Málfríður - 15.11.1991, Page 9
Rannveig Jónsdóttir:
AÐSTAÐA TIL SJÁLFSNÁMS
Á vorönn 1990 heimsótti ég á-
samt kennara og nemendum úr
Kennaraháskólanum í London
málaskólana Eurocentre í Black-
heath og International House á
Piccadilly til þess að skoða
svokölluð „self-access centres"
sem þar hefur verið komið á fót á
undanförnum misserum. Mikill á-
hugi er nú á slíkum miðstöðvum
og sagt er að þá fullkomnustu á
Bretlandseyjum sé að finna í Bell
skólanum í Cambridge.
„Self-access centres“ eru opn-
ar gagnamiðstöðvar með verkefn-
um og gögnum ýmiss konar, seg-
ulbandstækjum, tölvum og
myndbandstækjum og vinnuað-
stöðu þar sem nemendur geta
unnið sjálfstætt að fyrir fram á-
kveðnum verkefnum tengdum
námi þeirra í skólastofunni eða
fundið sér viðfangsefni að eigin
vali. Aðgangur er frjáls og sjálfs-
afgreiðsla þannig að nemendur
geta skoðað það sem í boði er og
valið sér þau verkefni sem hugur-
inn girnist líkt og rétti af köldu
borði. Megintilgangurinn með
slíkri aðstöðu er fyrst og fremst
sá að gera nemendum kleift að
læra upp á eigin spýtur óháð
bekkjarkennslunni. Þeir geti leið-
rétt verkefni sín sjálfir og metið
eigin frammistöðu. Slíkum mið-
stöðvum hefur ekki enn verið gef-
ið gott íslenskt nafn svo lýst er
eftir tillögum.
Hugmyndirnar sem þessar
opnu gagnamiðstöðvar byggjast
á eru komnar frá mannúðarsál-
fræðingunum sem hafa haft mikil
áhrif frá því á sjöunda áratugn-
um, ekki síst í uppeldis- og
kennslufræðum. Þeir leggja á-
herslu á þá staðreynd að nem-
endur séu mismunandi einstak-
lingar með ólíkar þarfir og
áhugamál og taka beri tillit til
þess. Þeir eigi að bera vaxandi á-
byrgð á eigin námi og skólinn
skuli veita þeim aðstöðu til þess
að þroskast og menntast eftir
sínum óskum og forsendum inn-
an þess ramma sem hann getur
veitt.
Kenningar um sjálfræði
(autonomy) nemenda hafa verið
ofarlega á baugi í enskukennslu
síðan á áttunda áratugnum og
einnig vaxandi áhugi á því að
miða kennsluna meira við hvern
einstakling, aðstæður hans og
hæfni. Opnar gagnamiðstöðvar
eru ein leiðin til þess að greiða
fyrir breytingum í þá veru og
auðvelda nemenda miðaða
kennslu.
Breytt viðhorf
I bók sinni „Self-Access“ segir
Susan Sheerin, forstöðumaður
opnu gagnamiðstöðvarinnar í
Bell skólanum í Cambridge, að
sjálfsnám í slíkum miðstöðvum
krefjist viðhorfsbreytinga bæði
kennara og nemenda vegna þess
að það er ríkjandi viðhorf að
námið sé á ábyrgð kennarans og
hann eigi að leiðrétta villur. Nem-
andinn sé óvirkur og kennarinn
stjórni honum í takt við aðra. Sú
breytta staða sem skapist reyn-
ist oft erfið því meistarahlutverk-
ið sé mörgum tamt og auðveld-
ara sé fyrir nemendur að láta
leiða sig. Villur séu ekki lengur á-
litnar mistök af hálfu nemandans
heldur mikilvægur vitnisburður
um það á hvaða stigi nemandinn
sé í málanáminu. Greining á vill-
um nemenda komi að litlu gagni
nema aðgerðir til úrbóta séu ein-
staklingsbundnar. Málfræðiverk-
efni ýmiss konar í opnum gagna-
miðstöðvum gætu komið að
gagni í því sambandi og reynslan
hefur sýnt að þau eru yfirleitt
mjög vinsæl í svona sjálfsaf-
greiðslukerfi. Slíkar miðstöðvar
geta boðið upp á raunhæfa lausn
á mörgum vandamálum sem
skapast í málakennslu vegna ó-
líkra þarfa nemenda.
Að sögn Sherring kostar það
geysimikla vinnu að setja upp
fjölbreytta aðstöðu af þessu tagi.
Efnið sem boðið sé upp á þurfi
að vanda vel og gæðin skipti
meira máli en magnið. Skipulag
verði að vera gott og efnið vel
merkt svo að nemendur finni
auðveldlega það sem þeim hent-
ar. Flokkun efnisins þurfi að vera
einföld og auðskiljanleg, helst í
mismunandi litum eftir þyngdar-
stigi og skýrar leiðbeiningar á
móðurmálinu svo að nemendur
geti sjálfir fundið efni við sitt
hæfi í skrám og hillum. Markmið
hvers verkefnis þurfi einnig að
vera greinilegt og leiðbeiningar á
verkefnablaði ásamt svarlykli.
Hún telur æskilegast að opna
gagnamiðstöðin sé í tengslum við
bókasafnið og þar sé sköpuð við-
bótaraðstaða til þess að nota hin
ýmsu gögn og afla sér þeirra á
frjálsan og sjálfstæðan hátt.
Nám í opinni gagnamiðstöð er
framandi hugmynd fyrir marga
og gera má ráð fyrir að flestir
nemendur þurfi leiðsögn og þjálf-
un. Sheerin segir að fyrst þurfi að
sannfæra þá um nauðsyn þess að
taka ábyrgð á eigin námi og gildi
þess að vinna sjálfstætt. Þeir
þurfi að finna að það sé gagnlegt
og þeir geti tekið framförum án
þess að hafa kennarann stöðugt
sér við hlið. Aðstaðan þurfi að
vera aðlaðandi og verkefnin sem
boðið sé upp á gagnleg og áhuga-
verð og með fagmannlegu yfir-
bragði. Markmiðið með því að
bjóða upp á svona aðstöðu sé að
auka sjálfstæði nemenda. Þetta
9