Málfríður - 15.05.2002, Side 19
Nám í dönsku og ensku við Kennaraháskóla íslands
Möguleikar fyrir starfandi grunnskólakennara
Frá og með hausti 2000 tók gildi nýtt
skipulag á námi fyrir grunnskólakennara í
Kennaraháskóla Islands. Námið er enn
einungis þrjú ár þar sem yfirvöld mennta-
mála hafa ekki haft skilning á nauðsyn þess
að lengja námið í fjögur ár. Þetta er slæmt,
m.a. vegna þess að ný aðalnámskrá gerir
auknar kröfur til kennara á öllum sviðum.
Aðalnámskrá grunnskóla var m.a. höfð til
hhðsjónar þegar nýtt skipulag á kjörsvið-
um var undirbúið. Námseiningum var
fjölgað í greinum, þannig að þeir sem velja
dönsku eða ensku sem aðalgrein geta nú
tekið 25 einingar í greininni fyrir utan æf-
ingakennslu. Danska og enska mynda
saman kjörsviðið erlend mál og eru tvö
námskeið sameiginleg fýrir nemendur
beggja tungumála. Nám í greinum deilist
á fjögur misseri. Kennaranemar sem ekki
taka erlend mál sem aðalgrein geta tekið
einstök námskeið í frjálsu vali.
Það er alltaf eitthvað um að starfandi
kennarar eða kennarar í orlofi taki nám-
skeið í dönsku eða ensku og skóhnn hef-
ur mikinn áhuga á að gera kennurum
kleift að stunda nám með starfi, t.d. bæta
við sig valgrein eða taka einstök nám-
skeið. Þess má geta að fjarnám hefur verið
í boði undanfarin ár og verður áfram þó
að ekki sé tryggt að allar valgreinar verði
ahtaf í boði. Fjarnám er góður kostur fyr-
ir þá kennara sem geta ekki sótt staðbund-
ið nám.
Markmið náms í erlendum tungumál-
um er að kennaranemar öðlist
• þekkingu á eðh og uppbyggingu tungu-
málsins og notkun nútímamáls,
• innsýn í þjóðlíf, menningu og bók-
menntir,
• kennslufræðilega þekkingu, bæði hag-
nýta og ffæðilega, sem auðveldar þeim
að meta námsefni og aðferðir og þróa
sínar eigin leiðir í tungumálakennslu,
• haldgóða færni í tungumálinu til að
takast á við kennslu á grunnskólastigi.
Eftirfarandi tvö námskeið á kjörsviðinu
eru sameiginleg fyrir dönsku og ensku:
Inngangur að kennslufrœði erlendra tungu-
mála (3 ein.). Á námskeiðinu er lögð áher-
sla á að efla skilning á þeim stefnum og
aðferðum sem efst eru á baugi, námskráin
er tekin th skoðunar svo og námsefni og
ítarefhi.
Notkun upplýsingatœkni í tungumála-
kennslu (2 ein.). Á námskeiðinu er fjallað
um möguleika upplýsingatækninnar og
notkun hennar í tungumálanámi og
-kennslu.
Eftirfarandi námskeið eru í boði í dönsku:
Danskt mál og málnotkun I (3 ein.). Á
þessu námskeiði er fjallað um uppbygg-
ingu danska máikerfisins. Aðaláhersla er
lögð á ritað mál og ritun.
Dönsk menning og danskt samfélag I (2
ein.). Námskeiðið fjahar um fjölmargar
hhðar á dönsku samfélagi og danskri
menningu eins og það birtist í þölrmðl-
um.
Danskt mál og málnotkun II (3 ein.).
Þetta námskeið er ffamhald af Dönsku máli
og málnotkun I. Farið er í þætti sem ein-
kenna danskt talmál og sem valda Islend-
ingum erfiðleikum.
Danska sem erlent mál (2 ein.). Á þessu
námskeiði er lögð áhersla á að nemar læri
hvernig best er að haga kennslu í hlustun,
töluðu máli, ritun og málfræði og jafn-
framt hvernig meta má nám.
Daglegt mál og tjáning á dönsku (2 ein.).
Á námskeiðinu verða nemar þjálfaðir í að
beita máhnu við ýmsar aðstæður.
Dönskukennsla í efri bekkjum grunnskóla (4
ein.). Þetta námskeið er ffamhald af dönsku
sem erlent mál. Fjallað er um uppbyggingu
kennslustunda og ýmsa hagnýta þætti sem
tengjast dönskukennslu.
Dönsk menning og danskt samfélg II (2
ein.). Þátttakendur kynnast aðferðum við-
19