Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.10.1991, Síða 8

Bæjarins besta - 16.10.1991, Síða 8
8 SMÁ fJHeWUIMM Til sölu er leikjatölva með 160 innbyggðum leikjum ásamt stýripinnum. Upp- lýsingar í 0 4121. Til sölu er 5 gíra Suzuki Swift GL '86, ekinn 50.000 km, 5 dyra. I mjög góðu standi. Einnig MMC L200 Xtra Cab '91 diesel (3ja mán.) 4x4. Upplýsingar í 0 4268 á kvöldin. Til sölu er bátur. Upplýs- ingar í 0 7324. Félagsfundur húseigenda- félags Atlastaða í Fljóta- vík verður haldinn 20. okt. kl. 16.00 í kaffistofu Póls, Sindragötu 10. Stjórnin. Til sölu er Polaris IndyTrail snjósleði árg. '89 með nýju belti. Uppl. (0 2227. Til sölu er MMC Galant. Selst ódýrt. Uppl. gefa Maggi eðaSiggi (0 6119. Vísnabókin Samtíningur eftir Gunnar Guðmunds- son fæst í Verslun Gunn- ars Sigurðssonar á Þing- eyri og hjá Katrínu Gunn- arsdóttur í 0 8117. Einnig hjá Birni Davíðssyni í 0 4560. Brautarkonur Bolungar- vík. Vinnukvöldin verða á þriðjudögum kl. 20. Ósk- um eftir að sjá ykkur allar með hugmyndirnar og góðaskapið. Nefndin. Til sölu er Toyota Carina 1600 '83. Ekinn 112.000 km. Verð 300.000,- Skipti mögul. á ódýrari. Upplýs- ingar í 0 4184. Til sölu er píanóharmon- ika. Upplýsingar í 0 7418. Til sölu er hillusamstæða úr eikk á kr. 15.000.- Barnakerra með skýli og svuntu á kr. 4.000,- Brio barnakerra á kr. 3.000.- Baðborð á kr. 2.000,- Burðarrúm á kr. 2.000.- 6 stólar úr beyki með basti í setum og á járngrind á kr. 6.000,- Uppl. (0 3421. Til sölu er Toyota Carina '82, sjálfskiptur, skoðaður '92. I góðu standi. Upplýs- ingar í 0 7694. Sil sölu er Subaru Turbo '87, sjálfskiptur, rafdr. rúð- ur o.fl. Skipti mögul. Upp- lýsingar í 0 4102 e. kl. 19. Slysavarnarkonur. Fönd- ur lau. 19. okt. kl. 14-17. Kaffi á könnunni. Nefndin. Til sölu er Daihatsu Char- ade 1000 '84. Skipti á ódýrari mögul. Upplýsing- ar í 0 4939. Til sölu er Polaris Indy 400 classic vélsleði, 64 ha, árg. '88. Mjög vel með farinn. Uppl. í 0 3850. Tapast hefur brúnn rúsk- innsjakki, frekar síður, lyklar (vasa, í Krúsinni lau. 5. okt. Sá sem veit um til- vist jakkans, vinsaml. láti vita í 0 4278. Benta. Til sölu er Willy’s jeppi '46 vegna plássleysis. Hefur haft húsaskjól síðan 1972, sundurtekinn og flestir hlutir vísir. Upplýsingar gefurZófonías í 0 8227. var það svo skrýtið að á þeim tíma vorum við báðir í útgerð. I Sjómannafélaginu kom einu sinni fram van- traust á okkur Guðmund vegna þess að við værum í útgerð. Guðmundur lét greiða atkvæði um tillöguna og það var nú ekki lengi ver- ið að afgreiða það mál. Guðmundur dreifði at- kvæðaseðlum og átti að skrifa á þá já eða nei. Van- traustið fékk eitt atkvæði þrátt fyrir að það var borið upp á fundinum af tveim mönnum. Svona var Guð- mundur vinsæll og má segja að eftir að hann fórst þá hafi félagið dáið með honum í að minnsta kosti tvö ár. Síðan jafnaði það sig eftir það mikla áfall.“ Kominn í myndlist „Þegar ég kom svo í land fyrir þrem árum fór ég að vinna á Isafjarðarhöfn. Þá byrjaði ég að mála. Ég fikt- aði eitthvað við að teikna þegar ég var yngri. Þetta voru riss sem fóru í tunnuna og hingað og þangað. Ég rissaði líka jafnframt sjó- mennskunni. Ég hef alltaf haft gaman af þessu og mig dreymdi drauma þegar ég var yngri. Ég hef lesið mikið um listir og tel mig hafa yfir- borðsþekkingu á þeim. Ég nýt þess og það er mér nóg. Ég er mjög mikill sveimhugi og hef lesið hingað og þang- að en aldrei farið neitt djúpt, nema í myndlist og pólitík. Fyrst eftir að ég kom í land vann ég að myndlist heima og síðan fékk ég aðstöðu upp á lofti í Alþýðuhúsinu. Ég hef selt eitthvað af myndum undan- farið. Ég hef núna vinnu- stofu í Félagsbakaríinu þar sem afgreiðslubúð Óðins bakara var. Ég vinn þarna með höppum og glöppum, fæ köst stundum og mála mikið, svo ekkert í langan tíma á milli.Þegar ég svo byrja er eins og opnist fyrir gátt. Ég hélt sýningu í Stúd- íó Dan í sumar. Ég átti svo- lítið af myndum frá í fyrra og var hvattur til að sýna. Ég seldi á þessarri sýningu eins og borgarlega sinnaður listamaður." Hörkukerling „Á Isafjarðarhöfn er ég í nánu sambandi við sjó- mennina. Þetta er því miklu skemmtilegra starf en t.d. að vinna í frystihúsi. Þetta eru þjónustustörf við sjó- menn og ég ræð mér mikið sjálfur. Það er erfitt að byrja að vinna undir ann- arra stjórn þegar maður hef- BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 16. október 1991 ur verið sjálfs síns herra í uppundir fimmtán ár. Auð- vitað langar mig oft á sjóinn en þá rifja ég bara upp slæmu dagana á sjónum. Svo er ég vel giftur. Kon- an mín er hörkukerling. Mig hefur oft undrað það hve oft hún fyrirgaf mér hvað oft ég var leiðinlega fullur hér fyrr á árum. Það er oft erfitt fyr- ir sjómannskonuna hve lengi eiginmaðurinn er í burtu og svo var ég oft fullur þessi fáu kvöld sem ég átti í landi. Ég er tiltölulega ung- ur en og vona svo sannar- lega að hún vilji líka búa með landkrabba.“ GHj. 1 | Fiskmarkaðurinn ísafirði: ‘ 41. vika — 6. október - 12. október 1991 Tegund Magn Verðmæti Meðalv. Lægst Hæst Karfi 1.302,00 62.496,00 48,00 48,00 48,00 Hlýri 109,00 10.450,00 95,87 94,00 108,00 Keila 116,00 1.740,00 15,00 15,00 15,00 Lúða 672,00 263.800,00 392,56 310,00 595,00 Skarkoli 348,00 26.028,00 74,79 70,00 86,00 Steinbítur 1.474,00 142.186,00 96,46 81,00 108,00 Undirmál 1.500,00 105.306,00 70,20 45,00 72,00 Ýsa 11.066,00 1.264.963,00 114,31 66,00 136,00 Þorskur 8.970,00 864.250,00 96,35 86,00 120,00 Bland 166,00 3.354,00 20,20 15,00 23,00 Tindaskata 47,00 940,00 20,00 20,00 20,00 Langa 36,00 720,00 20,00 20,00 20,00 Samtals 25.806,00 2.746.233,00 106,42 1 Fiskmarkaðurinn Tálknafirði ■ ■ 41. vika — 6. október -12. október 1991 Tegund Magn Verðmæti Meðalv. Lægst Hæst Þorskur 2.475,00 235.125,00 95,00 95,00 95,00 Koli 382,00 15.280,00 40,00 40,00 40,00 Lúða 18,00 7.220,00 401,11 390,00 415,00 Ýsa 1.054,00 106.398,00 100,95 40,00 122,00 Samtals 3.929,00 364.023,00 92,65 Lesendur: Héraðsskólinn í Reykjanesi — hugleiðingar um möguleika nýtingu á aðstöðu skólans fyrir Lögregluskóla ríkisins ÞEGAR Lögregluskóli ríkisins var stofnaður var liann undir stjórn lögreglustjórans í Reykjavík og hafði skól- inn aðstöðu í lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Arið 1988 var skólinn gerður að sjálfstæðri stofnun og í janúar 1991 var skólinn fluttur í nýtt húsnæði við Nóatún. Lögreglu- menn af öllu landinu sækja þennan skóla og er þeim öllum skylt að hafa lokið skólanum til þess að fá að starfa áfram sem lögreglumenn. Síðastliðinn vetur stunduðu 70 lög- reglumenn nám í skólanum, 47 á fyrri önn og 23 á seinni önn. Þetta er óvanalegur fjöldi á fyrri önn og tileinkast hann að nýjum lögum um menntun lögreglumanna. I venjulegu árferði er áætlað að um 30 nemar stundi nám á hvorri önn. Talsverð óánægja var með þá aðstöðu sem skólinn hafði haft í lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Þá er það húsnæði sem skólinn er ný- fluttur í, af flestum talið of lítið og óhentugt. Þá hafa nemar lögregluskólans þurft að sækja íþróttatíma í Vals- heimilið við Reykjavíkur- flugvöll og sund í Laugar- dalslaug. Undanfarið hefur mikið verið rætt um framtíð Hér- aðsskólans í Reykjanesi við ísafjarðardjúp. Mennta- málaráðherra tók þá ákvörðun að leggja skóla- starf þar niður í haust. Mun þetta hafa verið gert vegna fækkunar nemenda ár frá ári og kostnaðar sem því fylgdi. I Reykjanesi er öll að- staða fyrir hendi t.d. 8 skólastofur, heimavist með 35 herbergjum fyrir tvo, mötuneyti, 40 metra útisundlaug og íþróttaað- staða. Þá má einnig nefna fjórar íbúðir fyrir kennara og tvær gestaíbúðir. Þá er ótalin önnur aðstaða til ým- islegra nota. Þegar það er haft í huga að þessar byggingar standa að mestu ónotaðar, kemur upp sú hugsun hvort ekki mætti nýta þessa aðstöðu fyrir Lögregluskóla ríkisins. Þá má nefna að í nágrenni við skólann er flugvöllur. Bryggja er einnig á staðnum þar sem Djúpbáturinn m/s Fagranes kemur við á ferð- um sínum. Hluti af þjálfun lögreglunema hefur verið að fara í björgunarskóla sjó- manna, Sæbjörgu. Þar sent þetta skip hefur komið til Isafjarðar vegna námskeiða • Jón Bjarni Geirsson. ætti ekki að vera úr vegi að það komi við í Reykjanesi. Við Lögregluskólann hafa starfað margir stundakenn- arar sem starfa við annað öllu jöfnu. Það mætti hugsa sér að þessir kennarar myndu koma og kenna í stuttan tíma í einu. Þá yrði mikil áhersla lögð á einstök fög í stuttan tíma. Varðandi nýtinguna á þessari aðstöðu þá mætti einnig hugsa sér að björgun- arsveitir í landinu myndu geta fengið þarna aðstöðu til námskeiðahalds og þjálfun- ar. Þá yrði skóli þessi mið- stöð þjálfunar fyrir alla þá sem stunda öryggisstörf hér á landi, hverju nafni sem ATVINNA Óskum eftir að ráða verkstjóra með fiskvinnsluréttindi STARFSFOLK - HREINSIBOND Þá viljum við einnig ráða starfsfólk á hreinsibönd. Allar nánari upplýsingar eru veittar í símum 94-3151 og 94-3551 , RÆKJUSTÖÐIN HF. SUNDAHÖFN ÍSAFIRÐI • Héraðsskólinn í Reykjanesi. þeir nefnast, t.d. lögreglu- menn, starfsmenn Land- helgisgæslu, björgunarsveit- armenn ofl. Það má benda á að þarna hafa verið haldin námskeið fyrir björgunar- kafara og hentaði aðstaðan þarna mjög vel til þess. Að lokum verður ekki komist hjá að nefna það um- hverfi sem þarna er en það eitt er kjörið til alls kyns æf- inga úti við, t.d. á fjöllum, og í og á sjó við allar hugs- anlegar aðstæður. Það er mat undirritaðs að aðstaðan þarna, bæði í hús- um og utan þeirra, gefi óendanlega möguleika fyrir starfsemi af þessu tagi. Jón Bjami Geirsson, lög- reglumaður Isafirði.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.