Málfríður - 15.11.1991, Síða 13
skólinn á Akranesi. Sá síðar-
nefndi tók aðeins þátt í hluta
námskeiðsins. Tveir oddvitar
voru valdir úr hópi kennara til að
sækja nokkur námskeið í HÍ. í
framhaldi af námskeiðinu reyndu
oddvitarnir þessar aðferðir í eig-
in kennslu og miðluðu síðar á
námskeiðum í skólunum til sam-
kennara sinna. Auk þess áttu þeir
kennarar sem þátt tóku í nám-
skeiðinu reglulega vinnufundi,
þar sem þeir miðluðu hver öðr-
um af reynslu sinni og unnu sam-
an við verkefnagerð.
Að lokum benti Auður á að um
markverða tilraun væri að ræða,
sem hefði tekist vel, og taldi mik-
ilvægt að fleiri skólar gætu átt
kost á að taka þátt í verkefnum af
þessum toga. Til dæmis gæti ver-
ið áhugavert að bjóða upp á slík
námskeið þvert á skólastig.
Claus von Bamekov, sendi-
fulltrúi Dana, ávarpaði ráð-
stefnugesti og fjallaði m.a. um
mikilvægi þess að viðhalda nor-
rænu samstarfi vegna sameigin-
legs uppruna og líkrar menning-
ar. í lok erindis síns gladdi Claus
ráðstefnugesti með því að bjóða
þeim til mannfagnaðar í danska
sendiráðinu eftir ráðstefnuna.
Sigurður Svavarsson, útgáfu-
stjóm Máls og menningar, ræddi
um námsefnisgerð og norrænt
samstarf á því sviði. Hann benti á
að mikið af góðu heimatilbúnu
námsefni lægi hjá kennurum, en
varla væri hægt að ætlast til þess
að þeir sæju um námsefnisgerð.
Kennsla gæti aldrei verið annað
en aðalstarf. Sigurður ræddi jafn-
framt um tilraunakennslu nýs
námsefnis, sem hann telur for-
sendu þess að nýtt og ,,gott“
námsefni nái fótfestu í skólum og
að ekki laumist „lélegt" kennslu-
efni inn í skólana. Síðan ræddi
Sigurður um kennslubókaútgáfu
og gerði grein fyrir verðmyndun
kennslubóka. Höfundur fær 16%,
bóksali 25%, forlag 25%, útlit
10%, prentunarkostnaður 24%.
Hann ítrekaði gildi góðrar sam-
vinnu kennara og útgáfufyrir-
tækja og sagði að nauðsynlegt
væri að fylgjast með útgáfu í Dan-
mörku.
Eftir framsöguerindin sátu full-
trúar menntamálaráðuneytisins
og Námsgagnastofnunar fyrir
svörum. Af hálfu menntamála-
ráðuneytisins voru mætt þau
Gerður G. Óskarsdóttir og Hörð-
ur Lárusson og frá Námsgagna-
stofnun komu Asgeir Guðmunds-
son og Ingibjörg Ásgeirsdóttir.
Ráðstefnugestir létu spurningum
rigna yfir gestina og var mörgum
heitt í hamsi. Það var m.a. gagn-
rýnt að námstjórastaðan í
dönsku hafði verið lögð niður,
mikið var rætt um námsefni
Námsgagnastofnunar og sýndist
sitt hverjum. Fram kom óánægja
hjá mörgum með úthlutunarbæk-
ur stofnunarinnar í dönsku og
hvernig stofnunin hefur staðið að
námsefnisgerð í dönsku. Fulltrú-
ar Námsgagnastofnunar bentu á
að nú væri nemendum í grunn-
skólum bannað að greiða sérstak-
lega fyrir námsefni. Skólinn þyrfti
því að greiða þetta ef vel ætti að
vera. Áður hefðu nemendur
greitt 25-30 milljónir í bækur.
Námsgagnastofnun hafi fengið 10
milljónir til aukabókakaupa og
stofnunin veiti nú 10,5 milljónum
króna til að koma til móts við
kröfu skólanna um efni annars
staðar frá. Vonandi fengist meira
fé til námsefnisgerðar í framtíð-
inni.
Ráðstefnugestir gagnrýndu
líka þá ákvörðun að opna fram-
haldsskólann öllum, án þess að
viðhlítandi ráðstafanir hefðu ver-
ið gerðar til að mæta auknum
fjölda nemenda. Gerður taldi að
það hefði ekki verið ótímabært,
en framhaldsskólarnir hefðu
þurft að vera betur undir það
búnir. Hún sagði enn fremur, er
spurt var hvernig ætti að leysa
vandamál þeirra sem lentu í 0-
áföngum, að þau vandamál yrði
að leysa í skólunum og að þar
væri í gangi starf til að mæta
þörfum þessara nemenda, sem
áður komu ekki inn í framhalds-
skólana. Margt fleira kom að sjálf-
sögðu fram en við látum hér
staðar numið.
Almennt kom fram mikil á-
nægja meðal fundarmanna með
ráðstefnuna en þó má gagnrýna
að tímaáætlun var of stíf, svo
ekki gafst tími til fyrirspurna milli
erinda.
I tengslum við ráðstefnuna var
bókasýning á vegum Máls og
Menningar, Bókaverslunar Sigfús-
ar Eymundssonar og Námsgagna-
stofnunar og kunnu ráðstefnu-
gestir vel að meta þetta framtak
bókaútgefenda.
12. apríl voru haldnir deildar-
stjóra- og fagstjórafundir. Þetta
var í fyrsta skipti sem slíkt var
gert og mæltist vel fyrir ekki
hvað síst hjá grunnskólakennur-
um. Eftir sameiginlega fundar-
setningu skiptist fólk í tvo hópa
fagstjóra og deildarstjóra. Á
deildarstjórafundinum var m.a.
rætt um nemendaskipti, stöðu-
próf og dönskukennslu og for-
nám. Miklar og góðar umræður
urðu og eftir hádegi var unnið að
tillögum um tilhögun stöðuprófa.
Á vegum menntamálaráðuneytis-
ins fer nú fram endurskoðun á
stöðuprófum. FDK tekur þátt í
þessari endurskoðun og er þar
tekið mið af þeim hugmyndum
sem fram komu á deildarstjóra-
fundinum. Á fagstjórafundinum
var m.a. rætt um byrjenda-
kennslu í dönsku, námsefnisgerð
í dönsku, samræmd próf og
námsstjórastöðuna. Unnið var í
hópunum. Fjörugar umræður
spunnust um þessi mál og gætti
mikillar reiði meðal fundarmanna
vegna þeirrar ákvörðunar
menntamálaráðuneytisins að
leggja niður námsstjórastöðuna í
dönsku. Deildarstjórar og fag-
stjórar hittust seinni part dags
og fóru yfir störf dagsins.
Að lokum þetta: Það liggur
mikil vinna að baki undirbúnings
ráðstefnu og funda af þessu tagi.
Stjórn FDK naut aðstoðar þeirra
Magnúsar V. Magnússonar, Rétt-
arholtsskóla, Ósu Knútsdóttur
Menntaskólanum við Sund og
Þyríar Árnadóttur Menntaskólan-
um í Reykjavík við undirbúning-
inn. Þau unnu mikið og óeigin-
gjarnt starf og kunnum við í
stjórn FDK þeim bestu þakkir fyr-
ir.
Málfríður Þórarinsdóttir,
Vilborg ísaksdóttir.
13