Málfríður - 15.09.1997, Side 5
fyrir lestrar- og málfræðikennslu
en gefa þyrfti nemendum aukin
tækifæri til þess að tjá sig. Fyrir
utan hlustun, tal, lestur og ritun
vill nefndin leggja áherslu á
orðaforða og málnotkun annars
vegar og menningu og samskipti
hins vegar. Sú leið sem valin var
er þríþætt: Fyrst eru settar fram
megináherslur, þá eru markmið
og loks leiðir að markmiðunum.
Markmiðin eru miðuð við tvo
vetur í senn í grunnskóla en litið
er á framhaldsskólann sem eina
heild. Einnig ætti eftir að setja
markmið fyrir mismunandi nem-
endahópa og mismunandi
kennsluaðstæður. Markmiðin
sem hér væru sett fram, væru
metnaðarfull og miðuð við góða
meðalnemendur.
Þegar hér var komið sögu
voru fundarmenn beðnir að
skipa sér í vinnuhópa eftir
tungumálum. Menn fengu í
hendur drög að námskrá fyrir
grunn- og framhaldsskóla, hver
hópur í sinni grein. Voru hóp-
arnir beðnir að kynna sér vel
efni þeirra og skila skriflegum
athugasemdum með ábending-
um um breytingar. Gerður
ítrekaði að námskrárvinnan
væri enn á vinnslustigi og tekið
yrði tillit til athugasemda kenn-
ara við endanlega gerð hennar.
Að Ioknum hádegisverði í
boði menntamálaráðuneytisins
gerðu fulltrúar vinnuhópanna
grein fyrir niðurstöðum sínum.
Almennt var látið mjög vel af
starfi nefndarmanna og menn
fögnuðu því að hafa fengið þetta
tækifæri til að hafa áhrif á nám-
skrárgerðina. Áður hafði komið
fram athugasemd þess efnis að
verkmennta- og starfsnáms-
brautir hefðu gleymst. Gerður
svaraði því til að svo væri ekki,
heldur yrði sú vinna unnin síðar
og þá jafnframt hugað að því
hvernig tengja mætti nám á
þessum brautum við aðrar bók-
námsbrautir.
Eftir að nefndin hefur skilað
skýrslu sinni til menntamála-
ráðherra kemur hún á netið.
Slóðin er: http://www.ismennt.
is/vefir/namskra/
Ritnefnd Málfríðar.
Þýska bókasafnið
Goethe Institut
Tryggvagötu 26
101 Reykjavík
Sími 551 6061
Stærsta safn þýskra bóka á íslandi
Menningarmiðstöð Sambandslýðveldisins Þýskalands
Myndbönd, tónbönd, kennsluefni fyrir þýskukennslu
Dagblöð og tímarit
Safnið er öllum opið og útlán endurgjaldslaus
Opið mánudaga til fimmtudaga frá 14.00-18.00
5