Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.10.1991, Page 6

Bæjarins besta - 16.10.1991, Page 6
6 BÆJARINS BESIA • Miðvikudagur 16. október 1991 BB viðtal: vinnur á ísafjarðarhöfn REYNIR TORFASON var sjómaður að aðalatvinnu þar til fyrir þrem árum síðan að hann kom í land. Hann er að verða 52 ára gamall og er farinn að stunda myndlist á fullu með starfi sínu. Hann hefur að eigin sögn alltaf rissað myndir en nú er hann búinn að koma sér upp vinnustofu. Hann segist enn vera kommúnisti þrátt fyrir hrun austursins. Reynir er nú í BB viðtali og segir okkur sögur af sjónum, mönnum og málefnum og skoðunum sínum: • „Þá kom í Ijós að ég hafði teiknað mynd af berum kvenmanni innan í skýlið og karlinn var sð dást að henm. Hann var mjög listrænn í hugsun og hefur haft áhuga á listaverkum.“ „Ég er ísfirðingur í húð og hár, fæddur niðri á Bökk- um 1. nóvember 1939. Megnið af mínum æskuár- um ólst ég upp hjá afa mín- um og ömmu. A sumrin bjuggum við í sumarbústað nokkru innan við Skíðaveg- inn. Við bjuggum þar einnig einn og hálfan vetur vegna þess, að gömlu hjónin fengu ekki leigt í bænum. Þau voru alla tíð fátæk, þótt þau hefðu bæði verið vel mennt- uð miðað við þann tíma, hann járnsmiður og hún ljósmóðir. Við vorum svo mörg systkynin að ég ólst upp hjá þeim ásamt Ólínu systur minni. Fyrst bjuggu foreldrar mínir og afi og amma saman í einni íbúð í Vallarborg. Yngra fólk man nú ekkert eftir henni. Þegar við bjuggum í Firð- inum þurfti ég að ganga í skólann út á Eyrina. Ég gekk eftir Seljalandsvegin- um og var oft myrkfælinn, sérstaklega á haustin. Ég hljóp oft alla leiðina heim. Afi las fyrir okkur íslend- ingasögurnar og þjóðsögur á kvöldin og varð það til þess, að skerpa ímyndunaraflið. Það var margt sem kom upp í hugann þegar maður var á einn á ferð í myrkri á Selja- landsveginum. Þá var lítil byggð við hann. Það var ábyggilega góður skóli að fá svona upplestur úr þessum íslensku bókmenntum.“ Svo kom snjóflóð „Svo kom snjóflóð þarna seinni veturinn sem við bjuggum þarna. Pað var leiðinda veður. Afi virtist vera óttaiaus því hann hafði verið póstur á milli Bolung- arvíkur og Isafjarðar og einnig til Súgandafjarðar. Sumarbústaðurinn stóð af sér flóðið því það rann niður með innri hlið hans og skemmdi hann ekki mikið. Eftir þetta fluttum við í bæ- inn og bjuggum um tíma á Grund og Strýtu. í Strýtu bjó Guðmundur þari og þar kynntist ég Tryggva syni hans og varð það upphafið af vináttu sem stendur enn. Seinni veturinn þegar snjóflóðið kom var ég í skóla inn á Skeiði. Kennar- inn hét Kristín og allir ald- urshópar lærðu saman hjá henni. Við þessir yngri lærð- um mikið á að hlusta þegar þessir eldri voru í lesgrein- um. Þá kynntist ég krökkun- um í Firðinum. Ég man sér- staklega eftir einum, Trausta heitnum Sigmunds- syni. Faðir hans var mikill bókamaður og skáld, það liggur við að bókalyktin sé enn í nösum mér, því að heimilið ilmaði af bókalykt. Þetta var mikið menningar- heimili.Ég fór svo í skólann út á ísafirði eftir að við flutt- um úr Firðinum. Síðan fór ég í gaggó og var mjög stilltur. Ég var verri þegar ég var yngri. Ég var svo stjórnunarsamur. Þegar í barnaskóla kom lenti ég í átökum við foringja bekkjarins og tapaði þeim. Hann hét Gunnar Valdimars- son og ég reyndi mikið til að ná honum, því hann var hæst- ur í bekknum. Það tókst ekki því hann bakaði mig í staf- setningu sem ekki var mín sterkasta hlið. Ég kom samt alveg á hæla hans. Ég fékk bókaverðlaun fyrir að hafa bætt mig mest í stærðfræði og eru það einu verðlaunin sem ég fékk í skóla. Það munaði ekki miklu á okkur. Ég hef mikið skap og það hefur alltaf haldið mér uppi.“ Byrjaði að stokka upp „Ég byrjaði snemma að vinna. Fyrst í uppstokkun lóða í Dokkunni og síðan í beitningum. Ég var aldrei látinn skelja úr kúffiski. Það voru eldri menn sem það gerðu, t.d. Finnbogi heitinn Pétursson. Ég stokkaði upp fyrir Gest Loftsson. Bátur- inn hans hét Sæunn og seinna meir lét ég bátana mína heita Sæunn. Ég átti tvær Sæunnir. Þarna í Dokkunni réru ýmsir karlar á opnum trillum. Bæsi, Kristmann Kristmannsson og um tíma Indriði í Krókn- um sem nú er nýhættur til sjós. Þetta var nú fyrsti skóli manns til sjómennsku. Þarna kynntist ég aga, t.d. að vakna snemma á nóttinni og fá ekki að leika sér úti í sólinni. Við fengum þó að stokka upp í sólinni. I fyrsta og eina skiptið sem ég fór í sveit var ég á Arngerðareyri. Það var stórkostlegt heimili í alfara- leið og þar voru mér kennd- ir borðsiðir af stúlku sem var tveim árum eldri en ég. Ég var átta eða níu ára gam- all. Það eina sem ég man eftir Halldóri bónda eru stígvélin og svipan því hann var mikill hestamaður. Þarna fóru um garð menn eins og Halldór Kiljan. Hann var að skrifa þarna í kaupfélagsstjórahúsinu sem lítur út eins og kastali. Ég var lítið látinn vinna þarna, ég var dekurbarn. Á Arn- gerðareyri fór ég á hestbak í fyrsta og eina skiptið í líf- inu. Ég hafði miklu meiri áhuga á hestunum og hund- unum þá heldur en skáld- inu.“ Hálfblautur í skólanum „Ég varð hjálparkokkur á Gylli gamla frá Flateyri árið áður en ég fór í fjórða bekk í gaggó. Þá var ég 15 eða 16 ára. Ég var asmaveikur sem unglingur og hafði verið heilan vetur á sjúkrahúsi vegna þess. En í þessarri fyrstu sjómennsku minni hvarf asminn og eftir það komst ekkert í minn huga en að vera á sjó. Það var dá- samlegt að vera á Gylli. Um haustið ætlaði ég alls ekki í skólann og ætlaði bara að halda áfram til sjós. Ég hélt ekki þessu plássi því við vor- um að skipta við Færeyinga, ég og Stjáni gamli Valda. Hann var kokkur og fyrir hans miskunn fék ég þetta skiprúm. Eina sem ég kunni í eldamennsku þegar ég byrjaði var að sjóða kartöfl- ur, en allt blessaðist þetta með hjálp góðra manna. Við vorum á karfa og túr- arnir svona hálfur mánuður. Mikið af Færeyingum var þarna. Fyrir þrýsting frá skólastjóranum, Guðjóni Kristinssyni, byrjaði ég þó í

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.