Málfríður - 15.05.2002, Side 12

Málfríður - 15.05.2002, Side 12
Notkun vefleiðangra í tungumálakennslu Michael Dal. 1. Hvað er vefleiðangur? Vefleiðangur má nota til að byggja upp vinnuferli í kennslu með notkun tölvu.Að byggja upp vefleiðangur er eins og að undirbúa góða kennslustund. I staðinn fyrir að það er einungis kennarinn sem leiðbeinir nemendum þá er tölvutæknin notuð sem „vinnufélagi“.Vefleiðangurinn er eins konar samspil hugvits, hönnunar og tækni. Vefleiðangur byggir fyrst og fremst á að búa til krækju sem nota má og fjaflar um ákveðið efni eða þema í kennslunni. Ferlinum í að búa til vefleiðangur er lýst í eftirfarandi flæðiriti: ÍVelja uerkefni Byggja upp sidurnar Fullgera uefleiðangur Meta og endurskocfa Setja markmid Kanna bjargir Hanna adkomu Sundurlida uerkefni Hanna uerkefni Hönnunarferiflinn byggir á að einskorða þær upplýsingar sem nemendur þurfa að vinna við, við ákveðna heimasíðu. Þegar nemendur eru að vinna verkefnið geta þeir nálgast upplýsingar jafnóðum. í vefleiðangrinum þarf að byija á því að undirbúa nemendur. Síðan er lagt fyrir þá spennandi verkefni með þeim hjálpar- gögnum sem þeir þurfa á að halda; þeim er veitt leiðsögn til að ljúka verkefninu; þeir upplýstir um það hvernig verkefnið verður metið og að lokum dregið saman hvað áunnist hefur með því að vinna verkefnið. Vefleiðangri er því skipt niður í eftirfar- andi þætti: kynningu, verkefhi, vinnulag, krækjur, mat og niðurstöðu. Það er hægt að hugsa sér hvern þessara liða sem sér- stakar einingar í uppbyggingu vefleiðang- ursins. Með því að skipta honum upp á þennan hátt er hægt að ná frarn margs konar námsmarkmiðum. Til nánari upp- lýsinga er gagnlegt að skoða ,,A Web Quest about Web Quest“ eftir Bernie Dodge á eftirfarandi slóð: http://www.memphis-schools.kl2.tn.us/ admin/tlapages/wq_wq.htm 2. Bekkjarkennsla og notkun tölvu í kennslu Þegar vefleiðangurinn er tilbúinn þá er komið að því að leggja hann fyrir nem- endur en nauðsynlegt er að skoða fyrst hvernig aðstæður í bekknum eru þegar nemendur byija að vinna á tölvu. Þá breytist kennslurýmið gjörsamlega og um- hverfi kennslunnar er orðið annað. Hug- takið bekkur er ef til vill „horfið". Ef nemendur eru með fistölvur þá þurfa þeir ekki einu sinni að vera í skólastofunni, því nemandinn situr einn við skjáinn. Kenn- arinn er næstum því líka „horfinn“ og nemendur geta í rauninni gert það sem þeir vilja. Abyrgðin á náminu er í auknum mæli á herðum nemandans. Spurningin er þá hvort hann sé tilbúinn til að axla þá ábyrgð án þess að fá nauðsynlegar leið- beiningar og aðhald. Nemendur þekkja tölvuheiminn vel sem eins konar „leikvöll“ þar sem hægt er

x

Málfríður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.