yrðu síðan reknar að Botni. Torfi keypti einnig fé úr Skálavík í Mjóafirði og frá Miðhúsum og Svansvík. Einnig hefði hann keypt ær séra Baldurs Vilhelmssonar, prófasts í Vatnsfirði.Hann er hættur búskap og sinnir eingöngu prestskap og prófastsstörf- um, sagði Torfi að lokum. -GHj. skoðun. Til þess að fyrirbyggja misskilning þá skal það upp- lýst, að lögregla telur oft nauðsynlegt að vekja at- hygli almennings á breyttum reglum, eins og t.d. var gert varðandi breyttar reglur um ljósabúnað aftanívagna og birtist í sama blaði og grein lögmannsins. Að lokum skal tekið und- ir þá skoðun lögmannsins að eitt af meginhlutverkum lögreglu er þjónusta hennar við hinn almenna borgara en ég tel það hinn mesta misskilning að það hlutverk felist í því, að horfa í hina áttina þegar lögregla stend- ur borgarana að lögbrotum, þvert á móti. Jónmundur Kjartansson, aðstoðaryfirlögregluþjónn. Póstur og sími óskar að ráða 50% starf fulltrúa á skrifstofu Pósts og síma á ísafirði. PÓSTUR OG SÍMI ÍSAFIRÐI ATVINNA Óskum eftir að ráða starfsfólk til afgreiðslustarfa. Vaktavinna. Til greina kemur starf frá kl. 11.00-18.00, virka daga. Upplýsingar gefur Eygló í síma 4306. Isafjarðardjúp: Fullur sigur vannst — pungastríðinu lokið y IMORGUNÚTVARPI Rásar 2 sl. föstudag var viðtal við Ástþór Ágústsson, bónda í Múla í ísafjarðardjúpi. í viðtalinu kom fram að Ástþór hafði haft fullan sigur í „pungastríðinu“ svokallaða. Hafði hann að eigin sögn, fengið sína punga „með öllu“ í sláturhúsinu í Króksfjarð- arnesi, eftir að hafa verið neitað um þá á Hólmavík. Þar var einungis hægt að fá eistun. í tilefni sigursins varð eftirfarandi vísa til hér á blaðinu: Bóndans raun er bœgt um sinn, búið áfram getur. Hans er stoltur hugurinn, að hafa pung í vetur. -GHj. Frá Sláturfélagi Vestur-Barðstrendinga Patreksfjörður oqnácjrenni Við erum að hefja slátrun á nautgripum og bjóðum ykkur nýtt nautakjöt með góðum staðgreiðsluafslætti. Upplýsingar gefur Ari ívarsson í síma 1485. Sláturfélag Vestur-Barðstrendinga Patreksfirði Sunddeild Vestra Foreldrar og velunnarar! Aðalfundur Sunddeildar Vestra verður haldinn miðvikudaginn 24. októberkl. 20.30 í kaffistofu Norðurtangans. Áríðandi er að allir mœti. Byrjum nýtt sundtímabil vel. Stjórnin. ATVINNA Óskum eftir starfsmanni, konu eða karli í 50-100% starf. Nánari upplýsingar veittar í verslun, ekki í síma Tf^TT^ BYGGINGAVÖRUVERSLUNIN aNÚPUR AÐALSTRÆTI 26 ÍSAFIRÐI

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.