Málfríður - 15.11.1991, Side 18
mikið og hægt var af töflu sem
þeim var afhent. Að því búnu var
hópunum skipt upp, þannig að
hver nýr hópur samanstóð af full-
trúum frá öllum hópunum og síð-
an voru bækur bornar saman.
Ekki skal hér fjallað nákvæmlega
um í hverju verkefnið fólst, en
það sem vakti athygli var að þar
var notast við einföld, gamaldags
mónó kassettutæki og með sér-
stöku millistykki mátti tengja allt
að sex heyrnartól í hvert tæki.
Þennan einfalda útbúnað má
panta frá Englandi, en með hon-
um opnast möguleiki til hóp-
vinnu við hlustun í kennslustund,
þar sem hóparnir geta unnið
með sitt efni hver án þess að
trufla aðra. Þetta hefur vitaskuld
í för með sér einhvern stofn-
kostnað, en einföld heyrnartól
eins og notuð eru við vasadiskó
eru ekki dýr og margir skólar
eiga sjálfsagt enn gömul segul-
bandstæki sem tekin hafa verið
úr almennri notkun.
Annað skemmtilegt hlustunar-
efni var úr kennslubók sem nefn-
ist Oxford Supplementary Skills:
Listening Advanced og fjallaði
um kvikmyndir. Byrjað var á að
hlusta á stutt kafla úr kvikmynda-
tónlist og nemendur áttu að
ræða hvaða hugrenningartengsl
vöknuðu með þeim við að heyra
tónlistina, hvers konar kvikmynd
var um að ræða, hvað þeir sáu
fyrir sér, það er, svið, persónur,
klæðnað, tímabil og svo framveg-
is. A eftir kom nánari umfjöllun
um kvikmyndagreinar (genre),
með frekari orðaforða-, tal- og
hlustunaræfingum.
Blönduð kennsla
„Blönduð kennsla", eða hvern-
ig kenna megi misfærum nem-
endum í sama bekk eða hóp er
vandamál sem flestir kennarar
kannast við. Mál þetta bar oft á
góma í Edinborg og sýndu kenn-
arar okkar nokkur dæmi um
hvernig útbúa mætti sama verk-
efnið þannig að það gæti hentað
misgóðum nemendum. Eitt slíkt
var hlustunarefni þar sem kenn-
ari les upp stutta frásögn, sem
þó er allflókin með margvíslegum
smáatriðum. Bekknum er skipt
upp í fjóra hópa og má þá skipa
þeim bestu og lélegustu saman
svo lítið beri á, og fær hver hóp-
ur verkefni við hæfi. Allir hóparn-
ir eiga að endursegja söguna. Erf-
iðasta verkefnið felst einfaldlega
í að endursegja sögnuna án nokk-
urs að styðjast við, en því auð-
veldasta fylgir grind með orða-
forða úr sögunni. Verkefnablöðin
þar á milli eru með spurningum
og/eða nokkrum lykilorðum.
Kennarinn fer yfir helstu þætti
sögunnar með öllum bekknum á
töflu í lokin og er þá mikilvægt að
fá helstu lausnir frá öllum hópun-
um. Þar gefst gott tækifæri til að
fara í orðaforða, stafsetningu,
málfræði og fleira sem kann að
koma upp, auk þess að fá rétt at-
riði sögunnar. Annað dæmi um
slíka blandaða kennslu er
myndstíll, þar sem nemendur í
einum hóp fá hver sína mynd
sem þeir mega ekki sýna hinum,
aðeins lýsa. I öðrum hópnum fá
allir að sjá myndaröðina, og í
þeim þriðja fá nemendur bæði
myndaröð og setningar sem þeir
eiga að velja úr og raða í rétta
röð. Einnig má breyta þessu
meira til að fá enn meiri breidd í
verkefnin, til dæmis með því að
gefa orð eða grófa efnisgrind.
Lokaútkoman ætti að verða
nokkurn veginn hin sama. Sál-
fræðileg áhrif eru að líkum já-
kvæð, því svo framarlega sem
ekkert er gefið upp um að hóp-
arnir hafi fengið miserfið verkefni
ætti öllum að finnast sem þeim
hafi tekist að leysa það vel af
hendi. Gæta verður þess að
breyta hópaskiptingunni reglu-
lega til þess að vinna gegn
möguleikunum á neikvæðum
„stimplum", og einnig er rétt að
minnast þess að stundum er
betra að hafa misgóða nema sam-
an í hóp. Einnig er rétt að hafa í
huga við skiptingu í hópa að
nemendur eru ekki aðeins mis-
jafnlega færir í málinu, heldur að
þroska, áhuga og persónuleika,
og allt getur það skipt máli.
Lestur
Varðandi lestrarkennslu var
mest áhersla lögð á að lesturinn
virðist þjóna einhverjum tilgangi
fyrir nemandann, jafnvel þótt
hann sé venjulega tilbúinn. Til-
gangurinn getur verið margs kon-
ar svo sem leita svara við ein-
hverju, leita upplýsinga, leita
staðfestingar eða svala forvitni
eða fróðleiksþorsta. Lestraræf-
ingar geta krafist misvandlegs
lesturs, verið einar og sér eða
fléttaðar inn í margþætta æfingu
ásamt tali og ritun. Meðal
skemmtilegra lestraræfinga sem
lagðar voru fyrir á námskeiðinu
var upphitunaræfing sem fólst í
hraðlestri og leit að upplýsing-
um. Bekkjarhópnum er skipt upp
í nokkur lið sem keppa um hvert
verður fyrst að finna réttu lausn-
irnar. Kennari hefur áður klippt
tíu ferðaauglýsingar frá ýmsum
stöðum í heiminum út úr tímarit-
18