Málfríður - 15.11.1991, Qupperneq 29
FRETTIR — FRETTIR — FRETTIR
Frá félagi
norsku- og
sænskukennara
Á síðasta aðalfundi Félags
norsku- og sænskukennara sem
haldinn var 5. desember sl. urðu
nokkrar breytingar á stjórn fé-
lagsins.
Stjórnina skipa nú:
Gunnlaug Thorarensen, formað-
ur,
Ingegard Narby, varaformaður,
Birgit Nyborg, gjaldkeri,
Björg Á. Juhlin, gjaldkeri,
Sigrún H. Hallbeck, ritari,
Anne Berit Mörch, meðstjórn-
andi.
Úr stjórninni gengu:
Ingibjörg Sigurðardóttir,
María Þorgeirsdóttir.
Gunnlaug Thorarensen lauk
prófi frá KHI vorið 1980. Réðist
sama ár til kennslu í Fjölbrauta-
skóla Vesturlands og kenndi þar
stærðfræði. Ári síðar flutti hún til
Svíþjóðar og bjó þar í 8 ár. I Sví-
þjóð stundaði hún kennslu og
sótti ýmis námskeið. Hún kennir
nú sænsku í 6.-10. bekk í Árbæj-
arskóla og Valhúsaskóla.
Frá félagi
dönskukennara
Námskeið
í sumar hafa verið haldin tvö
námskeið fyrir félagsmenn. Síð-
ustu vikuna í júní var haldið
NORDSPRÁK-námskeið í Lofthus
við Harðangursfjörð í Noregi.
Viðfangsefni þessa námskeiðs
var Rokkmenning á Norðurlönd-
um (Rockkultur i Norden). Fjall-
að var um rokkið sem sögulegt,
félagslegt og menningarlegt fyrir-
brigði. Fimm Islendingar tóku
þátt í þessu námskeiði þar sem
m.a. Gestur Guðmundsson félags-
fræðingur hélt erindi um rokk-
menningu og rokkmyndabanda-
gerð á Islandi.
Dagana 15.-17. ágúst var hald-
ið námskeið í málaðgerðum og
samtalsgreiningu í Norræna hús-
inu. Fyrirlesari var John Edels-
gárd Andersen frá háskólanum í
Kaupmannahöfn. Þátttakendur
voru 20.
Um þessar mundir er Jens
Hougaard, lektor frá Árósarhá-
skóla, staddur hér á landi. Jens
hefur boðist til að halda fyrirlest-
ur fyrir félagsmenn um
„Bókmenntir og kynhlutverk“.
Fyrirlestur þessi var haldin í Nor-
ræna húsinu laugardaginn 12.
okt..
Dagana 26. febrúar til 1. mars
1992 verður haldið námskeið á
vegum Nordsprák. Námskeiðið er
ætlað fyrir framhaldsskólakenn-
ara og verður haldið í Finnlandi.
Námskeiðið ber heitið „Den
store ábning" og undirheitið
„Internationalisering og den nye
teknik". Tilgangur námskeiðsins
er að fá þátttakendur til að ræða
hvaða áhrif þessi hugtök hafa á
kennslu norrænna tungumála
þegar þau eru kennd sem erlencl
tungumál. Ráðgert er að fara
dagsferð til Tallinn, höfuðborgar
Eistlands. Námskeiðið verður
kynnt nánar í næstu fréttabréfum
félagsins og í BK-blaðinu.
Nýtt myndband
I febrúar s.l. var Félagi dönsku-
kennara úthlutaður styrkur frá
Norrænu ráðherranefndinni til
þess að gera myndband til notk-
unar í dönskukennslu á Islandi.
Hafdís Ingvarsdóttir var fengin til
að hafa umsjón með framleiðslu
myndbandsins. Handritsgerð og
upptaka fór fram í vor og í sumar
en myndbandið var fullklárað í
september. Áætlað er að láta
kennara í 4-5 skólum nota mynd-
bandið í haust og einnig verður
samið verkefnahefti með band-
inu. Áætlað er að gefa út mynd-
bandið og heftið fyrir upphaf
haustannar 1992. Mál og menn-
ing mun sjá um dreifingu og sölu
þessa kennsluefnis.
Frá félagi
frönskukennara
Frá félagi frönskukennara er
það helst að frétta að haldið var
námskeið í Montpellier í júní sl.
Að þessu sinni voru kynntir þrír
efnisflokkar.
1. Appproche communicative
(kennsluaðferð byggð á tjáskipt-
um).
2. Compétance socio-
culturelle (mál, menning og fé-
lagslegt umhverfi námsins).
3. Málfræði og kennsla
frönsku sem erlends tungumáls
(F.L.E.).
Námskeiðið var mjög vel sótt
(28 þátttakendur af 40 félögum)
og þótti takast í alla staði vel sem
var ekki hvað síst franska sendi-
ráðinu á íslandi að þakka sem
styrkti Félagið.
Fulltrúi félagsins í FIPF (Al-
þjóðasamtökum frönskukennara)
Fanný Ingvarsdóttir sat aðalfund
29