Málfríður - 15.09.1997, Side 20

Málfríður - 15.09.1997, Side 20
Sögunni trúr, aí hjartans innlifun. Ungir Eyfirðingar fylgjast með - greinarhöfund- ur hvílist og hallast upp að hurð! skoskri menningu og sögu, þótt ég segi líka mikið af ævintýrum og sögum af trúarlegum toga. En þessar sögur, þær skosku, kelt- nesku og írsku opna þeim heim eigin sögu á ljóslifandi hátt og skapa tengsl við ræturnar. Sagnamennskan felur ekki að- eins í sér frásögnina sem slíka, heldur stuðlar maður í hvert sinn að fagurfræðilegri og list- rænni upplifun áheyrendanna með því að „sýna“ þeim á skýr- an hátt, með orðum, hvernig upphafsþræðir sögunnar vefast og með því að ljúka vefnum á jafnskýran hátt. Og síðar verður þetta þeim hvatning til að reyna að „vefa sjálf sinn eiginn dúk“. Það þarf vart að fjölyrða um nyt- semi slíks fyrir hugann, tung- una, sjálfstraustið og ímyndun- araflið. Annað sem gerist líka er að þarna er fólk að hlusta - í raun og veru. Og það er ekki til nein dýpri aðferð við að leita hlutanna og finna en sú sem felst í algerri, djúpri hlustun. Þessu má helst líkja við að verið sé að borða eitthvað af nautn og innlifun! Og það merkilega er, hafi slík hlustun átt sér stað, geta þessir áheyrendur endur- sagt söguna af talsverðri ná- kvæmni einu til tveimur árum síðar. En þeir munu ekki geta sagt hvað var á sjónvarpsskján- um fyrir tveimur kvöldum af við- líka nákvæmni. Þetta hafa marg- ir kennarar sagt mér ítrekað. Þannig að vald sögunnar er mikið. Til eru þeir kennarar sem nota sögur í samhengi við flestar námsgreinar, stærðfræði, landafræði o.fl. því þær ein- faldlega sitja í huga nemend- anna - svo ekki sé nú minnst á mannkynssögu og trúarbragða- fræði. Nemendur sem fá tæki- færi til að segja sjálfir sögur fá í kaupbæti þjálfun í að beita tung- unni og blæbrigðum hennar á þann hátt sem þjónar sögunni og gerir hana forvitnilega og heillandi fyrir áheyrendur.“ Þegar hlustað er á David fremja hina ævafornu list sína fer enginn í grafgötur um ást hans á tungunni og sögunum. Um það sannfærðust ensku- kennarar rækilega 30. septem- ber síðastliðinn þegar þeir áttu kvöldstund með honum að Óð- insvéum, þar sem hann fór að sjálfsögðu á kostum eins og honum einum er lagið. „Síðast en ekki síst,“ segir David, „er það alltaf jafnstór- kostlegt að verða vitni að því þegar fólk á öllum aldri uppgöt- var að það getur skilið sögu á öðru tungumáli - og jafnvel sagt sögu sjálft. Það er næstum hægt að horfa á sjálfstraustið vaxa. Eg hef líka skipulagt námskeið þar sem hlustun og listin að segja sögur, beita málinu, er í fyrir- rúmi. Sennilega ætti ég líka að geta hér um gildi þagnarinnar, svipbrigða og látbragðs? Hvað hefurðu mikið pláss í blaðinu?" - Ertnishlátur. - „Og þá á ég eftir að segja þér frá að stund- um sem ég sögur og lítil ljóð nánast eftir pöntun, til að koma til móts við þarfir þeirra sem í hlut eiga s.s. gerðist eitt sinn þegar vekja þurfti fólk til vitund- ar um umhverfi sitt, líf þess og verndun. Sögur geta orðið áheyrandanum endalaus upp- spretta umhugsunar og sköp- unar.“ Það þarf vart að geta þess að tungutak þessa skoska sagnaþular er geysilega litríkt og tjáningarmátinn oft þeirrar gerðar að nær væri að tala um leiksýningu en „sögustund". Og það sem meira er, framburður- inn svo skýr að ekki er minnstu vandkvæðum bundið að greina hvert einasta orð, þrátt fyrir að um hreinræktaðan Skota sé að ræða. „En vinna mín í heildina er á næsta breiðum grundvelli, svo ekki sé meira sagt. Ég er oft beðinn að koma á barnaheimili, dvalarheimili aldraðra, á bóka- söfn, krár, listahátíðir o.s.frv. fyrir utan skólana. Það sem bíð- ur mín á næstunni eru ferðir til írlands, Kanada, Þýskalands, Austurríkis og Bandaríkjanna. Hver veit svo nema íslandsferð gæti rúmast á dagskránni áður en of langt um líður?“ - Það er erfitt að gera grein fyrir öllu því sem David hefur að segja um hið margbreytilega hlutverk sagna- þularins og því verður hér stað- ar numið. En eitt er víst: enginn sem á hann hlustar er líklegur til að gleyma þeirri stund í bráð. Helga Ágústsdóttir, kennari við Hrafnagilsskóla. Sé áhugi á að fá David í skóla- heimsókn eða njóta listar hans í öðru samhengi, þá vinsamlegast hafið samband við greinarhöfund að Hrafnagilsskóla, Eyjafjarðar- sveit, sími: 463-1383. 20

x

Málfríður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.