Málfríður - 15.11.1991, Síða 25
Zoom In eftir Henny og Geddes
(OUP 1987) og Newsbrief frá BBC
Enterprises. Benti Marion Gedd-
es á eina aðferð sem styðjast
mætti við þegar kennsla með
notkun raunverulegra sjónvarps-
þátta er skipulögð.
ÁÐUR EN HORFT ER
1. Efnið kynnt.
2. Undirbúningur fyrir hlustun
og skilning
— orðaforði
— menningarlegir þættir.
3. Nemendur gerðir virkir.
Á MEÐAN HORFT ER
4. Horft með athygli á fyrir
fram ákveðin atriði.
EFTIR SÝNINGU
5. Umræða um efnið.
6. Áframhaldandi umfjöllun
sem felur í sér
— lestur
— ritun
— tal
— hlustun.
7. Æfingar í málnotkun.
Mjög gagnlegt var að fá í hend-
ur lista yfir kennsluefni sem til er
á myndböndum ásamt umsögn
leiðbeinandans. Undirritaðri
fannst einnig ómetanlegt að fá til-
sögn í því hvernig hægt er að
bera sig við að dæma um
kennsluefni sem til er á mynd-
böndum með tilliti til markmiða,
efnis og kennsluaðferða.
Á öðrum degi námskeiðsins
skiptu þátttakendur sér í hópa
þar sem þeir spreyttu sig á að
beita þeim hugmyndum og að-
ferðum sem kynntar höfðu verið
deginum áður.
Einn hópur horfði á hluta af
myndbandi og ákvað í framhaldi
af því hvaða aldurshóp og getu-
stigi hann myndi henta og hvern-
ig nota mætti þáttinn í kennslu.
Annar hópur undirbjó stuttan
hluta úr kennsiustund þar sem
myndband var notað og „kenndi“
síðan hinum. Ýmsum þeim að-
ferðum sem frá var greint hér að
ofan var beitt og tókst mjög vel.
Undirrituð kaus að taka þátt í
hóp sem tók að sér að skoða
hversu vel tiltekið efni félli að
kennslu á framhaldsskólastigi.
Horft var á hluta af myndbandi
sem valið var af handahófi, auk
þess sem meðfylgjandi kennslu-
bók var skoðuð. Flestir kennarar
hafa eflaust orðið fyrir því, að
kennslubókin sem pöntuð hafði
verið og leit svo vel út í bæklingi
útgefandans reyndist ekki svo
góð þegar á hólminn var komið.
Fengu meðlimir hópsins í hendur
atriðalista með nokkuð yfirgrips-
miklum spurningum. Þarna var
m.a. spurt um helstu áherslu-
þættina og þá aðferðafræði sem
kennsluefnið byggir á (structural,
functional, thematic, situational
o.s.frv.), hvers konar mál er not-
að (æft, óæft), áhugasvið, gæði
myndbands, fjölbreytileika ítar-
efnis og kennsluaðferða og þar
fram eftir götunum. Listi sem
þessi er ómetanlegur við mat á
kennsluefni og á án nokkurs vafa
eftir að nýtast vel við val á til-
búnu námsefni í framtíðinni, sem
og við gerð eigin námsefnis.
Síðari hluta dagsins ræddi
Marion Geddes um það hvernig
við getum sjálf notað myndatöku-
vélina við kennslu og þá sérstak-
lega við verkefnagerð með nem-
endum. Nokkrir kennarar
greindu frá reynslu sinni á þessu
sviði og bar jaeim saman um að
gerð eigin myndefnis gæti borið
góðan árangur en krefðist jafn-
framt góðs undirbúnings og tölu-
verðrar handleiðslu af hálfu
kennarans, t.d. aðstoð við orða-
forða og málnotkun. Bent var á
ýmis tæknileg atriði við mynda-
töku og hvernig best væri að leið-
beina nemendum þannig að út-
koman yrði skemmtileg. Hægt er
að setja á svið rabbþætti, leika
leikrit, eða tala inn á mynd.
Marion Geddes benti einnig á
hvernig hægt er að gera heimilda-
mynd með því að nota myndir úr
bókum, póstkort og litskyggnur
og klippa saman. Nemendur
skrifa síðan eigin texta við mynd-
ina og sýna félögum sínum. Onn-
ur hugmynd felur í sér að taka
mynd af t.d. fjórum aðilum sem
svara spurningu og fá síðan aðra
nemendur til að geta sér til um
hver spurningin var. Einnig er
hægt að taka mynd í herbergi, á
skrifstofu eða einhverjum öðrum
stað og spyrja síðan hvar þetta
sé. Nemendur svara á ensku og
viðeigandi orðaforði er æfður.
Gerð slíkra verkefna þarf ekki að
vera svo tímafrek séu þau vel
skipulögð og undirbúin og gætu
svo sannarlega leyst af hólmi
marga ritgerðina, flestum til ó-
blandinnar ánægju.
Á síðasta degi námskeiðsins
var fjallað um samtengingu fjöl-
miðlafræði og enskukennslu og
notkun myndbanda við bók-
menntakennslu.
Margir spyrja eflaust hvernig
tengja megi fjölmiðlafræði við
enskukennslu og hvort þessar
greinar eigi yfirleitt samleið.
Marion Geddes taldi þarna ó-
plægðan akur við að auka á fjöl-
breytileika kennslunnar. Við
kennum jú bókmenntarýni í efri á-
föngum framhaldsskólastigsins,
svo því ekki að kenna fjöl-
miðlarýni? Hér er um tiltölulega
nýja námsgrein að ræða, mál-
notkun er þar í fyrirrúmi og hún
getur haft hvetjandi áhrif við
málanámið. Fréttir og fréttatengt
efni er gott dæmi um daglegt mál
eins og það er notað af ensku-
mælandi fólki um allan heim og
er mikilvægt að kynna það fyrir
nemendum. Hægt er að fjalla um
efnið frá ólíkum hliðum og þarf
jDað alls ekki að vera með orða-
forðaæfingum eða beinum skiln-
ingsspurningum. Til dæmis má
fjalia um efni fréttanna frá mis-
munandi sjónarhornum í litlum
hópum, sem síðan greina öðrum
frá niðurstöðum sínum. Hér ber
að hafa í huga þá grundvallar-
reglu sem frá er greint hér að
ofan, að það er ekki alltaf það
málfar og sá orðaforði sem er á
myndbandinu sem er mikil-
25