Málfríður - 15.11.1991, Síða 27
NAMSKEIÐ FYRIR
SPÆNSKUKENNARAí
BARCELONA
Það var með nokkrum kvíða
sem haldið var af stað til
Barcelona um mánaðamótin
júní—júlí og var það ekki einung-
is vegna hitans og rakans sem
venjulega eru ríkjandi þar á þeim
árstíma, heldur líka óvissan um
hvað var verið að halda útí Jú,
það átti að halda námskeið fyrir
spænskukennara víða að úr Evr-
ópu á vegum Evrópuráðs, en tím-
inn hafði verið mjög naumur til
að afla nánari upplýsinga. Okkur
hafði verið sent símanúmer
skipuleggjanda námskeiðsins,
sem reyndist vera rangt og þurfti
slátrari nokkur I Barcelona sífellt
að neita og þverneita því að hann
væri kennari. I þessu eina bréfi
sem okkur barst hafði þó verið
nefnt að við ættum frátekin her-
bergi á hóteli við aðalgötu borg-
arinnar, hina frægu Las Remblas.
Og þá varð bara að halda þangað
og bíða þess að málin skýrðust.
Þrátt fyrir aðvarandi orð um að
Spánverjar væru frekar slakir í
skipulagningu námskeiða, kom á
daginn að allt var afbragðsvel
skipulagt og farið með okkur
kennara eins og höfðingja. Hótel-
ið var eitt besta hótel borgarinn-
ar (nema að það var engin loft-
ræsting!) og starfslið þess það
allra besta. Við komuna þangað
var okkur afhent þykk mappa
með öllum upplýsingum um nám-
skeiðið og strax boðið til kvöld-
verðar. Þarna dvöldum við öll 18
í þessar tvær vikur og þoldum
saman súrt og sætt.
Mánudagurinn 1. júlí rann upp
hlýr og heiður. I Escuela Oficial
de Idiomas, sem er 7 hæða bygg-
ing skammt frá Las Ramblas,
styttunni af Kristófer Kólumbusi
og höfninni frægu, kynntumst við
kennurum námskeiðsins og hvert
öðru þennan fyrsta dag svo vel
að þaðan í frá var eins og við
hefðum öll verið kunningjar frá
ómunatíð. Isinn var brotinn.
Verkefnin voru aðallega tví-
þætt. Annars vegar umræða og
gerð verkefnis af kennslufræði-
legum toga. Hins vegar verkefni
við fyrirlestra um stöðu mennta-
mála á Spáni, bókmenntir, tón-
list, kennslufræðileg málefni eins
og stöðu kennarans í skólum í
dag og þátt mistaka í kennslunni.
Einnig fengum við nokkra
fræðslu um málfræðileg efni og
daglegt málfar. Til skemmtunar
var okkur boðið að heimsækja og
fræðast um þinghús og þing
Katalana, endurskipulagningu
borgarinnar vegna Ólympíuleik-
anna á næsta ári og umhverfi
Barcelona. Verkefnin voru næg
og tíminn ákaflega naumur, enda
kom á daginn að við flest okkar
unnum allt upp í 10 tíma á dag.
Öll vinna var unnin í hópum
og fylgdust kennarar ákaflega vel
með framvindu hvers verkefnis
með því að afhenda okkur blöð
til útfyllingar fyrir hvert stig verk-
efnis. Til dæmis má nefna blað 1:
áhugamál á sviði kennslufræði;
blað 2: áhugamál á sviði félags-
og menningarmála; blað 3: hvar á
að byrja þegar vinna á verkefni?
Við kennarar þurftum síðan að
standa upp og leita að þeim sem
höfðu valið sambærileg verkefni
og mynda þannig hópa. Við úr-
vinnslu verkefna fengum við
stöðugan straum af blöðum og
fannst sumum okkar nóg um, en
það er augljóst að af þessum
vinnubrögðum má læra mikið,
t.d. geta skipuleggjendur fylgst
vel með allri framvindu og dæmt
um hvort rétt hafi verið farið að
og við nemendurnir vorum mjög
meðvitaðir um hvert einstakt stig
vinnunnar, sem oft vill gleymast í
önnum kennslunnar. Að vísu má
segja að vinnan tafðist dálítið við
þessa skýrslugerð, því oft þurfti
dálítið að samræma hugmyndir
okkar um verkefnin og aðferðirn-
ar og reyndi oft á þolrif Islend-
ingsins í hópnum sem vanur var
að vinna einn síns liðs! En við
höfðum gott af þessu.
Fyrra hópverkefni undirritaðr-
ar fjallar um samskipti í tímum á
milli kennara og nemenda og
nemenda sín á milli og gagnrýni á
kennslubókum út frá samskipta-
möguleikum. Þarna gafst í fyrsta
skipti tækifæri til að skiptast á
skoðunum um þessi málefni og
sjá hvaða bækur féllu vel til þess
að örva samskipti. Var þessi þátt-
ur einkar gagnlegur því við hérna
á Islandi höfðum verið nokkuð
einangruð og ekki átt kost á því
að skoða vel hvað er í boði í
kennslugögnum. Kom í Ijós að á
undanförnum árum hafa Spán-
27