Málfríður - 15.11.1991, Qupperneq 7
Já, víða erlendis er vettvangs-
nám í gangi, nám sem byggir á
sömu grunnhugmyndum. En það
verður að segjast eins og er að
víðast hvar veita yfirvöld
menntamála rausnarlegri afslátt
af kennslu þegar kennarar taka
þátt í svona starfi.
Geturðu sagt okkur eitthvað
frá vettvangsnáminu í Flens-
borg?
Það gekk mjög vel. Flestir létu
afskaplega vel af þessu. Fram
kom í viðtölum við kennarana
þar að þeim kom á óvart hversu
hagnýtt þetta var og einnig kom
mörgum á óvart hversu vel þeim
lét að vinna með kennurum sem
kenndu önnur tungumál. Þeir
kynntust vel í gegnum þetta
þannig að andrúmsloftið varð
skemmtilegra.
Mig langar að koma því hér að
að kennarar í Flensborg tóku þátt
í fyrstu tilrauninni með okkur og
þar fékkst mjög dýrmæt reynsla.
Oddvitarnir þar voru í því krefj-
andi hlutverki að miðla til sam-
kennara sinna og kennarar sóttu
vinnufundina meðfram kennslu
sem var auðvitað mjög krefjandi.
Kennararnir í Flensborg hafa lagt
til mjög dýrmæta reynslu með
starfi sínu. Þeir sem vilja vita
meira um vettvangsnámið frá
sjónarhóli kennaranna þar ættu
að lesa grein eftir Guðrúnu
Hrefnu Guðmundsdóttur í haust-
blaði Nýrra menntamála. Guðrún
Hrefna var annar oddvitanna í
Flensborg og Iýsir vettvangsnám-
inu frá sjónarhóli kennara.
Og nú er önnur lota farin af
stað...
Já, í henni verða kennarar í er-
lendum málum við Menntaskól-
ann við Sund, Fjölbrautaskóla
Suðurlands á Selfossi og Mennta-
skólann á Laugarvatni. Ekki er
annað að sjá en þetta muni ganga
vel í þessum skólum. í lok ágúst
var 3ja daga vinnufundur á Sel-
fossi þar sem teknir voru fyrir
tveir af meginþáttunum fjórum,
hlustun og tal og svo var einnig
fjallað um notkun myndbanda.
Þessi vinnufundur tókst mjög vel.
Síðan vinna kennararnir úr hug-
myndunum, hver hópur í sínum
skóla fram að jólum. I janúar
verður svo fjallað um lestur og
ritun ásamt fleiru og úrvinnsla
heldur svo áfram til vors.
Ef einhveijir hafa hug á að
taka þátt í þessu geta þeir óskað
eftir að vera með?
Þeir geta það. Þótt skólum hafi
verið boðin þátttaka fram að
þessu, þá væri líka mjög æskilegt
að fá að vita ef kennarahópar
hafa áhuga á að taka þátt í þessu.
Þeir geta sent mér línu eða
hringt í mig. Utanáskriftin er:
Gerður Guðmundsdóttir,
Félagsvísindadeild Háskóla
íslands,
Odda við Sturlugötu,
101 Reykjavík.
Síminn hjá mér er 694578 og
núna er ég með fastan viðtals-
tíma milli 12 og 14 á miðvikudög-
um.
Dæmi um verkefni sem frönskukennarar í
Menntaskólanum við Sund unnu:
Lottó
Ekta franskur lottóseðill ljósritaður báðum megin.
Tölur lesnar inn á spólu.
Tilgangur: Æfing í hlustun, æfing í notkun töluorða og
nemendur átta sig á frönsku lottói.
[H®Ð®M
I I I I I I I I I I
SAMEDI
Multiple
1 i i i i i i i i i
BSSB
UiiiB
ggggg
0BB8B
30BSB
3SBBE
3S8BB
3g@@g
3§gSB
EBBBB
0 28 F
0 112 F
0 336 F
§ 840 F
NE COCHEZ OU'UNE SEULE MISE |
0 14 F
0 56 F
0 168 F
§ 420 F
Premier Tirage
du
SAMEDI
seulement
Résultats officiels et informations sur minitel 36.15 LOTO
et par téléphone 36 65 77 01
MULTIPLE
6 sur 49
lete //
S.A.E.M. au capital de 500.000.000 F - R.C.S. Paris B 315.065.292
7