Málfríður - 15.09.1997, Page 14

Málfríður - 15.09.1997, Page 14
sjálfir og eftir það lítur ljóðið nokkuð öðruvísi út: Elle n’est pas dans ses yeux. Elle n’est pas dans sa voix. EUe n’est pas dans son ombre. Elle n’est pas. Einnig mætti taka út nafnorð- in og setja önnur í staðinn: Tu n’es pas dans ta ville. Tu n’es pas dans ton monde. Tu n’es pas dans tes réves. Tu n’es pas. Margt fleira mætti gera með þetta stutta einfalda ljóð og er um að ræða vinnu sem byrjend- ur gætu ráðið vel við. b. Nemendur semja ljóð eftir fyrirmyndum. Þeir nota sömu uppbyggingu og setningaskipan og þurfa því ekki að vera hrædd- ir um að fara út fyrir þau mörk sem málið setur þeim. Hér er dæmi um slíka vinnu með ljóð eftir Jacques Prévert: Une pierre deux maisons trois ruines quatre fossoyeurs un jardin des fleurs Hér er um að ræða eins ein- falt ljóð og hægt er að hugsa sér, einungis upptalningu á hlut- um, enga sögn. En þetta er engu að síður ljóð því í því er hrynj- andi og ljóðmyndir. Nemendur geta sett hvaða nafnorð sem eru í stað þeirra sem mynda ljóðið. B) Frjáls ritun (Écrire en tous sens) Ekki eru notaðar fyrirmyndir í slíkri ritun, nemendur nota sína eigin sköpunargáfu og ímynd- unarafl við ritunina. Kennarinn gegnir þó mikilvægu hlutverki sem verkstjóri og ekki síst í því að koma rituninni af stað. Það gerir hann með því að leggja til það sem kalla má miðil sem byggir á málinu.. - Málmiðlun (support linguis- tique) má skipta í tvo flokka: a. Ljóðaleikir Qeux poé- tiques). Hér mætti taka fyrir sérstaka hrynjandi í t.d. þremur ljóðlínum með mismunandi at- kvæðaskipan þar sem nemend- ur skapa innihaldið sjálfir, s.s.: Le vent et le soleil rient, Les nuages pleurent, Les gens brillent. Það er þó alls ekki nauðsyn- legt að ákveða fyrir fram at- kvæðaskipan, það er nemendum í sjálfsvald sett sem og fjöldi ljóðlína. Einnig mætti nota svokallaða súrrealíska leiki þar sem merk- ingin er aukaatriði og útkoman í raun er skemmtileg merkingar- leysa. Dæmi um slíkan leik: Nemendur vinna í pörum með vissa formúlu, t.d. S’il y avait ce serait... (Ef það væri..., þá væri það...). Hvor nemandi um sig hugsar upp nafnorð með lýsingarorði og skrifar það inn í fyrri eða seinni hluta formúlunnar eftir því sem ákveðið er fyrir fram. Þeir bæta svo inn frá hinum og útkoman getur orðið hin skemmtilegasta, s.s.: „Ef það væri stór hundur, þá væri það bleik appelsína." Allt er leyfilegt og nemendur uppgötva að það má vel „steypa“ á erlenda tungumálinu eins og á móðurmálinu. b. Orð eða setningar sem hrinda af stað ritaðri frásögn (déclencheurs de récits). Kenn- arinn getur lagt byrjunina fram sjálfur eða beðið um tillögur úr bekknum. Hann setur ekki nauð- synlega fram kröfur um lengd frásagnarinnar, aðalatriðið er að nemendur skrifi eitthvað. Byrj- unin gæti verið t.d.: „í Kfna í gær sá ég ..." eða eitthvað einfaldara, jafnvel súrrealískt s.s.: „Græni hundurinn...“. - Annars konar miðlar eru þeir sem ekki byggja á málinu heldur á skilningarvitum, t.d. því sjónræna, því hljóðræna, á lykt eða einhverju sem nem- endur hafa þegar upplifað. í þessu sambandi má leggja fram ljósmyndir, myndir af lista- verkum, teikningar, tónlist eða hávaða o.m.fl. Nemendur lýsa því sem þeir sjá/heyra/finna en einnig getur kennari komið af stað þankahríð í bekknum með jafnvel einu orði. Segjum að kennari nefni ákveðinn lit og biðji nemendur að nefna það sem kemur í hugann. í framhaldi af því má setja upp lista á töfl- una, jafnvel þrískiptan lista, nafnorð, sagnir og lýsingarorð aðskilin. Út frá listanum gætu nemendur skrifað frásögn. Það sem fjallað hefur verið um hér að ofan hentar vel til að fá nemendur til að skrifa stuttar frásagnir, örsögur eða ljóð. í sumum tilvikum, t.d. þegar nem- endur skrifa ljóð, má ætla að einstaklingsvinna gefist best en í öðrum má vel útfæra ritunina sem tvímennings- eða hópa- vinnu. Fyrir nemendur sem eru lengra komnir mætti líka koma af stað ritun á lengri textum, t.a.m. smásögum. Til að nem- endur fái tilfinningu fyrir form- inu, gæti kennari lagt fram smá- sögur til lestrar áður en verkið er hafið. Desmougin benti á að ritun smásögu gæti átt sér stað á löngum tíma, þ.e. að kennari gerði ráð fyrir að nota tvær til þrjár kennslustundir á eins til tveggja mánaða fresti þar sem slíkt er mögulegt en að sjálf- sögðu yrði að haga málum á annan veg þar sem slíkt fyrir- komulag hentar ekki (t.d. í áfangaskólum). Desmougin notaði síðustu klukkustundir námskeiðsins til að fjalla um lokahluta ritunar- ferlisins, þ.e. að kenna nemend- um að fara sjálfir yfir ritaðan texta. í þessu sambandi er gott að byrja á að láta nemendur fara yfir rauntexta, skrifaðan af inn- fæddum, en sem kennari hefur breytt á þann hátt að yfirferðar og leiðréttingar er augljóslega þörf. Það mætti taka kafla úr skáldsögu eða smásögu og breyta honum þannig að hann verði erfiður og/eða óspennandi aflestrar, t.d. vegna þess að sama persónufornafnið er of oft endurtekið í stað þess að nota nafnorð. Ef nemendur átta sig á 14

x

Málfríður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.