Málfríður - 15.11.1991, Page 11
haustið var svo farið í gegnum
allt hljóðefni enskudeildarinnar,
það flokkað og skráð og í öryggis-
skyni var afritað það sem aðeins
var til í einu eintaki áður en það
var sett fram á sal bókasafnsins
og snældunum raðað í hillur
ásamt meðfylgjandi textum. Að-
eins brot af þessu efni var á
námsskránni. Búinn var til listi
yfir hlustunarefnið. Hann liggur
frammi svo nemendur geta valið
eftir honum eða með því að
skoða hvað er í hillunum. A bóka-
safninu geta nemendur núna
hlustað sér til gagns og gamans á
efni að eigin vali og þeir geta líka
hlustað á efni og bætt sér upp
hlustunaræfingar sem þeir hafa
misst af í kennslutímum.
Best fallið til að brúa bilið út í
lífið, milli stýrðrar hlustunar í
kennslustofunni og þess að
hlusta við eðlilegar aðstæður, er
að mati Sheerin það efni sem
nemendur kynnu sjálfir að velja
sér og er skemmtilegt og fræð-
andi eða örvar ímyndunaraflið.
Hlustun af þessu tagi eflir sjálfs-
traust nemenda og getu til að
skilja talað mál. Hún telur það
vera við hæfi að treysta nemend-
um til að hlusta sér til ánægju og
fróðleiks án þess að krefjast þess
alltaf að þeir svari spurningum
úr efninu, en nauðsynlegt sé að
prentaðir textar fylgi öllu hljóð-
efni sem annars kynni að vera
nemendum of erfitt og þeir geti
þá borið saman talaða og ritaða
mynd orðanna og flett upp í
orðabók eftir þörfum.
Þjálfun í notkun orðabókar er
að sjálfsögðu nauðsynleg og góð
orðabók er ómissandi hjálpar-
gagn við hvers konar sjálfsnám.
Á bókasafni FÁ liggja frammi
eyðublöð þar sem nemendur eru
hvattir til að skrifa niður hvað
þeir hafi verið að hlusta á og
hvað þá langi mest til að heyra.
Hlustunaraðstaðan var talsvert
mikið notuð og í ljós kom eftir
fyrsta veturinn að nemendur
höfðu mestan áhuga á efni sem
var á námsskránni. Nemendur
voru einnig hvattir til að skrifa at-
hugasemdir og segja álit sitt á
þessu fyrirkomulagi. Einn sagði:
,,Það er sniðugt að geta gengið
að þessu svona og svo finnst mér
að ætti að vera hægt að leigja út
spólur." Og annar sagði: „Eg er
mjög ánægð með að geta bæði
hlustað og um leið fylgst með á
bók. Efnið verður skemmtilegra
og maður lifir sig meira inn í at-
burði." Smásögur henta einkar
vel til hlustunar af þessu tagi og
einnig reynist nemendum gagn-
legt að hlusta til dæmis á fyrsta
kaflann í lengri skáldverkum.
í ár bjóðum við upp á sama
fyrirkomulag og í fyrra. Hver þró-
unin verður er óráðið. Plássleys-
ið á bókasafninu setur okkur
þröngar skorður og einnig á skól-
inn eftir að marka skýra stefnu í
þessum málum. Ef skilyrði verða
sköpuð til þess væri vissulega
gaman að byggja upp góða
gagnamiðstöð, þótt í smáum stíl
væri. Nota mætti aðstöðuna til
aukins einstaklingsbundins
stuðnings við nemendur og til
frjálsra afnota.
Ef enskudeildin eykur framboð
efnis, þá teldi ég heppilegast til
að byrja með að allir kennarar
deildarinnar ynnu saman að því í
nokkra daga að útbúa verkefni
við hæfi, til dæmis í málfræði,
hlustun og lestri. Þá yrðu þeir all-
ir handgengnir gagnamiðstöðinni
og samábyrgir þátttakendur í
þróuninni. Hafa þarf að leiðar-
ljósi að auðvelt sé að finna efnið,
skýrar leiðbeiningar fylgi því og
möguleiki sé til þess að meta ár-
angurinn.
SRA kassarnir, sem flestir
enskukennarar þekkja, innihalda
lesefni flokkað eftir þyngd, ásamt
verkefnum og svörum. Þeir eru
kjörnir til sjálfsnáms og eiga
heima í opnum gagnamiðstöðv-
um.
Á bókasafninu í FÁ eru þrjár
tölvur sem nemendur hafa frjáls-
an aðgang að, svo möguleikarnir
eru fyrir hendi og finna má hug-
búnað sem kæmi að gagni við
einstaklingsbundið nám.
Einnig væri æskilegt að nem-
endur hefðu frjálsan aðgang að
myndbandstæki með heyrnartól-
um því skólinn á allgott safn
myndbanda. En eins og fyrr sagði
setja þrengslin okkur þröngar
skorður.
Núna á tímum örra breytinga
er mikilvægt að kunna að leita
sér þekkingar. Opnar gagnamið-
stöðvar geta veitt mikilvæga
þjálfun á því sviði og eru þess
vegna spor í rétta átt.
Heimildir:
Sheerin, Sue. „Self-Access in Teacher
Training,“ Bell at IATEFL. Academic
Reports. Cambridge: Bell Educational
Taust, 1989.
Sheerin, Susan. Self-Access. Oxford:
Oxford University Press, 1990.
Rannveig Jónsdóttir
FÁ
11